Félagsbréf - 01.05.1960, Side 40

Félagsbréf - 01.05.1960, Side 40
38 FÉLAGSB REF ARCHIBALD MACLEISH er einna frem.'t- ur í flokki núlifandi bandarískra ljóð- skálda og nýtur mikils álits sem merki- legur hugsuður. Verk hans hafa ávallt vakið mikla athygli og styr, er þau hafa komiö út, hann hefur aldrei farið troðnat slóðir í skáldskap sínum, og um nafn hans hefur aldrei verið hljótt. Enda þótt MacLeish hafi aldrei hoðið sig fram til þings eða annnarra opinherra starfa, hefur hann eigi að síður haft tals- vert mikil afskipti af stjórnmálum og þótt mjög frjálslyndur í þeim efnum. Hann var ákveðinn stuðningsmaður Franklins D. Roosevelts og New Deal-stefnu hans, stari- aði í utanrikisþjónustu Bandaríkjanna um árahil og var aðstoðar-utanrikisráðherra um skeið. Um sex ára hil var hann forstöðu maður hins mikla þinghókasafns í Wasii- ington, hefur starfað í þágu upplýsinga- þjónustu Bandaríkjanna og verið formað- ur amerískra sendinefnda á fjölmörgum alþjóðaráðstefnum, sem fjallað hafa utit nienningarmál, svo sem UNESCO. Er hann. var aðstoðar-utanríkisráðherra var liantti mjög gagnrýndur af ýmsum íhaldssömnm hlöðum og stjórnmálamönnum, enda þótt sú gagnrýni hafi í raun réttri verið gagn- rýni á stefnu Roosevelts forseta engu siu- ur en skoðanir MacLeish. Haft er fvrir satt að hálreiður senator hafi við yfirheyrsi- ur i einni hinna frægu þiugnefnda Banda- rikjaþings heimtað af MacLeish að hanni „ga>fi skýringu“ á sumum ljóðum sínum. Þessi merkilegi og gáfaði talsmaður frjálslýndisins er hámenntaður. Hann lauk prófi í hókmenntum við Yale-háskólaim árið' 1915, en var síðan hermaður í he. Bandaríkjanna í Evrópu i fyrri heimsstyrj- öldinni. Þá hóf hann lögfræðinám og lauk prófi í iþeirri grein frá Ilarvard-háskóla. Hann starfaði sem lögfræðingur um hríð,. en fluttist svo frá heimalandi sínu skömmu eftir 1920 og settist að í Evrópu eins og margir fleiri rithöfundar og skáld þess tíma, sem voru hvað mest óánægðir með ástandið eins og iþað var þá vestra. — Skömmu eftir 1930 sneri hann svo aftur vestur um haf, og um það leyti varðí hann doktorsritgerð, er fjallaði um enskai miðaldahókmenntir. Hann er nú 68 ára að aldri og nokkur undanfarin ár hefur hann starfað sem prófessor við Harvard- háskólann og haldið þar fyrirlestra um ljóðagerð og helgað sig skáldskap sinum. Ilann hefur tvívegis hlotið Pulitzerverð- launin fyrir ljóð. Grein sú, sem hér hirtist í íslenzkri þýðingu, var upjihaflega flutt aí höfund- inum sem Gideon Seymour-fyrirlestur við háskólann í Minnesota, en birtist siðait í greinarformi i handaríska tímaritinu Atlantic Monthly. Vegna þrengsla i Félags- hréfum hef ég því miður neyðzt til þes> að stytta greinina nokkuð. Þvð.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.