Félagsbréf - 01.06.1961, Qupperneq 44

Félagsbréf - 01.06.1961, Qupperneq 44
42 FÉLAGSBRÉF hann hlessaður öðlingurinn hann séra Einar minn var og hét. En húið er það, já búið er það eins og allt gott, og María guðsmóðir fyrirgefi mér. Hún krossar sig og tautar niður í barminn. — Já, hann Staður, segir hún. — Nú það er svona fimm bæjarleiðir héðan og þetta betur. Patar út í loftið. — Upp við brekkuna, svolítið lengra en liéðan sér. Bezt að fylgja árbökkunum. Þið sjáið blessaða kirkjuna, þegar þið nálgizt. Stendur á hólnum fram af bæjarhúsunum. Fólkið þakkar upplýsingarnar. Tínist á bak hestunum og kveður. Föru- konan tifar stuttstíg og hraðstíg suður götur fellsins, en ferðafólkið heldur norður af leitinu. Göturnar liggja niður á árbakkana. Fólkið skimar yfir græna sléttuna framundan. — Þetta lízt mér hetur á, segir maðurinn. — Hér er vítt um sveit og mikil engjalönd. Þau halda norður með ánni að austan. Hún er lílil og lygn og liðast i ótal krókum milli grænna bakka. Austan sléttunnar streymir Skjálfanda- fljót til hafs. Þungar dunur berast frá Ullarfossi suðaustan sléttunnar. Þar steypist austuráll fljótsins fram af hamrabrúnum Þingeyjar. Dökkir skóg- ar marka svip austurhlíða um Núp, Mánafell og Fljótsdalsheiði. Silfurgráar grávíðisfleskjur lita bakka fljótsins. Vesturhlíðar dalsins eru hærri. Að baki þeirra horfa önnur fjöll yfi1' brúnir undirhlíðanna. Bládökk. Brynjuð fönnum. Þetta er hinn mikli bálk- ur Kinnarfjalla. Þau hvessa brúnir til hafs. Ógeng víða. Hömrum girt- — Svo þetta er Kinn, segir konan. — Já, segir maðurinn. — Nú er hann Fúsi kominn í Kinn. Brosir við- Horfir hugsandi fram á veginn. Hópurinn þokast norður bakkana. Það er árið 1554. Sigfús heitir hann og er Guðmundsson. Hann er prestur og kemur innan frá Eyjafirði. Upp alinn á Svalbarðsströnd. Hann kallar sig Fúsa. Stundum skrifar hann sig Fúsa Gvendsson. Slíkt er ekki óalgengt á þeirri tíð. Jafn' vel auðugir og háttsettir virðingarmenn nota stundum nafnastyttingar. Sigfús Guðmundsson ríður í hlað á Stað í Kinn þennan vordag f>'r11 rúmlega fjögur hundruð árum. Sennilega er þar lítið um móttökur. Siða skiptin eru aðeins þriggja ára gömul og norðlenzkir bændur eru tómhítir um klerka nýs siðar. Einar Hjaltason, hinn gamli prestur staðarins, el horfinn frá kjól og kalli og býr nú á Eyjadalsá í Bárðardal í hárri elh-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.