Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 54

Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 54
52 FÉLAGSB RÉF jafnvel skemmtilegri, ef höfundur hefði ekki þurft að slíta samhengi hennar í sundur eins og hann gerir með hinum langa inngangi. Stíll Stefáns er einfald- ur í sniSum og fremur rislágur, fram úr hófi endurtekningasamur og þar af leiS- andi tyrfinn. Endurtekningar geta stund- um gegnt sínu hlutverki í stíl og aukið á áhrif, en fara verður varlega í þær sakir, svo að ekki verði að tafsi. Eitt er svo það atriði, sem mér finnst mjög til- finnanlegt í efnismeðferð höfundar: Hvergi hregður fyrir hrosi eða kímnisglampa, það er engu líkara en enginn íbúi Sandstrand- ar geti gert neitt að gamni sínu, og þá ekki höfundur heldur. Einhver skáld- sagnahöfundur hefði þó fundið tilefni til þess að heita ofurlítilli kímni í sambandi við persónu eins og Jónu Þormóðsdóttur, skólastjóra á Sandströnd, sem annars er ein af þeim persónum sögunnar, er stend- ur manni einna skýrast fyrir hugskotssjón- um, því að persónusköpun höfundar er vægast sagt mjög misjöfn. Hefði slíkt gert bókina ólíkt fjörlegri og skemmti- legri aflestrar, en eins og er reynist hún lesandanum frámunalega þurr og jaðrar við að vera leiðinleg og hnoðsöm á köflum. Onnur persóna, sem frá hendi höfundar- ins stendur manni allskýrt fyrir hugskot- sjónum er listmálarinn Pétur Böðvarsson. Svo virðist sem höfundur hafi lagt nokkra Prakkarar úr Hendrik Ottósson: Gvendur Jóns og við hinir. 164 hls. Helgafell, Reykjavík, 1960. Um jólaleytið í vetur kom út á vegum bókaútgáfunnar Helgafells í Reykja- vík nýtt safn af prakkarasögum úr Vestur- alúð við að skapa þessa persónu bókar- innar. Hann er fjörlegur karl, glaðlegur og kampakútur, og ekki fæ ég betur séð en höfundurinn leggi honum, öðrum per- sónum fremur, til sínar eigin skoðanir a mönnum og málefnum. Er þá eins og úlfurinn fari að gægjast undan sauðargær- unni og ekki laust við að lesandanum hnykki við. Það kemur nefnilega í ljós að höfundur lætur Pétur listmálara að- hyllast skoðanir, sem eru í algeru sam- ræmi við kenninguna um að tilgangurinn helgi meðalið, hvert sem það er. „Sjáðu til, hversu mikil afglöp, sem þeir gera, verður ekki aftur snúið,“ lætur hann Pétur segja á einum stað í bókinni, og á öðrum: „Nei, það væri búið að taka fyrir kverkar okkar, ef ekki væri óvinur- inn í austrinu, góði minn. Góð lífskjör okkar og margs konar frjálsræði hefur þróazt í skjóli fantanna.“ — Það er engu líkara en þótt höfundur fordæmi einræðis- herrann á Sandströnd, Árna Jónsson, og aðferðir hans, með bók sinni þá sé þó til kenning, sem ekki verði hróflað við, hversu mikil afglöp sem fantarnir, er aðhyllast þessa kenningu, kunna að fremja. Er þa liætt við að sumum lesendum reynist erfitt að skilja hver tilgangur höfundar kann að vera með þessari hók. Þórtiur Einarsson. Vesturbœnum bænum eftir Hendrik Ottósson fréttamann hjá útvarpinu og fyrrverandi heldri strák af Hllðarhúsastígnum, sem hann nefmr Gvendur Jóns og við hinir. Þetta er fram- hald eða viðhót við svipaðar frásagnif hans, sem út komu fyrir nokkrum árum og nefndust Gvendur Jóns og ég. Pær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.