Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 53

Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 53
FÉLAGSBRÉF 51 Og óhjákvæmilega hlýtur aS koma að því að Árni Jónsson hugsi til frekari manna- forráða. Hann ibeitir sér fyrir því meðal bænda, að kaupfélag, sem áður hafði verið stofnað til og mistekizt, verði end- urreist. Þetta tekst með ágætum enda kaupmannsverzlunin nú í höndum fjórða ættliðs Hansensfjölskyldunnar. Þau börn- in höfðu búið við allsnægtir, notið þeirrar menntunar, sem þau voru meðtækileg fyrir og kærðu sig um, siglt til útlanda og kynnzt umheiminum. — En það kem- ur fram í þeim einkennilegt rótleysi og eirðarleysi, áhrifin af allsnægtunum gera vart við sig á þessum ættlið i ýmsum hrörnandi tilhneigingum. Það hlýtur að fara svo, að kaupmannsverzlunin víki fyrir ómótstæðilegum þunga kaupfélags- stefnunnar undir röskri og nokkuð óvæg- inni stjórn stráksins frá Reykjakoti. Það þarf nefnilega sterk bein til þess að standa undir ríkidæmi, liafa á hendi mannafor- ráð og sjá um að halda við og ávaxta •niklar eignir. Þeir eiginleikar, sem til þess þarf, virðast ekki hafa komið fram a þessum ættlið Hansenanna. Hann vant- ar festu eða tradisjón eða hvað á að nefna það, til þess að þola þær holskeflur rugl- 'ngs og ringulreiðar, sem yfir Sandströnd skellur, og skollið hefur yfir allt þjóð- félag okkar á undanförnum áratugum. Kaupfélagið dafnar, það tekur við gomlu verzlunarhúsunum og hótelinu, hafin er starfræksla mjólkurbús, byggt nVtt og stærra sláturhús, o.s.frv. Og ekki ma gleyma menningar- og félagsmálun- Um- Að sjálfsögðu er byggt reisulegt félagsheimili, sem verður miðstöð þessar- ar bráðnauðsynlegu starfsemi í vaxandi °g gróskuríku bæjarfélagi. En hvað skeð- Ur svo, þegar allt þetta er komið undir stJ°rn kaupfélagsins og orðið að eign fólksins sjálfs, að sjálfsögðu undir for- ystu hins harðduglega og aðdáunarverða Árna Jónssonar, stráks frá Reykjakoti? Jú, völdin stíga honum til höfuðs, hann gerist einvaldsherra staðarins, ekkert má þar gera nema hann samþykki það eða leggi á ráðin, og á það jafnt við um verzlunarmál sem félags- og menningar- mál. Þar kemur því í þessari þróun mála á Sandströnd, að Árni Jónsson þarf að ráða sér fulltrúa í menningarmálum. — Þessi maður þarf að vera alveg sérstök- um kostum búinn og Þorvaldur sá, sem til starfans velst, virðist fullnægja öll- um þeim kröfum. Hann er „fágætum hæfileikum" búinn, eins og Árni kaup- félagsstjóri kemst að orði, lipur milli- göngumaður, tilvalinn til þess að reka erindi annarra, hefur sjaldan ákveðna skoðun sjálfur á mönnum og málefnum, og ef hann hefur það og hún fellur ekki einvaldsherranum í geð, þá er hann fljót- ur til þess að draga hana til baka og gera eins og fyrir hann er lagt. Hann hik- ar ekki við að Ijúga öðru hverju, til þess að sýnast eða til þess að koma áfram málum, sem varða víðtæka hagsmuni Árna Jónssonar. Það er þessi Þorvaldur, sem segir söguna að mestu leyti og alveg, eftir að hinum langa inngangi höfundar lýkur. Og þá er þessi formáli minn orðinn meiri en nógur, engu síöur en formáli höfundarins. Efni þessarar fyrstu skáld- sögu hins afkastamikla höfundar barna- bókanna er á ýmsa lund skemmtilegt og girnilegt viðfangs, og höfundur er öllum hnútum vel kunnugur, en skáldsögu- formið er ekkert lamb að leika sér við. Hann nær ekki fullum tökum á þvi í fyrstu atlögu, sem varla er von. Ólíkt hefði þessi saga verið áhrifameiri og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.