Félagsbréf - 01.10.1964, Síða 40
Oft heyrist það staðhæft, að skrif
um bækur séu miklu betri og vand-
aðri í erlendum dagblöðum en ís-
lenzkum. Ekki skal ég gegn því mæla,
að svo geti verið, en ég held samt, að
munurinn sé ekki eins mikill og á
orði er haft. Því áliti til stuðnings
vil ég minna á það, að aftan á káp-
um margra erlendra bóka má sjá til-
vitnanir úr „ritdómum“ dagblaðanna,
og eru þar oft vel mæld lofsyrði höfð
eftir virðulegum „bókagagnrýnendum“,
sem mikið orð fer af. En þegar við
lesum þessar bækur getur svo farið,
að okkur þyki vafasamt, að þær
standi undir „dómnum.“ Víðar en á
Islandi hefur orðið vart þess kvilla
að bera oflof á bækur, þó að margt
megi til þess nefna, að hér í fámenn-
inu sé það meiri vorkunn en annars
staðar.
Loks er rétt að víkja að viðhorfi
rithöfunda til dagblaðaskrifa um bæk-
ur þeirra. Ýmsir þeirra meta bóka-
skrif dagblaðanna til fárra fiska, en
taka sér þau eigi að síður stundum
furðulega nærri. Þetta þarf líka að
breytast. Þeir verða að hætta að líta
á þessi skrif sem dóma, því að annars
geta þeir líka tekið háð Ibsens til sín.
En mörgum þeim, sem segir álit sitt
á nýrri bók í dagblaði, mundi létta
fyrir brjósti, ef hann vissi, að lesend-
urnir væru hættir að líta á hann sem
dómara, og bókarhöfundar leituðu hjá
honum ein'hvers annars en gálga eða
öndvegis.
XURT ZI E R
Listrœn samvizka
I
Fyrir nokkrum árum var ég gestur
menntamálaráðherra Austur-Þýzka-
lands, ásamt hóp ungra vestur-þýzkra
stúdenla. Fóru þar fram heitar um-
ræður um sósíalíska menningu, sér-
staklega hugsana- og skoðanafrelsi.
Inntu stúdentarnir ráðherra eftir því,
hvernig á því stæði, að m.a. djass og
abstrakt list væru með öllu bönnuð
í sósíalistaríki. Svar hans var á þa
leið, að hvortveggja væri eitur fynr
verkalýð og bændur. Stúdentarnir mót-
mæltu og spurðu, hverjir það væru, er
felldu slíkan dóm. Ráðherrann kvað
það vera hlutverk dómbærra manna.
En fulltrúar hinnar vestrænu æsku
neituðu að afsala sér rétti og frelsi til
persónulegra skoðana í liendur neinnar
nefndar. Þeir héldu því til streitu, að
36 FÉLAGSBRÉF