Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 10

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 10
M: Og sumt verður ónefnanlegt. Þ: Mikið af afþreyingunni er dulbúin menningaráhrif frá Afríku, fagnaðarerindi villimennskunnar læðist til okkar, í brasilískri tónlist og dönsum, raggie, jassi, blús, rokki og frjálsum dansi. í Kramhúsinu losar meistari frá Karíbahafi líkama sem eru frystir af lúterskum rétttrúnaði. íslenskt árþúsundamótafólk borðar kínverskan mat, talar þetta furðulega og örlitla stórmál, dansar afríska sömbu á Suðumesjavísu og vinnur í Álverinu. Þetta em endurreisnartímar. Krampar í vitundinni M: Það eina sem getur gengið af tungunni dauðri er alræði undirmálsmanna í fjölmiðlaheiminum og mælgi stjómmála- manna. H: Margir hafa iðkað að horfa á sjálfa sig úr sögulegum fjarska en þetta hæðnislega bros leikur ekki um varir Stefáns Jónssonar í Hjaltabókunum eða Jóns Sveinssonar í Nonnabókunum. Hví þessi íróníski tónn? Skapar hann svigrúm fyrir gagnrýni? Eða er þetta bara svona rosalega hlægilegt tímabil? Þ: Stefán og Jón vom svo sælir með framþróunina því fátæktin var svo erfið og vond. H: En finnst ykkur þetta hæðnisbros ekki vera svolítið tímanna tákn? Eg nefni til vitnis dúfnakofa Einars Más og bragga Einars Kárasonar. Má kannski nota brosið til að losna undan ábyrgð? Emm við á ábyrgðarlausu róli? M: Nei, þetta er ekkertsérstaktnútímatákn. Þetta hefur verið um allar aldir. Sumt af því sem okkur finnst strembið hjá Stefáni held ég að sé kaldranalegur húmor af hans hálfu. Hann er ekki alveg laus við þetta en hann ímyndar sér að hann beri ábyrgð enda er hann bamakennari. Við emm ekki bama- 10 Bjartur ogfrú Emilía

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.