Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Blaðsíða 38
lafandi utaná sér, það hefur ekkert uppá sig
K Gleymdu því. Ég er ekki búin að vinna í dag. Verð að
taka viðtal við einhvem hljómsveitarstjóra af því að
hann neitar að taka konur á námskeið hjá sér. Strax
farinn að skjálfa á beinunum með sprotann sinn af því
að hann þarf að halda blaðamannafund á eftir. Núna
stjórnar hann með hjartað í buxunum, komdu bara
með
M Ég skal vera ferlega kúl áðí.
K Viltu frekar fá þér einn léttan, ha? Já, blessuð, gerðu
það
M Já, þú heldur það! Nei, ég skal sko koma og elta þennan
gúrú þinn með þér
K Ef þú gætir bara einhvem tíma verið til friðs
M Ja, það er munur að hafa sjálfstraustið í lagi
(Hún hermir eftir K)
Svona líka, það er harkan sex / ef kerlingin á bakvið
fríkar út og fær slag, þá hvað? / kemur mér sko ekki
við. Aðalatriðið er að ég fái ekki slag. Mín vegna má
hún fá slag, mín vegna má hver sem er fá slag, hver á
eftir öðrum, sakk, sakk, sakk
K Heyrðu, hvenær fórstu að vorkenna kerlingunni á
bakvið?
M Það er ekki málið,—hvort ég vorkenni einh ver jum eða
ekki / málið er bara að þér er hvort sem er
drulluskí tsama / og hvemig á ég svo að halda það út að
hanga hér í allt kvöld
K Slitnuðu leiðslurnar í þér eða hvað? Þegar ég þarf að
tala við þessar pungrottur og gera eitthvað fyrir þá til
að fá hjá þeim viðtal þá geri ég það af illri nauðsyn og
bara fyrir seðlana og ekkert annað
M Hm. Þetta er allt á hreinu. Hljómsveitarstjóri, ha.
Klassaópera, maður lifandi. Salóme. Kálhausinn á
diskinum og maddaman dansar með glimmerpjötlu
framan á sér og rassgatið bert
K Heyrðu, vinan, úr því að þetta er komið á dagskrá þá
get ég sagt þér að ég er búin að fá nóg, mér kemur sko
38
Bjartur ogfrú Emilía