Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Side 50

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Side 50
einingu alls sem lífsanda dregur, vegna þess að skynjun hlýtur að koma á undan hugsun, og vegna þess að einungis útfrá einhverri djarfri og yfirþyrmandi hugmynd um það hvemig veruleikinn sé vaxinn geta risið þessi stórfenglegu form hugsunar og athafnar sem eru forsendur harmleiksins. Því sé það rétt að harmleikurinn eigi upptök sín í einfaldri myndlíkingu, gaumgæfinni íhugun, ljóðrænu öskri, þá getur hann ekki til langframa látið fyrirberast á því kyrrstæða plani. Með áralöngu grufli og ígrundun hinnar merkilegu samsvörunar uppgötvuðu frumkvöðlarnir smámsaman þá eðlislægu innri orku formsins sem gerði manninum kleift að beita ýtrustu ráðsnilld sinni til að draga allar hinar simdurleitu hvatir eðhs síns saman í hfrænt og merkingarbært mynstur. Ef rekja mætti allt það dulda ferli, mundi það ekki aðeins leiða í ljós þróunarsögu harmleiksins, heldur hka trúarbragðanna, og ekki aðeins harmleiks og trúarbragða, heldur allra þeirra heimspekikerfa sem fundin hafa verið upp, ýmist til að styðja trúarbrögðin eða koma í þeirra stað. Virk myndhvörf Segja má að myndlíking sé kyrrstæð þegar samsvörunin, sem hún gefur til kynna, þjónar ekki öðrum tilgangi en þeim að fullnægja mannshuga sem er hafinn yfir hverja tilfinningu og hverja athöfn. Að lífið sé hringrás atvika sem koma hvert í kjölfar annars með ósveigjanlegri reglufestu, sem er sambærileg við rás árstíðanna, og að náttúran birti í ótölulegum myndum samskonar við- burðamynstur—fæðingu, vöxt, hrömun, dauða — eru staðreyndir sem hljóta að hafa grópast í mennska vitund jafnskjótt og hún öðlaðist tímaskyn og glæddist hæfileika til hlutlausrar skoðunar. Og að maðm-inn væri eitt af þessum formum náttúrunnar, ofurseldur sama ósveigjanlega lögmáh, er staðreynd sem hlýtur að hafa náð tökum á vitund hans um svipað leyti. En myndhverf samsömun hinna tveggja vídda veruleikans, ytri víddar náttúrunnar og aðgreindrar víddar mannsins sem kom til sögunnar með vitund hans um að hfa í annarri vídd, sú samsömun hefur ekki getað átt sér stað fyrren miklu síðar. 50 Bjartur ogfrú Emilía

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.