Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Qupperneq 57

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Qupperneq 57
goðmagna, einsog fræðimenn halda fram, þá má leiða rök að því að atburðarásin hafi átt sér upptök í nákvæmlega sömu tjáningarþörf. Skilsmuninn má rekja til sögulegrar framvindu. Í staðinn fyrir kenningu Nietzsches um sjálfsprottna atburðarás má leita skýringar í þeirri staðreynd að talað mál er annar tjáningarmiðill og kom talsvert seinna til sögunnar. Nietzsche er sennilega nær réttu máli þegar hann talar um „storknun" hinnar díónýsísku sýnar í sérstæðum myndum og táknum hins apollónska „draumheims" hetjusagnanna. Eftirað hverful og óáþreifanleg öfl náttúrunnar höfðu verið fönguð í hrynjandi og stellinginn dansins má gera ráð fyrir að með tíð og tíma hafí þau þést og orðið að manngerðum goðmögnum fyrir atbeina myndskapandi hugarflugs. Fyrir tilverknað tungunnar voru þeim í fyrsta lagi f engin heimkynni og nafn, en þau fengu sömuleiðis hvert sína sérstöku ævisögu. Ef svo má til orða taka, var mynstrið fyllt út með áþreifanlegri reynslu kynstofnsins. Við þurfum ekki annað en rekja ferli æ umfangsmeiri greinargerða eða lýsinga á stakkaskiptum sögulegra staðreynda eða þjóðsagna til að gera okkur grein fyrir hvemig goðsagnimar þróuðust strax og þær höfðu fundið sér grundvallarmynstur. Það verður því einungis sagt að goðsögnin og atburðarásin eigi upptök sín í dansi í þeim skilningi, að þær segja það sama í öðrum og eftilvill þróaðri tjáningarmiðli. Séu þessir tveir tjáningarhættir samtvinnaðir í grísku harmleikjunum, þá er miklu fremur um að ræða víxlverkandi áhrif en ættgengi. En til að gera sér grein fyrir þessu samspili, sem segja má að formleg eining harmleiksins velti á, er nauðsynlegt að fara nánar útí þær merkilegu brey tingar sem helgidansinn og goðsögnin höfðu tekið þegar kom frammá fimmtu öld fyrir Krist. En til þess þyrfti annan pistil og sennilega snöggtum lengri en þennan. 1 Aristóteles: Um skáldskaparlistiim. Kristján Árnason þýddi. Reykjavík 1976. Bls. 55. 2 Grfskir harmleikir. Helgi Hálfdanarson þýddi. Reykjavík 1990. Bls. 9— 227. 3 Sama rit. Bls. 231—506. 4 Sama rit. Bls. 509—1158. 5 Sama rit. Bls. 1159—1179. 6 R.R.Marett: The Birth ofHumility. New York 1937. Bls. 17. 7 Sir James Frazer: The Golden Bough. New York 1953. Bls. 12—95. 8 Kenneth Burke: A Grammar ofMotives. New York 1945. Bls. 44—45. 9 Friedrich Nietzsche: The Philosophy ofNietzsche: The Birth ofTragedyfrom the Spirit ofMusic. Translated by Clifton Fadiman. New York 1927. Bls. 990. Tímarit um bókmenntir og leiklist 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.