Fréttablaðið - 28.10.2016, Síða 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Undanfarin ár hafa verið viðburðarík. Margt hefur breyst til hins betra í samfélaginu vegna víðtækra aðgerða sem ráðist var í á kjörtíma
bilinu, heimilum og þjóð til heilla. Þar fóru saman
orð og efndir. Ber þar hæst Leiðréttinguna, afléttingu
hafta og uppgjör slitabúa fallinna banka. Allt mál sem
skiptu gríðarlegu máli fyrir velferð þjóðarinnar. Má
fullyrða að efnahagslegt sjálfstæði okkar hafi verið
endurheimt; við stóðum fast á rétti okkur þótt hart
hafi verið að okkur sótt. Til þess þurfti kjark og óhefð
bundnar leiðir.
Framsóknarmenn hræðast ekki að taka á erfiðum
málum. Við setjum okkur skýr markmið og gerum allt
sem í okkar valdi stendur til að ná í áfangastað. Fram
sóknarflokkurinn fagnar nú 100 ára afmæli en mark
mið hans hefur alltaf verið það sama; að bæta lífskjör
allra sem hér búa.
Lægri skatta á meðaltekjur
Nú taka við ný verkefni. Við þurfum að efla enn frekar
mátt hins almenna launamanns með því að lækka
skatta á meðaltekjur. Við þurfum að endurskoða
peningamálastefnuna því vextir eru of háir á Íslandi.
Þeir voru háir í aðdraganda bankahrunsins, rétt eftir
það og eru enn. Þessi tvö mál munu skila heimilum og
atvinnulífi miklum ávinningi.
En til þess að koma þeim á rekspöl þurfum við að
halda áfram á braut framfara og ábyrgrar stjórnunar
í efnahagsmálum og með því tryggja stöðugleika. Það
gengur vel og nú er ekki rétti tíminn fyrir kollsteypu.
Val kjósenda stendur um áframhaldandi trausta
efnahagsstjórn og kraftmikið atvinnulíf öllum til
heilla, eða endurnýjaða vinstri stjórn með stuðningi
Pírata.
Manngildi ofar auðgildi
Fyrsta hreina vinstri stjórnin klauf þjóðina í herðar
niður með umsókn að Evrópusambandinu og margt
bendir til þess að nú eigi að endurtaka þann leik.
Manngildi ofar auðgildi er leiðarstef Framsóknar
flokksins. Því verður haldið til haga. Ég hvet kjósendur
til að kjósa með sínum hagsmunum.
Tryggjum stöðugleika
Sigurður Ingi
Jóhannsson
forsætisráðherra
og formaður
Framsóknar-
flokksins
Framsóknar-
menn
hræðast ekki
að taka á
erfiðum
málum. Við
setjum okkur
skýr mark-
mið og
gerum allt
sem í okkar
valdi stendur
til að ná í
áfangastað.
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
Það er alltaf áhugavert að fylgjast með síðustu útspilum frambjóðenda fyrir kosningar. Staða þeirra ræður miklu um hvaða herfræði er beitt á síðustu metrunum.Þetta var nokkuð skýrt í forseta
kosningum þar sem núverandi forseti hafði yfir
burðastöðu og því skiljanlegt að fremur væri reynt að
forðast mistök en að koma með afgerandi útspil inn
í lokabaráttuna. Staða flokka fyrir þessar kosningar
er líklega sú að allir telja sig geta sótt meira. Útspil
Pírata um vinstristjórn fellur vel að markhópi Vinstri
grænna og með því skapar flokkurinn sér sterkustu
stöðuna þeim megin pólitíkur, jafnvel þótt frum
kvæðið hafi verið Pírata.
Samfylkingin var í þröngri stöðu, en kannski
ekki mörg sóknarfæri að finna í því að gangast inn á
slíkt bandalag. Spurningin um hvort flokkurinn lifi
kosningarnar af yfirleitt er líklegust til að skila fylgis
bata á lokametrunum.
Björt framtíð hafði mestu að tapa á því að hefja
slíkar viðræður. Það virðist hafa verið marktæk
hreyfing fylgis til þeirra vegna andstöðu við búvöru
samninga. Líklegt er að það fylgi tilheyri frekar frjáls
lyndum kjósendum en mjög vinstrisinnuðum.
Frá því að viðræður hófust hefur í raun bara verið
gerð ein könnun sem er að öllu leyti tekin eftir útspil
Pírata, en það er könnun Fréttablaðsins sem birtist
á miðvikudag. Sú könnun, með öllum þeim fyrir
vörum sem gilda um kannanir, sýndi fylgissveiflu frá
Bjartri framtíð til Viðreisnar. Könnun sem birt var
í kosningaþætti Stöðvar 2 í gær og í Fréttablaðinu í
dag er viðbót við þá könnun og bendir til að útspil
um vinstristjórn hefur fremur dregið úr fylgi Pírata
og Bjartrar framtíðar. Þetta útspil virðist hafa skerpt
línur og fært stjórnarflokkunum vopn. Einkum Sjálf
stæðisflokknum.
Hitt er svo annað að ekkert liggur fyrir um hversu
sterkur vilji er til þessa hjónabands. Yfirlýsing flokk
anna í gær eftir viðræður þeirra á milli fól ekki í sér
miklar skuldbindingar. Ef það hefði verið skýr vilji
þessara flokka að fara með ríkari skuldbindingar
inn í þessar kosningar hefði hún þurft að vera mun
afdráttarlausari, en eftirspurnin virðist minni en
þessir flokkar gerðu sér vonir um.
Skoðanakönnun blaðsins í dag bendir ekki til þess
að hægt verði að mynda vinstri stjórn þeirra flokka
sem rætt hafa saman. Jafnvel þótt skekkjumörk
könnunarinnar væru þeim í hag eða hreyfing fylgis
þeim hagstæð á lokametrum kosninga, yrði slíkur
meirihluti fremur tæpur.
Það má því búast við flókinni stöðu eftir kosningar
miðað við kannanir. Fyrirvarinn er þó sá að rann
sóknir sýna að vaxandi hluti kjósenda gerir ekki fylli
lega upp hug sinn fyrr en í kjörklefanum.
Hjónaband án
skuldbindinga
Björt framtíð
hafði mestu
að tapa á því
að hefja slíkar
viðræður. Það
virðist hafa
verið mark-
tæk hreyfing
fylgis til þeirra
vegna and-
stöðu við
búvörusamn-
inga. Líklegt
er að það fylgi
tilheyri frekar
frjálslyndum
kjósendum en
mjög vinstri-
sinnuðum.
Sér grefur gröf
Samsteypublokk stjórnarand-
stöðuflokka á þingi ætlar að reyna
að mynda ríkisstjórn fái þeir
meirihluta þingsæta á morgun.
Eins og skoðanakannanir líta út
eru tveir flokkar nokkuð stönd-
ugir á meðan þeir þurfa að treysta
á tvo örflokka sér til halds og
trausts. Samfylkingin ætlar sér
sem sagt að fara inn í ríkisstjórn
með um 6 prósenta fylgi og fjóra
þingmenn kjörna. Það er segin
saga að stjórnarflokkar tapa á veru
í ríkisstjórn. Því gæti farið svo að
ný ríkisstjórn vinstriflokkanna,
sem sæti á ábyrgð Samfylkingar,
yrði hennar banabiti. Flokkurinn
mun ekki standast þá þolraun.
Skrímsladeildin virk
Eftir að Bjarni Benediktsson
og Sigurður Ingi Jóhannsson
mynduðu nýja ríkisstjórn í apríl
hafa hægrimenn ekki viljað ræða
þá staðreynd að bæði formaður
og varaformaður flokksins höfðu
tengsl við aflandsfélög í alræmd-
um skattaskjólum. Vona þeir að
fenni fljótt í þau spor. Þegar það
hefur borið á góma hafa menn
iðulega sagt að nú þurfi menn að
horfa fram á veginn. Eftir hrunið
töluðu hægrimenn mikið um að
líta ekki í baksýnisspegla heldur
halda ótrauð áfram. Baksýnis-
speglar væru ekki til þess fallnir að
hjálpa til. Síðan gerast þau undur
og stórmerki að menn fara að
dreifa fimm ára gömlum fréttum
um Smára McCarthy og skjöl
Wikileaks. sveinn@frettabladid.is
2 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r16 S k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
8
-C
A
C
8
1
B
1
8
-C
9
8
C
1
B
1
8
-C
8
5
0
1
B
1
8
-C
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K