Morgunblaðið - 01.10.2015, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 230. tölublað 103. árgangur
ÉG GERI BARA
ÞAÐ SEM MÉR
FINNST RÉTT
Í MATAR-
VÍKING TIL
BRETLANDS
HVERT FARA
ÁNAMAÐKAR
ÞEGAR FRYSTIR?
VIÐSKIPTAMOGGINN BÆKUR HEIÐU BJARKAR 10RAGNA LEIRKERASMIÐUR 18
Verði veiðar Íslendinga á makríl á
næsta ári í samræmi við ráðgjöf Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins, ICES,
og hlutfall Íslendinga af heildinni
óbreytt hefur það mikið tekjutap í
för með sér. Verulegur samdráttur
er lagður til í makrílveiðum og gæti
útflutningsverðmæti í makríl
minnkað um 6,3 milljarða króna,
samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Útflutningsverðmæti í kolmunna
gæti minnkað um 570 milljónir
króna, en aukist í norsk-íslenskri
síld um 760 milljónir.
Mikil óvissa
Fyrirvara verður að hafa á þess-
um tölum þar sem aðstæður eru
fljótar að breytast á mörkuðum og
óvissan mikil. Í ár hefur viðskipta-
bann Rússa t.d. sett strik í reikn-
inginn í sölu sjávarafurða frá Ís-
landi.
ICES leggur til að heildarafli í
makríl fari ekki yfir 667 þúsund
tonn á næsta ári, en ráðgjöfin fyrir
þetta ár var upp á 906 þúsund tonn.
Útlit er hins vegar fyrir að aflinn
verði um 1.200 þúsund tonn. Í kol-
munna lækkar ráðgjöfin um 64 þús-
und tonn, en þar er útlit fyrir að
heildarafli ársins verði hátt í 500
þúsund tonn umfram ráðgjöf.
Í norsk-íslenskri síld er um lítils
háttar aukningu að ræða í ráðgjöf-
inni. »12
Mikið
tekjutap
í makríl
Lagt er til að afli
minnki verulega
Vertíð Hugað að trollinu á miðunum.
Ljósmynd/Viðar Sigurðsson
Takmarkanir
á arðgreiðslum í
nýju frumvarpi
sem á að leggja
fyrir Alþingi á
næstunni gætu
haft veruleg
áhrif á virði fé-
laga sem eru á
hlutabréfamark-
aði. Þetta segir
Sturla Jónsson,
endurskoðandi
hjá Grant Thornton og formaður FLE. Í sama
streng tekur forstjóri Kauphallarinnar, Páll
Harðarson, sem telur að staldra eigi við og
fara nánar yfir málið áður en breytingarnar
verði gerðar. »ViðskiptaMogginn
Arðgreiðslur gætu verið
takmarkaðar með löggjöf
Kauphöll Íslands
Kennarar og nemendur hins fræga
Shongshan Shaolin kung fu-skóla
sýndu hina ævafornu bardagalist
og ekkert væri. Þá voru einnig tón-
listaratriði þar sem fjöldi lista-
manna kom fram.
kung fu á sýningu í Háskólabíói í
gær. Á sýningunni var einum nem-
andanum lyft upp með spjótum eins
Morgunblaðið/Eggert
Kung fu-meistarar sýndu listir sínar
Skúli Mogensen, for-
stjóri og eigandi WOW air,
segir að flækjustig í
stjórnkerfinu og hæga-
gangur af völdum þess
muni valda íslensku sam-
félagi 100 til 200 milljarða
tjóni á næstu fimm árum.
Vísar hann þar til þess að
stækkun Keflavíkur-
flugvallar og uppbygging
annarra innviða sem nauð-
synlegir eru til að mæta auknum straumi
ferðamanna til landsins gangi of hægt. „Það
er ótækt að þetta sé á höndum margra aðila í
stjórnsýslunni og ríkisstjórnin verður að
grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frek-
ara tjón,“ segir hann . »ViðskiptaMogginn
Hundraða milljarða tjón
af hægagangi stjórnvalda
Skúli Mogensen
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Mín skoðun er einfaldlega sú að
þetta sé vitlaus nálgun. Það þarf að
taka Þorlákshöfn meira inn í mynd-
ina. Hönnuðir vinna eftir því sem
fyrir þá er lagt. Skoða þarf málin
mun betur og láta reynsluna tala. Ég
vil ekki dæma Landeyjahöfn úr leik
en hún hefur bara sýnt að hún dugar
ekki allt árið.“
Þetta segir Sævar M. Birgisson
skipaverkfræðingur, sem var þar til
nýverið í starfshópi um hönnun og
smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju.
Hann segist lítil áhrif hafa getað
haft á þá stefnu sem hönnun ferj-
unnar tók. „Það var búið að negla
þetta allt niður,“ segir Sævar, sem
telur að staldra þurfi allrækilega við.
Menn verði að viðurkenna að mistök
hafi verið gerð við hönnun Landeyja-
hafnar og ekki sé hægt að bjarga því
með nýju skipi.
Svipaðrar skoðunar er Ásmundur
Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurkjördæmi. Hann
segist lengi hafa haft efasemdir um
Landeyjahöfn og við hönnun nýrrar
ferju sé einblínt um of á þá höfn. Í
verstu veðrum eigi hún að sigla til
Þorlákshafnar og það sé áhyggju-
efni. Undir þessar áhyggjur tekur
Páll Jóhann Pálsson, þingmaður
Framsóknar í sama kjördæmi.
Fer úr 65 í 69 metra
Vegagerðin er með til skoðunar að
lengja nýja ferju um fjóra metra frá
því sem farið var af stað með, eða úr
tæpum 65 metrum í tæpa 69 metra.
Herjólfur er rúmir 70 metrar að
lengd. Hönnun átti að vera lokið í
febrúar sl. en hefur tafist þar sem
prófanir á líkani ferjunnar sýndu
ekki fullnægjandi niðurstöður.
Friðfinnur Skaftason, formaður
starfshópsins, segir hönnunina nú
vera á lokastigi og byrjað sé að und-
irbúa útboð um smíði ferjunnar.
Ekki sé þó tímasett hvenær útboð
verði auglýst en smíði geti vonandi
hafist á næsta ári.
„Þetta er vitlaus nálgun“
Verkfræðingur hætti í starfshópnum Lengja á Eyjaferjuna um fjóra metra
MNý Vestmannaeyjaferja »6
Ekki hægt að reisa bygg-
ingar sem raska öryggi
„Við rekum flugvöll í Vatnsmýrinni og það
þarf að taka tillit til þess. Það er ekki hægt
að skipuleggja eða reisa byggingar af þeirri
gerð að það raski öryggi flugsins,“ sagði Ólöf
Nordal innanríkisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær. S8 ehf. hefur uppi áform
um að byggja risahótel á 17.500 fermetrum á
lóð við gatnamót Hringbrautar og Nauthóls-
vegar.
Innanríkisráðherra var gestur Samtaka
eldri sjálfstæðismanna á fundi í Valhöll í gær.
Þar sagði hún m.a.: „Varðandi lokun neyð-
arbrautarinnar vil ég taka fram að það er
innanríkisráðherra sem þarf að taka ákvörð-
un um slíka lokun. Sú ákvörðun hefur ekki
verið tekin. Á meðan ráðherra hefur ekki tek-
ið slíka ákvörðun er flugvöllurinn áfram þar
sem hann er.“ »4
Morgunblaðið/Þórður
Flug Miklar framkvæmdir í undirbúningi.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri fagnar nýju frumvarpi um skil
á ársreikningum, enda sé með því
tekið af meiri festu á kennitöluflakki
en dæmi séu um á Íslandi.
Kennitöluflakk felur gjarnan í sér
að fyrirtæki eru stofnuð utan um
rekstur til að selja þjónustu, án þess
að nokkurn tímann sé greitt fyrir að-
föng eða staðið í skilum með opinber
gjöld. Slík óvirk fyrirtæki hafa sam-
kvæmt núverandi reglum ekki þurft
að skila ársreikningi, enda liggi
reksturinn niðri. Með nýja frumvarp-
inu mun það breytast.
Skúli Eggert segir dæmi um að
fyrirtæki í mannvirkjagerð og ferða-
þjónustu noti keðju undirverktaka til
að komast hjá sköttum. Þá séu falskir
reikningar hluti af skattsvikunum.
„Í þessum greinum er farið að bera
á hlutum sem við höfum ekki séð í
miklum mæli til þessa. Til dæmis að
reikningar gangi kaupum og sölum,“
segir Skúli Eggert.
baldura@mbl.is »14
Stöðvi
kenni-
töluflakk
Reikningar ganga
kaupum og sölum