Morgunblaðið - 01.10.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
Hann óttast að Landeyjahöfn verði
áfram lokuð mánuðum saman yfir
veturinn og því sé áhyggjuefni hvern-
ig ferjunni muni reiða af í siglingum
til Þorlákshafnar. Þangað sé ætlunin
að sigla í verstu veðrum. Segist Ás-
mundur taka undir áhyggjur skipa-
verkfræðinga og reyndra skipstjóra
úr Eyjum af Landeyjahöfn.
„Ég vil gera það besta fyrir Eyjar
sem hægt er en held við séum ekki á
réttri leið núna. Það er líka með ólík-
indum hvað Vegagerðin og forsvars-
menn siglinga hlusta lítið á rök
reyndra manna í þessu máli. Það er
alveg sama hvað kemur upp, menn
Þingmenn Suðurkjördæmis voru á
ferðinni í Eyjum sl. mánudag og
fengu þar kynningu á stöðu verkefn-
isins um nýja Vestmannaeyjaferju.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir það hafa
komið sér á óvart hve mikill tími og
vinna hefur farið í hönnunina. Nú sé
orðið ljóst að upphafleg hönnun gangi
ekki upp.
„Ég er einn þeirra sem hafa haft
efasemdir um Landeyjahöfnina og
hef marglýst því yfir. Það var vissu-
lega löngu tímabært að skipta um
skip en höfnin er vandamálið,“ segir
Ásmundur.
hlaupa alltaf í skotgrafirnar,“ segir
Ásmundur.
Verið að hanna hið ómögulega
Páll Jóhann Pálsson, þingmaður
Framsóknarflokksins og fv. skip-
stjóri, fagnar því að til standi að
lengja nýja Vestmannaeyjaferju. Allt
líti út fyrir að hlusta eigi meira á
reynda skipstjóra og sérfræðinga
sem haldið hafi fram að ný ferja hafi
til þessa verið hönnuð of lítil. Segist
Páll hafa viljað sjá að ferjan yrði einn-
ig breikkuð og með meiri ganghraða.
„Ég tek undir með þeim sem hafa
sagt að búið sé að eyða allt of miklu
púðri og peningum í að hanna hið
ómögulega. Það kom á daginn að
hönnunin gekk ekki upp og því var
farið í að lengja skipið um eina bíl-
lengd,“ segir Páll Jóhann.
Segist hann hafa hvatt til þess að
hanna ferjuna þannig að hún geti
siglt til Þorlákshafnar í slæmu veðri.
Nauðsynlegt sé að vel fari um far-
þega á þeirri leið. Það muni um hvern
sentímetra í breidd skipsins. Ekki sé
ráðlegt að hanna skip eingöngu fyrir
Landeyjahöfn heldur fley sem fer bil
beggja. bjb@mbl.is
„Tímabært að skipta um skip en
Landeyjahöfn er vandamálið“
Þingmenn kjördæmisins hafa
áhyggjur af samgöngum til Eyja
Ásmundur
Friðriksson
Páll Jóhann
Pálsson
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sævar M. Birgisson skipaverk-
fræðingur starfaði um tíma í
starfshópi um hönnun og smíði
nýrrar Vestmannaferju. Í samtali
við Morgunblaðið segist hann hafa
getað haft lítil áhrif á þá stefnu
sem hönnunin tók og ekki haft
svigrúm eða tíma til að beita sér
sem skyldi.
„Það var búið að negla þetta allt
niður,“ segir Sævar, sem telur að
staldra þurfi allrækilega við í mál-
inu áður en lengra er haldið. Menn
verði að viðurkenna að mistök hafi
verið gerð við hönnun Landeyja-
hafnar og ekki sé hægt að bjarga
því með nýju skipi.
Nálgunin er vitlaus
„Ég hef ekki trú á því að menn
leysi öll vandamál Landeyjahafnar
með einu skipi,“ segir hann og tel-
ur að meira tillit þurfi að taka til
Þorlákshafnar við hönnun nýrrar
ferju. Í þessari hönnunarvinnu sé
búið að einblína um of á Landeyja-
höfn. Nær væri að hanna öflugt
skip til siglinga í Þorlákshöfn og
nota smærri skip í Landeyjahöfn
þegar veður og aðstæður leyfa.
Sævar segist ekki vera að gagn-
rýna þá sem setið hafi í starfs-
hópnum, þar hafi allir gert sitt
besta og reynt að skila af sér góðri
vinnu, þannig að hannað yrði sem
best skip til að sigla í Landeyja-
höfn.
„Mín skoðun er einfaldlega sú að
þetta sé vitlaus nálgun. Það þarf að
taka Þorlákshöfn miklu sterkar inn
í myndina. Hönnuðir vinna eftir því
sem fyrir þá er lagt. Skoða þarf
málin mun betur og láta reynsluna
tala. Ég vil ekki dæma Landeyja-
höfn úr leik en hún hefur bara sýnt
að hún dugir ekki allt árið.“
Skynsamlegra að fara hægar
Sævar bendir á að flutnings-
þörfin til Eyja sé stöðugt að
aukast. Það sé í raun skelfilegt fyr-
ir fólk og fyrirtæki í Eyjum að búa
við þá óvissu sem ríkir í samgöngu-
málunum.
„Um leið er ég dálítið hissa á að
sjá hvað bæjaryfirvöld í Eyjum
leggja mikla áherslu á að hespa
þetta af og vilja ekki staldra við.
Það væri skynsamlegra að fara sér
hægar og greina betur vandann en
gert hefur verið. Hætt er við að
ekki verði hlaupið til og byggð önn-
ur ný ferja fyrir Vestmannaeyjar
ef sú sem nú stendur til að byggja
reynist ekki henta. Það er búið að
verja gríðarlegum fjármunum í
þetta og því enn mikilvægara að
menn vandi sig. Þetta snýst ekki
um að leysa vanda Landeyjahafnar
heldur samgöngumál Vestmanna-
eyinga,“ segir Sævar að endingu.
Taka þarf
meira tillit til
Þorlákshafnar
Skipaverkfræðingur segir ferjuna
ekki bjarga mistökum í Landeyjahöfn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skipaverkfræðingur Sævar M.
Birgisson hefur sínar efasemdir.
Starfshópurinn
» Sævar var af innanríkis-
ráðherra skipaður í starfshóp-
inn á vormánuðum 2013,
ásamt Friðfinni Skaftasyni,
verkfræðingi í innanríkisráðu-
neytinu, Sigurði Ás Grétars-
syni, forstöðumanni siglinga-
sviðs hjá Vegagerðinni, og
Andrési Þ. Sigurðssyni yfir-
hafnsögumanni Vestmanna-
eyjahafnar.
» Jóhannes Jóhannesson
skipaverkfræðingur hefur verið
starfshópnum innan handar
með ráðgjöf.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Enn stendur yfir vinna við hönnun á
nýrri Vestmannaeyjaferju. Miðað
við fyrstu áætlanir átti útboð á smíði
ferjunnar að fara fram á þessu ári.
Ljóst er að það tefst fram á næsta ár.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa hönnuðir nú lengt skip-
ið um eina fjóra metra og á það að
verða nærri 69 metra langt í stað um
65 metra í fyrri hönnunarlýsingu.
Breiddin er áfram sú sama, um 15
metrar, en til samanburðar er Herj-
ólfur rúmlega 70 metrar að lengd og
16 m breiður. Er þetta gert til að
skipið henti betur til siglinga í Land-
eyjahöfn og ráði við meiri ölduhæð.
Friðfinnur Skaftason, formaður
starfshóps um hönnun og smíði ferj-
unnar, segir að vinna við lokahönnun
standi yfir og byrjað sé að undirbúa
útboð um smíði nýs skips. Ekki sé þó
hægt að tímasetja hvenær útboð
verði auglýst, að öðru leyti en því að
það verði á næstu mánuðum og smíði
geti hafist á næsta ári. Allt fari þetta
eftir fjármögnun og tilboðum sem
fást.
Lengt eftir prófanir
„Verkið hefur vissulega tafist mið-
að við upphaflegar áætlanir en fjöl-
margir þættir skýra það. Ekki hvað
síst vilja menn vera vissir um getu
ferjunnar áður en smíði hefst. Próf-
anir í tengslum við hönnunina hafa
farið fram og núna verða fram-
kvæmdar viðbótarprófanir. Það er
verið að reyna að tryggja það að ferj-
an geti ráðið við þessar aðstæður,“
segir Friðfinnur en eftir ítarlegar
prófanir var að hans sögn ákveðið að
leggja til að ferjan yrði lengd.
Hann segir að með lengingu ferj-
unnar sé talið að hún henti betur fyr-
ir innsiglinguna í Landeyjahöfn.
Lengingin muni ekki auka kostnað
við smíðina að neinu ráði. Um leið
muni flutningsgeta ferjunnar
aukast.
„Við hönnunina hefur verið reynt
að hámarka þann tíma sem skipið
siglir í Landeyjahöfn, verkefnið
gengur út á að hanna skip sem ræður
eins vel og hægt er við þessar að-
stæður. Jafnframt hefur alltaf verið
gengið út frá því að skipið geti siglt
til Þorlákshafnar, en er ekki for-
senda fyrir hönnuninni. Við ætlum
ekki að gera skipið óhæft til þeirra
siglinga,“ segir Friðfinnur.
Kostnaðurinn 4-5 milljarðar
Nýrri ferju er ætlað að taka 75 bíla
en Herjólfur tekur í dag 56 bíla. Koj-
ur verða mun færri, eða 32 í stað 92 í
Herjólfi. Ferjan mun taka svipaðan
fjölda farþega, eða um 400 talsins, en
heimilt að fjölga þeim í 550 yfir sum-
artímann. Friðfinnur segir að áfram
sé gert ráð fyrir að ferjan geti tekið
vörubíla með flutningagáma eins og
Herjólfur hafi gert á bíladekki.
Áætlaður kostnaður við hönnun og
smíði nýrrar ferju er á bilinu 4-5
milljarðar króna. Friðfinnur segir
þær tölur ekki hafa breyst mikið þó
að til standi að lengja ferjuna.
Á miðju síðasta ári samdi Vega-
gerðin við norska fyrirtækið Polar-
konsult um hönnun ferjunnar, þeirri
vinnu átti að ljúka í febrúar sl. sem
var þó sögð seinkun frá upphaflegum
áætlunum um lok hönnunar í nóvem-
ber 2014. Í samningi Vegagerðarinn-
ar er kveðið á um 800 þúsund evrur í
hönnunarkostnað, eða jafnvirði um
115 milljóna króna.
Að sögn Sigurðar Áss Grétarsson-
ar hjá Vegagerðinni stefnir í að
kostnaður Polarkonsult verði um 920
þúsund evrur, eða um 130 milljónir
króna. Aukningin sé vegna endur-
bóta á hönnun ferjunnar og frekari
rannsókna. Sigurður segir viðbótar-
kostnað við útboðsgögn, ráðgjöf og
eftirlit vera um 28 milljónir.
Ný Bráðabirgðateikning af nýrri Vestmannaeyjaferju, áður en ákveðið var að lengja hana um rúma fjóra metra.
Ný Eyjaferja lengd
um fjóra metra
Talið henta betur í Landeyjahöfn Enn tefst hönnunin
Morgunblaðið/RAX
Herjólfur Erfiðlega hefur gengið að sigla til Landeyjahafnar að vetri til.
Frá því að Landeyjahöfn var tek-
in í notkun fyrir fimm árum hef-
ur verið ljóst að nýja ferju þurfi
fyrir Herjólf. Ekki er þó gert ráð
fyrir fjármunum til smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju í frumvarpi
til fjárlaga fyrir árið 2016. Í
greinargerð með frumvarpinu
segir m.a.:
„Nú er lokið hönnun á nýrri
ferju og er gert ráð fyrir að í
framhaldinu verði hugað að
undirbúningi útboðs. Í því sam-
bandi verður áfram til skoðunar
hvaða hagkvæmustu leiðir eru í
boði varðandi eignarhald og
rekstur á ferjunni. Ekki er því í
frumvarpinu gert ráð fyrir til-
tekinni fjárveitingu vegna þess-
ara áforma.“
Ekki í fjár-
lögum 2016
NÝ EYJAFERJA