Morgunblaðið - 01.10.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Full búð
af undirfatnaði og
náttfatnaði frá
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
30% afsláttur
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Buxna,- úlpu- og
leðurjakkasprengja
Skrifstofur okkar
verða lokaðar
föstudaginn 2. október
vegna jarðarfarar
Jens Ingólfssonar
H
a
u
ku
r
1
0
.1
5
Skoðið laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Ný peysu
sending
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stefnt er að uppsetningu öflugs
þráðlauss örbylgjusambands fyrir
netsamskipti í dreifbýli Fljótsdals-
héraðs fyrir árslok.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs sam-
þykkti 28. september að fela Birni
Ingimarssyni, bæjarstjóra, að ganga
frá samningi við Rafey á Egils-
stöðum um aðkomu sveitarfélagsins
að uppsetningu kerfisins. Rafey mun
annast uppsetningu og rekstur þess.
Áætlað er að sveitarfélagið leggi um
tíu milljónir króna í verkefnið og á
féð að koma af fjárhagsáætlun
næsta árs.
Örbylgjukerfið mun m.a. ná til
Skriðdals, Jökuldals, Hrafnkelsdals,
Jökulsárhlíðar, Valla, Hróarstungu,
Hjaltastaðaþinghár, Eiðaþinghár og
Úthéraðs.
Björn sagði að bæði bændur og
ferðaþjónusta knýðu á um öfluga
nettengingu en netsamband sé víða
slæmt í dreifbýlinu. „Það er ekki bú-
andi við ástandið eins og það er,“
sagði Björn. „Aðalmálið er að fólk
komist í netsamband.“
Ljósleiðari er framtíðin
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs segir í
fundargerð að örbylgjukerfið komi
ekki í stað ljósleiðarakerfis.
Sveitarfélagið mun vinna áfram að
því að unnt verði að tengja allt sveit-
arfélagið við ljósleiðara hið fyrsta, í
samræmi við tillögu nefndar á veg-
um innaríkisráðuneytisins. Björn
bæjarstjóri sagði að framtíð-
arlausnin fælist í ljósleiðaravæð-
ingu, en ljóst væri að hún kæmi ekki
alveg á næstunni. Hann sagði að til-
laga starfshóps innanríkisráðuneyt-
isins hefði verið um ljósleiðaravæð-
ingu á næstu fimm árum. Alþingi
ætti eftir að taka afstöðu til þeirra
tillagna.
„Við getum ekki boðið íbúunum
upp á að bíða enn í fimm ár eftir því
að komast í ásættanlega tengingu.
Þess vegna ákváðum við að fara
þessa leið,“ sagði Björn.
Mjög víðfeðmt svæði
Eyjólfur Jóhannsson, rafmagns-
tæknifræðingur hjá Rafey, sagði að
20-30 örbylgjusenda þyrfti til að
þjóna þessu víðfeðma svæði. Efst úr
Hrafnkelsdal og út að sjó eru t.d. um
100 km í beinni loftlínu og tugir kíló-
metra á milli sumra bæja. „Það er
komin ferðaþjónusta á ótrúlegustu
stöðum og hún er mjög háð því að
hafa netsamband,“ sagði Eyjólfur.
Hann sagði að fólki yrði boðið að
velja á milli sambands sem er sam-
bærilegt við ADSL-tengingu (12-15
Mb/s) og ljósnets (50 Mb/s). Hægt
verður að bjóða fyrirtækjum, t.d.
þeim sem eru með gistiþjónustu, öfl-
ugri tengingu. Eyjólfur sagði að erf-
itt gæti reynst að koma einstaka
bæjum í öflugt netsamband og því
ekki hægt að lofa þessum valkostum
á öllum bæjum.
Viðskiptavinir munu leigja búnað
sem þarf til að tengjast kerfinu. Lít-
ið loftnet verður sett utan á húsið og
við það tengdur beinir (router).
Þráðlaust netsamband
á Fljótsdalshéraði
20-30 örbylgjusendar settir upp í dreifbýlinu fyrir árslok
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Klaustursel á Jökuldal Sett verður upp örbylgjukerfi í dreifbýli Fljótsdals-
héraðs í haust og með því munu bæirnir komast í öflugra netsamband.
Þó nokkru
fleiri karlmenn
hafa sótt með-
ferð hjá SÁÁ
en konur en af
þeim 7,6 pró-
sentum núlif-
andi Íslend-
inga, 15 ára og
eldri, er hafa
komið í með-
ferð til SÁÁ
eru 10,6 prósent karlmenn en ein-
göngu 4,5 prósent konur.
Þegar litið er til aldurshópa
kemur í ljós að 14,6 prósent núlif-
andi karlmanna á aldrinum 50-59
ára hafa farið í meðferð og 14,1
prósent karla á aldrinum 60-69
ára.
Hjá konum hafa hlutfallslega
flestar komið úr aldurshópnum 60-
69 ára, 6,1%, en 6,0% á aldrinum
50-59 ára. Alls höfðu 23.580 ein-
staklingar leitað meðferðar hjá
SÁÁ í árslok 2014.
Fleiri karla
í meðferð
Meðferðarheimili
SÁÁ
Bátasmiðjan Rafn í Kópavogi af-
henti í gær Hjálparsveit skáta í
Kópavogi nýjan hraðgengan björg-
unarbát, sem mun auka úthald og
drægni sveitarinnar í björgun á sjó.
Björgunarbáturinn ber nafnið
Stefnir og er 10 metra langur.
Hann er fyrstur sinnar tegundar
hér á landi en Hjálparsveit skáta í
Kópavogi hefur unnið með báta-
smiðjunni að þróun hans í tvö ár.
Björgunarbátafloti Íslendinga
hefur hingað til byggst upp á not-
uðum bátum sem fengist hafa er-
lendis og er sá yngsti 17 ára og sá
elsti 37 ára. Nýi leitar- og björg-
unarbáturinn boðar því nýja tíma í
björgunarmálum.
Nýr björgunarbátur kominn í Kópavog
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stefnir Nýi leitar- og björgunarbáturinn á siglingu í gær.
mbl.is