Morgunblaðið - 01.10.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
KYN
NING
AR
TILB
OÐ
Nú fæst Beta hjá Iðnvélum!
- Iðnvélar hafa tekið við umboði fyrir
hin heimsþekktuBeta verkfæri
Verkfæraskápur C24S/7
147 verkfæri - EASY
• 7 skúffur (588x367 mm) á sterkum renni-
brautum
• Skúffubotn varinnmeðmjúkri gúmmímottu
• 4 hjól 125 mm
• 2 hjól föst og 2 með beygju, bremsa
• Central-læsing fyrir skúffur á framhlið
• Thermoform-vinnuborð
• Ber allt að 800 kg þunga
• Flösku-/brúsahaldari á hlið.
• Hægt að bæta við pappírsrúlluhaldara
148.000 kr. m. vsk.
(fullt verð 187.317 kr.)
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Af hverju spinna köngulærvefi? Hvert fara ánamaðk-ar þegar frostið kemur?Hvar gera hunangsflug-
urnar sér bú? Hvað hafa fiðrildalirf-
ur mörg augu? Ekki er víst að allir
sem komnir eru til vits og ára hafi á
takteinum svör við þessum og álíka
spurningum úr dýraríkinu. Þeir
gætu aftur á móti orðið margs vísari
um köngulær, ánamaðka, hunangs-
flugur og fiðrildi af lestri Halló-
bókanna hennar Heiðu Bjarkar
Norðfjörð, sem Skrudda gaf nýverið
út. Dýraríkið er þó ekki eingöngu í
brennidepli hjá höfundinum um
þessar mundir, því á sama tíma gaf
bókaforlagið út eftir hana Stafrófið
fyrir litlu börnin.
Heiða Björk semur ekki aðeins
sögurnar heldur myndskreytir hún
þær líka. Hún hefur áður sent frá sér
barnabókina Lalli og litakastalinn,
sem Salka gaf út 2012. „Mér fannst
svo skemmtilegt að vinna að henni að
ég ákvað að gera fleiri bækur og var
strax komin með ýmsar hugmyndir
áður en hún kom út,“ segir Heiða
Björk, sem leggur upp með að bæk-
urnar hafi fræðslugildi, en séu með
húmor í bland.
„Krakkar eru svo forvitnir og
spyrja mikið um allt mögulegt í um-
hverfinu. Halló-bækurnar svara
ýmsum spurningum um flugur og
skordýr sem þeir sjá í görðum og úti
í náttúrunni. Þar sem sumum stend-
ur stuggur af þessum meinlausu dýr-
um reyni ég að draga upp af þeim já-
kvæða og fallega mynd. Hugmyndin
að fyrstu bókinni þar sem börnum er
kennt að þekkja litina kviknaði bara
af því að ég átti svo mikið af alls kyns
vatnslitum.“
Skemmtilegar fígúrur
Heiða Björk hefur teiknað frá
því hún man eftir sér og alltaf haft
sérstaklega gaman af að teikna alls
konar fígúrur. Hún á eldri bróður og
tvö yngri systkini, sem hún teiknaði
fyrir og saman styttu þau sér stund-
irnar við að skálda alls konar sögur
kringum fígúrurnar. „Ég og æsku-
vinkona mín gerðum saman mynda-
sögur þegar við vorum átta ára, ljós-
rituðum og heftum saman um tíu
blöð og gengum síðan í hús og reynd-
um að selja. Mig minnir að við höfum
haft einhverja tíkalla upp úr krafsinu
og sögurnar hafi aðallega verið um
álfa, sem lentu í alls lags ævintýrum,“
rifjar hún upp.
Sem smástelpa og varla læs hélt
Heiða Björk mest upp á bækurnar
um Herramennina og Einar Áskel,
sem allir eru litríkir og dregnir upp
með einföldum línum eins og sögu-
hetjurnar í hennar bókum. Þegar
hún varð aðeins eldri urðu Ottó nas-
hyrningur og Gúmmí Tarsan eftir
Ole Lund Kirkegaard hennar eft-
irlætisbækur. Spurð segist hún ekk-
ert hafa hugsað út í hvort hún muni
síðar meir gera bækur fyrir aðeins
stálpaðri börn en Halló-bækurnar
höfða til.
Hermínur og hunangsflugur
„Þær eru ætlaðar fyrir þriggja
til sjö ára, sem mér finnst mjög
skemmtilegur aldur, en fólk getur
auðvitað líka lesið þær með yngri
börnum. Aftast í bókunum eru
nokkrar spurningar úr sögunum,
Smádýr í stórum
hlutverkum
Heiða Björk Norðfjörð bæði skrifar og myndskreytir barnabókasyrpu um smádýr-
in í umhverfinu. Hún segir bækurnar, sem ætlaðar eru yngstu kynslóðinni, byggj-
ast á staðreyndum en vera með húmor í bland.
Ási ána-
maðkur
Kata könguló
Fréttavefurinn Hvatinn sérhæfir sig í
vísindafréttum héðan og þaðan og er
áherslan á faglegan en jafnframt
skemmtilegan fréttaflutning. Efni
vefsins er flokkað undir smásjá, um-
hverfið, áhugavert og fróðleiksmola
og kennir margra grasa í öllum
flokkum. Á tímum þegar fólk er mjög
upptekið af að taka sjálfsmyndir,
svokallaðar sjálfur, er til dæmis gott
að vita að þær eru ekki með öllu
hættulausar eins og Hvatinn upp-
lýsir.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að fleiri
deyja vegna sjálfsmynda en hákarla-
árása. Það sem af er ári hafa átta
manns dáið eftir hákarlaárás, þriðj-
ungi fleiri hafa dáið við að taka
sjálfu. Tekið er fram að myndatök-
unni sem slíkri sé ekki um að kenna,
heldur verði mörg slysin vegna þess
að myndasmiðurinn er svo upptekinn
af því að smella af að hann gleymir
að vara sig á bílum eða frá falli.
Að baki Hvatans standa vísinda-
konurnar Anna Veronika Bjarkadóttir
og Edda Olgudóttir.
Vefsíðan www.hvatinn.is
AFP
Sjálfur Sjálfsmyndataka sem slík er ekki hættuleg en umhverfið getur verið
varhugavert. Túristinn hættir sér a.m.k. ekki of nærri þessum gíraffa í Taílandi.
Vísindafréttir héðan og þaðan
Á Café Rosenberg má ganga að lif-
andi tónlist vísri flest kvöld vikunnar.
Hundruð ólíkra tónlistarmanna og
hljómsveita hafa troðið þar upp í ár-
anna rás og verið mörgum gleðigjaf-
ar.
Í kvöld kl. 21 stígur tónlistarkonan
Edda Borg á svið ásamt hljómsveit
sinni og leikur lög af geisladiskinum
No Words Needed frá 2013, í bland
við ný lög. Auk hennar skipa hljóm-
sveitina Bjarni Sveinbjörnsson, Frið-
rik Karlsson, Jóhann Hjörleifsson,
Sigurður Flosason og Þórir Úlfarsson.
Þar sem lifandi tónlistin ómar flest kvöld vikunnar
Edda Borg á
Rosenberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Edda Borg Ný og gömul lög í bland.
Í tilefni af starfslokum Trausta
Valssonar prófessors sem og út-
gáfu starfsævisögu hans, Mótun
framtíðar, verður opnuð samnefnd
sýning kl. 16 í dag í Þjóðarbókhlöð-
unni.
Undirtitill bókarinnar er Hug-
myndir – Skipulag – Hönnun og
fjallar hún aðallega um strauma og
stefnur sem ríkt hafa í skipulagi og
hönnun síðastliðin fimmtíu ár.
Trausti lauk bæði prófi í arkitekt-
úr og skipulagi við háskóla í Berlín
og Berkeley á miklum umbyltinga-
tímum í þessum fögum og kynntist
helstu hugmyndafræðingum þeirra.
Í bókinni segir hann frá helstu
skipulags- og rannsóknaverkefnum
starfsævi sinnar. Helstu þemun eru
þróun skipulags í Reykjavík og á
höfuðborgarsvæðinu, Íslands-
skipulag og byggðamál, sem og
breytingar á þróun byggðar í heim-
inum með hnattrænni hlýnun.
Mótun framtíðar – Sýning í Þjóðarbókhlöðunni
Hugmyndasaga skipulags og
hönnunar síðustu 50 árin
Straumar og stefnur Í bókinni Mótun framtíðar segir Trausti Valsson frá
helstu skipulags- og rannsóknaverkefnum starfsævi sinnar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.