Morgunblaðið - 01.10.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
POLLHELD
HLÝ STÍGVÉL!
ÍTÖLSK BARNASTÍGVÉL,
ULLARFÓÐRUÐ,
VATNSHELD OG LÉTT.
ÞRIGGJA LAGA
EINANGRANDI INNLEGG.
STÆRÐIR: 22–39
25%
AFSLÁTTUR
KAUPHLAUPSTILBOÐ
1.–5. OKTÓBER
Tilboðsverð: 4.496
Verð áður: 5.995
Sparaðu
á Kauphla
upi!
Á Íslandi eru 3.647 bílar með dís-
elvélinni sem verið hefur til um-
ræðu síðustu vikur vegna svindls á
útblástursprófunum. Þetta kemur
fram í upplýsingum sem Heklu,
umboðsaðila Volkswagen á Íslandi,
bárust frá þýsku samstæðunni
Volkswagen Group.
Í tilkynningu frá Heklu segir að
samstæðan vinni að því að leysa
vandamál við tiltekinn hugbúnað
sem notaður er í ákveðnum dísil-
vélum frá fyrirtækinu, nánar til-
tekið af gerðinni EA 189. Þá ítrek-
ar umboðið að öll ökutæki sem
þetta snertir séu engu að síður
fullkomlega örugg til aksturs.
Bílarnir hér á landi sem hafa
umrædda díselvél eru 1.129 fólks-
bílar, 348 atvinnubílar, 316 Audi-
bílar og 1.854 bílar af gerðinni
Skoda.
Volkswagen Group horfir til
þess að finna tæknilega lausn á
málinu sem verður kynnt þýskum
yfirvöldum í október.
Þegar þýsk yfirvöld hafa sam-
þykkt tæknilegu lausnirnar verða
þær útbúnar til innleiðingar innan
alls EES-svæðisins. Í kjölfarið
verður haft samband við hvern og
einn viðskiptavin sem málið snert-
ir og hann upplýstur um hvernig
hægt sé að bæta losunarbúnað
bílsins.
Á Íslandi
eru 3.647
„svindlbílar“
Bílarnir eru
öruggir í akstri
Morgunblaðið/Kristinn
Bílar Hekla hefur sent Volkswagen
Group fyrirspurn um „svindlbíla“.
Steinull á Sauðárkróki er umhverf-
isfyrirtæki ársins og uppbygging
Orku náttúrunnar á hraðhleðslu-
stöðvum fyrir rafbíla er framtak
ársins á sviði umhverfismála. Þetta
var tilkynnt á Umhverfisdegi at-
vinnulífsins sem haldinn var á Hilt-
on Reykjavík í gær.
Steinull, sem hóf starfsemi fyrir
30 árum, framleiðir steinullar-
einangrun þar sem að mestu er nýtt
innlent hráefni til framleiðslunnar.
Fyrirtækið nýtir einungis innlenda
endurnýjanlega raforku í fram-
leiðslunni. Undanfarin ár hefur
verið lagt kapp á að draga úr úr-
gangi og stór hluti hans er nú end-
urnýttur í framleiðsluferlinu. Þá
hefur fyrirtækið unnið að áhættu-
greiningum, forvörnum og úrbót-
um í vinnuumhverfinu. Fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins hafa
hlotið vottanir erlendra úttektar-
aðila fyrir gæði.
Orka náttúrunnar hefur að und-
anförnu byggt upp net hraðhleðslu-
stöðva á Suðvesturlandi frá Borg-
arnesi til Selfoss og hefur uppi
áform um frekari uppbyggingu
slíkra stöðva. Nú eru um 500 rafbíl-
ar á landinu sem geta nýtt stöðv-
arnar. Í rökstuðningi dómnefndar
kemur meðal annars fram að Orka
náttúrunnar hafi tekið þeirri áskor-
un sem felst í því að ein besta leiðin
til að draga úr útstreymi gróður-
húsalofttegunda sé að rafvæða
samgöngurnar.
Að umhverfisdegi atvinnulífsins
standa SA, Samorka, Samtök ferða-
þjónustunnar, Samtök fjármálafyr-
irtækja, SFS, SI og SVÞ.
Fengu umhverfisverðlaun
Umhverfisverðlaun Páll Erland, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar,
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Einar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullar, við afhendingu verðlaunanna í gær.
Steinull og Orka náttúrunnar fá viðurkenningar
Kringluskákmótið fer fram í dag,
fimmtudaginn 1. október, og hefst
það kl. 17:00. Víkingaklúbburinn
skákfélag, með aðsetur í Víkings-
heimilinu í Víkinni, heldur mótið í
samstarfi við markaðsdeild Kringl-
unnar. Áhorfendur eru velkomnir.
Gera má ráð fyrir að margir af
sterkustu skákmönnum þjóðarinnar
muni taka þátt í því.
Fyrirkomulag mótsins er þannig
að keppendur draga fyritækjaspjald
úr hatti, og keppandinn teflir síðan
fyrir fyrirtækið á mótinu. Skráningu
lýkur kl 12.00 á hádegi á mótsdag.
Tefldar verða 8 umferðir með 5 mín-
útna umhugsunartíma. Skákstjóri er
Haraldur Baldursson.
Teflt í Kringl-
unni í dag