Morgunblaðið - 01.10.2015, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Cameron,forsætis-ráðherra
Breta, gaf loforð
um að efnt yrði til
þjóðaratkvæðis um
ESB á næsta kjör-
tímabili, því sem er nú nýhafið.
Hann var þá í samstarfi við
Frjálslynda flokkinn. Forsætis-
ráðherrann taldi slíkt loforð
nauðsynlegt í aðdraganda kosn-
inga vegna uppgangs UKIP,
flokks Nigels Farage, sem
berst fyrir brottför úr ESB.
Loforðið var ódýrt þegar það
var gefið. Margt kemur til. For-
sætisráðherrann sagðist myndu
krefjast þess að Bretar endur-
heimtu hluta af töpuðu fullveldi
frá ESB og þann árangur
myndi hann leggja til grund-
vallar atkvæðagreiðslunni. Eft-
ir kuldalegar viðtökur á meg-
inlandinu hefur Cameron
útvatnað kröfur sínar mjög.
Í annan stað lýstu þáverandi
leiðtogar hinna stóru flokkanna,
Frjálslynda flokks og Verka-
mannaflokks, yfir andstöðu við at-
kvæðagreiðsluna. Kannanir sýndu
að engar líkur væru á að Íhalds-
flokkur Camerons næði hreinum
þingmeirihluta og því yrði honum
ómögulegt að efna loforðið.
En þvert á allar spár fékkst
hreinn meirihluti. Frjálslyndi
flokkurinn þurrkaðist næstum
út og Clegg flokksleiðtogi sagði
af sér því hlutverki í flokknum
og sama gerði Ed Miliband eftir
ósigur Verkamannaflokksins.
Cameron var, sem ungur
stjórnmálamaður, harður and-
stæðingur veru Breta í ESB.
Svo þroskaðist hann og fór að
umgangast enn fínna fólk en áð-
ur og því þrengdist um æsku-
hugsjónirnar.
Cameron sagði
því, þegar hann lof-
aði þjóðaratkvæði,
að hann myndi í að-
draganda þess
berjast fyrir áfram-
haldandi veru
Breta í ESB. Um þær mundir
sýndu kannanir að ríflegur
mieirihluti breskra kjosenda
myndi styðja áframhaldandi
veru í ESB. Nú hafa kannanir
breyst. Tvær þær nýjustu sýna
að meirihlutinn vill að Bretar
gangi úr ESB. Munurinn er þó
svo naumur að réttara er að tala
um að fylkingarnar séu nú jafn
stórar. Líklegt þykir að síðustu
hræringar í ESB-löndunum,
ekki síst flóttamannabylgjan
mikla sem brast á, séu helsta
skýring breyttrar afstöðu.
Talsmenn aðildar Breta að
ESB viðurkenna að um tölu-
verða sveiflu í viðhorfum sé að
ræða en benda á, að fyrst hún sé
ekki meiri, þótt svo mikið hafi
gengið á, sé augljóst að mál-
staður þeirra eigi enn vænlega
möguleika.
Það er eftirtektarvert, að
Corbyn, nýkjörinn foringi
Verkamannaflokksins, hefur
neitað að lýsa því yfir að hann
muni berjast fyrir áframhald-
andi aðild að ESB. Eftir mikinn
þrýsting frá flokksmönnum,
sem stundum eru kenndir við
„New Labour“ og Blair, sagðist
Corbyn alls ekki hafa ákveðið
að flokkurinn myndi berjast
gegn áframhaldandi aðild að
ESB. En lengra vildi flokks-
leiðtoginn ekki ganga á þeirri
stundu. Loforðið um þjóð-
aratkvæði er því orðið mun
spennuþrungnari atburður en
Cameron ætlaði þegar hann gaf
sitt taktíska loforð.
Óvissan um þjóðar-
atkvæði Breta um
ESB hefur vaxið
verulega}
Loforðið leyndi á sér
Tilkynningbandarísku
geimferðastofn-
unarinnar, NASA,
í fyrradag um að
miklar líkur væru
á því að rennandi
saltvatn sé að finna á Mars eru
merkileg tíðindi. Vatn er einn
af burðarásum lífs eins og við
þekkjum það á jörðinni, og því
hefur tilkynningin vakið vonir
um að hugsanlega hafi það eitt
sinn þrifist á Mars, ef það ger-
ir það ekki enn í einhverju
formi.
Rétt er þó að hafa í huga,
áður en of langt er farið, að til-
vist vatns ein og sér þarf ekki
að leiða af sér, að mannkynið
muni finna framandi líf á rauðu
plánetunni. Aðstæður á Mars
eru mun harðneskjulegri en
þær sem finnast á jörðunni,
þar sem hnötturinn er mun
lengra frá sólinni,
og hitastig því
lægra en hér.
En jafnvel þó að
líkurnar séu ef til
vill litlar er upp-
götvunin þó engu
að síður sterkt merki þess, að
þau náttúrufyrirbrigði sem hér
hafa leitt til þess undursam-
lega kraftaverks sem lífið er
gætu einnig fyrirfundist á öðr-
um hnöttum í geimnum, jafn-
vel innan okkar eigin sólkerfis.
Þá eykur uppgötvunin einn-
ig líkurnar á því, að mannkynið
muni á endanum geta fundið
leið til þess að nema land á
Mars, verði það talið eftirsókn-
arvert. Hvort sem til þess
kemur eða ekki veldur upp-
götvunin því að áhugaverðara
er orðið en áður að rannsaka
yfirborð þessa helsta nágranna
okkar enn frekar.
Vatnsfundurinn
gerir Mars enn
áhugaverðari
en áður }
Fundu forsendur lífs
H
agstofan hefur sagt okkur að
eiginfjárstaða allra fjöl-
skyldugerða hér á landi hafi
batnað. En myndin sem blasir
við er að fáir landsmenn eiga
mest og margir eiga minnst. Þau tíu prósent
sem eiga mest eiga nærri fimm þúsund sinnum
meira en þau tíu prósent sem eiga minnst.
Eignahæstu tíu prósentin eiga 44% heildar-
eigna landsmanna en þeir eignaminni eiga nán-
ast ekkert.
Allt bendir til þess að þjóðfélagið sé komið á
fulla ferð þegar nær sjö ár eru liðin frá hruninu
mikla. Atvinnuleysi mælist í lágmarki. Bygg-
ingarkrönum og þinglýstum kaupsamningum
fjölgar, sem eru ótvíræð merki þess að upp-
gangstími sé hafinn. Utanlandsferðir seljast
sem aldrei fyrr, fjöldi nýrra lúxusbíla er kom-
inn á götuna, auk þess sem slegin eru met í sölu húsgagna
og snjallsíma. Kaupmáttur ráðstöfunartekna einstaklinga
hefur aukist og einkaneysla á mann að sama skapi aukist.
Hagfræðideild Landsbankans segir það einkenna upp-
gangstímabil á Íslandi að einkaneyslan eykst umfram
kaupmátt, sem er sterk vísbending þess að eytt sé um efni
fram. Ferðamennirnir streyma enn í stríðum straumum
til landsins og virðist ekkert lát á. Ný skýrsla Arion banka
um ferðaþjónustuna segir að búast megi við 1,5 milljónum
ferðamanna á næsta ári og flytja þurfi inn vinnuafl til
landsins í þúsundum talið. Það lítur út fyrir að þegar sé
farið að bera á skorti á starfsfólki.
Ég held að við verðum að horfast í augu við
að partíið er byrjað. En það er spurning hverj-
ir ætla að mæta og gera allt brjálað. Er það
sama fólkið og dansaði uppi á borðum í síðasta
partíi? Eða er komið nýtt fólk sem ekki mætti
síðast og ætlar sko ekki að missa af fjörinu?
Því miður færist reynsla hvorki á milli ein-
staklinga né kynslóða. Það voru margir sem
fóru illa út úr hruninu fjárhagslega og eru enn
að glíma við eftirhreytur þess. Einhverjir hafa
fundið lífi sínu annan farveg reynslunni ríkari.
Ætli þeir segi ekki bara pass þegar boðið
verður í nýja partíið? En hinir sem voru ekki
nógu gamlir til að komast inn í það fyrra
leggja líklega allt í sölurnar til að vera með
núna. Eignir hafa skipt um hendur frá hruni
og sumir hafa verið heppnari en aðrir þegar
stórar fjárhæðir koma til þeirra tiltölulega
fyrirhafnarlítið. Það má velta fyrir sér hversu mikið þessir
fáu sem eiga mest á Íslandi leggi undir í veisluhöldunum
sem framundan eru. Vonandi skuldsetja þessir mörgu
sem eiga minnst sig ekki upp í rjáfur til að vera með.
Á Íslandi virðist sem taka þurfi allt með trukki og dýfu.
Sveiflurnar eru svo miklar öfganna á milli: Brjálað partí
eða ekkert partí. Fáir sem eiga mikið og margir sem eiga
lítið. Það er kannski tómt mál að tala um en væri ekki
betra fyrir sálarheill okkar allra ef sveiflurnar væru held-
ur minni og jafnræðið í samfélaginu meira?
Það er ekki bundið í stjórnarskrá að fáir einstaklingar
eigi Ísland. margret@mbl.is
Margrét Kr.
Sigurðardóttir
Pistill
Hverjir mæta í partíið?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Það er ákveðið réttlætismálað jafna stöðu foreldra enjafnframt mikilvægt aðhafa í þeim efnum hags-
muni barnsins í öndvegi. Þetta er
nýtt fyrirkomulag búsetu, sem lagt er
til að tekið verði upp í barnalög. Um
er að ræða heimild til handa þeim for-
eldrum, sem fara sameiginlega með
forsjá barna sinna við skilnað eða
sambúðarslit og
eru í stakk búnir
til að taka jafna
ábyrgð á umönn-
un, uppeldi og
framfærslu barna
sinna sem búa
álíka jafnt á
tveimur heimil-
um,“ segir Þór-
hildur Líndal, lög-
fræðingur og
fyrrv. umboðsmaður barna, um nið-
urstöðu skýrslu um jafnt búsetuform
barna sem búa á tveimur heimilum.
Þórhildur var formaður starfs-
hóps sem innanríkisráðherra skipaði
og var falið að kanna með hvaða leið-
um megi jafna stöðu foreldra sem
fara sameiginlega með forsjá barna
sinna og vilja ala þau upp á tveimur
heimilum.
Breyta þyrfti barnalögum
Helstu niðurstöður skýrslunnar,
sem var skilað í septembermánuði sl.,
eru á þá leið að breyta þurfi barnalög-
um, lögum um lögheimili auk ýmissa
sérlaga um opinberan stuðning til að
jafna rétt foreldra. Barnið sem á tvö
heimili mun þó einungis eiga eitt
skráð lögheimili, sem foreldrar semja
um sín á milli.
Í skýrslunni segir: „Skipt búseta
barns mun fela í sér ýmis réttaráhrif,
þar á meðal varðandi alla ákvarðana-
töku um málefni barns svo og fram-
færslu þess.“ Þetta á t.d. við um með-
lagsgreiðslur sem yrðu þá felldar
niður því báðir foreldrar taka jafnan
þátt í öllum tilkostnaði sem fylgir
barnauppeldinu. Það sama gildir um
opinberan fjárstuðning, hann skiptist
jafnt milli foreldra.
Þá leggur starfshópurinn
áherslu á „mikilvægi þess að úr tölvu-
kerfi Þjóðskrár Íslands verði hægt að
fá upplýsingar um að barn sé í skiptri
búsetu, sem þýðir að í þjóðskránni
komi fram heimilisfang beggja for-
eldra barnsins. Þessum upplýsingum
verði unnt að miðla til þeirra stofnana
og annarra sem koma að málefnum
barna, svo sem sveitarfélaga“.
Þórhildur bendir á að ein grund-
vallarforsenda þess að skipt búseta
komi til greina sé að það ríki góð og
víðtæk sátt milli foreldra um allt sem
viðkemur barninu og uppeldi þess og
að foreldrar búi nálægt hvort öðru.
Foreldrar þurfa því að uppfylla
ákveðin skilyrði áður en sýslumaður
getur staðfest samning þeirra um
skipta búsetu barns. Áður þurfa for-
eldrar að fá ráðgjöf hjá sérfræðingi
sýslumanns um hvort skipt búseta sé
barninu fyrir bestu. „Þetta er úrræði
fyrir foreldra sem vilja haga málum
með þessum hætti og eiga auðvelt
með að ræða saman um málefni
barnsins með hagsmuni þess að leið-
arljósi. En þetta hentar ekki öllum
foreldrum,“ segir Þórhildur.
Nefndin leit einkum til ná-
grannalandanna Svíþjóðar og Noregs
þar sem þetta kerfi hefur verið notað
og gefið góða raun.
Nefndin var skipuð í samræmi
við ályktun Alþingis frá 12. maí 2014
og sátu í henni fimm manns. Guð-
mundur Steingrímsson, þingmaður
Bjartrar framtíðar, lagði tillöguna
fyrst fram árið 2012. Tveimur árum
síðar voru tvær tillögur er snerta
jafnt búsetuform barna sem búa á
tveimur heimilum aftur lagðar fyrir
og voru samþykktar. „Skýrslan er
mjög vel unnin og ég vona að tillög-
urnar verði að frumvarpi því þetta
snertir marga foreldra,“ segir Guð-
mundur.
Skýrslan hefur verið lögð fyrir
Alþingi. Hún er nú til meðferðar í
innanríkisráðuneytinu og verður
unnt að senda ráðuneytinu sjónarmið
og ábendingar um efni hennar til og
með 15. október. Þau svör fengust hjá
innanríkisráðuneytinu að vilji standi
til að vinna að tillögum skýrslunnar.
Þess má geta að sveitarfélagið
Garðabær vísaði skýrslunni til kynn-
ingar í leikskóla- og skólanefnd og
fjölskylduráði á bæjarráðsfundi í vik-
unni.
Réttlætismál að
jafna stöðu foreldra
Morgunblaðið/Eggert
Búseta barna Í skýrslu innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna
sem búa á tveimur heimilum eru lagðar til breytingar á barnalögum.
„Kostirnir eru fyrst og fremst að ekki komi rof í tengsl barna og foreldra
þrátt fyrir skilnaðinn. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrst á eftir,“ segir
Benedikt Jóhannsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Fjölskyldu-
þjónustu kirkjunnar og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, en hann
hefur starfað mikið með börnum eftir skilnað foreldra. Benedikt var einn-
ig einn af álitsgjöfum skýrslunnar.
Hann tekur fram að fyrst og fremst þurfi réttar forsendur að vera fyrir
hendi svo þetta sé hægt. „Foreldrarnir þurfa að búa nálægt, helst í
göngufæri, og skóli og frístundastarf á sama stað. Þá þarf að vera gott
samkomulag á milli þeirra.“
Ekki rof þrátt fyrir skilnað
SAMSKIPTI OG NÁBÝLI
Þórhildur Líndal