Morgunblaðið - 01.10.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
Þórdís Geirsdóttir golfari er í mánaðarpásu frá golfinu en hyggstbyrja að æfa aftur í nóvember. „Þetta er orðið heilsárssport.Við erum komin með svo góða aðstöðu í Keili. Svo reynir mað-
ur að hlaupa nokkrar holur þegar vel viðrar. Völlurinn er opinn allt
árið.“ Þórdís hefur unnið
fjölda titla í gegnum tíð-
ina. Í sumar varð hún Ís-
landsmeistari kvenna 50
ára og eldri og varð einn-
ig Íslandsmeistari með
Keili í Hafnarfirði í
sveitakeppni eldri
kvenna, sem eru 50 ára
og eldri. Þórdís náði einu
sinni að vinna stærsta tit-
ilinn, Íslandsmeistaratit-
ilinn í meistaraflokki
kvenna, en það var árið
1987.
Þórdís vinnur í af-
greiðslunni í Fjarðar-
kaupum. „Ég vinn ekkert
á sumrin, þá er ég í golfi.
Ég læt ekki vinnuna
trufla golfið. Þess vegna
er ég líka að vinna hérna
í Fjarðarkaupum, það
eru svo margir golfarar
hérna og þeir hafa fullan
skilning á þessu. Þeir
gáfu mér m.a.s. frí þegar ég var fararstjóri í golfferðum erlendis bæði
vor og haust.“
Þórdís fór ekkert út í sumar en mun fara í vor og hún fer alltaf til
Spánar. „Mér finnst langbest að fara þangað. Ég sleppi að fara út í
haust en held í staðinn mikla afmælisveislu með Ásdísi systur minni
sem er 20 mínútum eldri en ég.“
En er tími fyrir önnur áhugamál en golfið? „Ég sit í stjórn Hauka í
handboltanum og er í kaffinefnd. Ég fer á alla heimaleiki og við í
nefndinni erum mættar hálftíma fyrir leik svo allir hafi nóg að borða
og drekka. Ég fylgist lítið með öðrum íþróttum, læt duga að fylgjast
með handboltanum og golfinu.“
Eiginmaður Þórdísar er Guðbrandur Sigurbergsson, viðskipta-
fræðingur hjá Vísi hf. í Grindavík. Börn þeirra eru Sigurberg raf-
virki, Geir tölvunarfræðinemi í Háskóla Íslands og Þráinn nýútskrif-
aður stúdent í pásu. Þórdís á eitt barnabarn, Guðbrand Gísla, sem er
sonur Sigurbergs.
Golfarinn Þórdís varð Íslandsmeistari
kvenna 50 ára og eldri í sumar.
Fer í mánaðarpásu
frá golfinu á haustin
Þórdís Geirsdóttir er fimmtug í dag
S
ighvatur fæddist í Vest-
mannaeyjum 1.10. 1975
og ólst þar upp. Hann var
í Grunnskóla Vest-
mannaeyja og í Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum,
lauk þaðan prófum 1994, lauk námi í
margmiðlunarhönnun í Árósum í
Danmörku 2006 og námi í tölvunar-
fræði frá Árósarháskóla 2008.
Sighvatur hefur starfað við fjöl-
miðla frá árinu 1996. Samhliða námi í
Danmörku var Sighvatur fréttaritari
Stöðvar 2 þar í landi á árunum 2004-
2008. Árið 2005 stofnaði hann sitt
eigið framleiðslufélag, SIGVA
media, en félagið varð 10 ára hinn
25.4. sl..
Sighvatur hóf fjölmiðlaferilinn á
útvarpsstöðinni FM957 árið 1996 og
starfaði þar til 2001. Þaðan lá leiðin á
Bylgjuna og í framhaldi af því í sjón-
varpsfréttamennsku á Stöð 2 árið
2003.
Sighvatur Jónsson fjölmiðlamaður – 40 ára
Ljósmynd/ Gunnar Ingi Gíslason
Í Herjólfsdal Sighvatur festir mannlífið á filmu fyrir heimildarþáttinn sinn um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Festir mannlífið í Eyj-
um á spjöld sögunnar
Ljósmynd/Bjarni Þór Georgsson
Fjölskyldan Sighvatur og Dóra með Gabríel, Elmari Elí og Emblu Dís.
Dalvík Elvar Þór Sigrúnar-
son fæddist 2. september
2014 kl. 9.04. Hann vó 3.845
g og var 54 cm langur. Móðir
hans er Sigrún Stella Ólafs-
dóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket