Morgunblaðið - 01.10.2015, Blaðsíða 41
Hvaða áhrif hafa viðtökur og fjár-
hagur á ákvarðanir dagskrárstjóra
kvikmyndahátíða? Svara verður
leitað við þeirri spurningu og fleir-
um í pallborðsumræðum í Norræna
húsinu í dag kl. 12 sem Helga
Stephenson, fyrrverandi stjórnandi
kvikmyndahátíðarinnr í Toronto,
stýrir. Þátttakendur verða Arnaud
Gourmelen, dagskrárstjóri fyrir Di-
rector’s Fortnight flokkinn í Cann-
es, Fredrick Boyer, stjórnandi Tri-
beca-kvikmyndahátíðarinnar, Piers
Handling, framkvæmdastjóri Tor-
onto-kvikmyndahátíðarinnar og Gi-
orgio Gosetti, stjórnandi Venice
Days-dagskrárinnar á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum og dagskrár-
stjóri RIFF.
Að velja á kvik-
myndahátíð
Sögur handa öllum nefnist fjórða
Lestrarhátíðin í Bókmenntaborg-
inni Reykjavík sem sett verður á
blómatorgi Kringlunnar í dag kl.
16. Hátíðin, sem stendur allan
októbermánuð, er tileinkuð rithöf-
undinum Svövu Jakobsdóttur og
röddum kvenna í tilefni 100 ára
afmælis kosningaréttar kvenna.
Elsa Yeoman, formaður menn-
ingar- og ferðamálaráðs Reykja-
víkurborgar, setur hátíðina en síð-
an ávarpa Kristín Helga
Gunnarsdóttir, formaður Rithöf-
undasambandsins og leikstjórinn
Tinna Hrafnsdóttir gesti, Silja Að-
alsteinsdóttir les úr bók hátíðar-
innar, Sögur handa öllum, og
kvennakórinn Katla syngur. Í
Kringlunni verður rithöfundur há-
tíðarinnar nálægur gestum, því
textabrot úr verkum Svövu prýða
Kringluna í október.
Sem fyrr segir er bók hátíðar-
innar Sögur handa öllum eftir
Svövu, en bókin kemur út í kilju í
ritröðinni Íslensk klassík. Boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá á
Lestrarhátíð. Sem dæmi frum-
sýnir leikhópurinn Háaloftið
Lokaæfingu eftir Svövu í Tjarnar-
bíói hinn 4. október, á afmælisdegi
Svövu sem hefði orðið 85 ára
þennan dag. Hinn 7. október mun
Úlfhildur Dagsdóttir afhjúpa bók-
menntamerkingu til heiðurs Svövu
og í framhaldinu leiða bókmennta-
göngu um slóðir kvenrithöfunda í
miðborginni. Fjölmála rithöfunda-
hópurinn Ós opnar sýningu í
Borgarbókasafninu í Grófinni 3.
október. Bókakaffi í Gerðubergi
verður tileinkað Svövu og Gerður
Kristný mætir í bókasafnið í
Spönginni í lok mánaðarins og
ræðir um smásögur Svövu og þau
áhrif sem skrif hennar hafa haft á
skáld sem á eftir komu.
Heildardagskrá Lestrarhátíðar
er aðgengileg á íslensku og ensku
á vefnum bokmenntaborgin.is.
Lestrarhátíð sett í
Bókmenntaborg í 4. sinn
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Raddir kvenna Hátíðin í ár er helg-
uð Svövu Jakobsdóttur.
»Kvikmyndaleikstjórarnir David Cronen-
berg og Margarethe von Trotta tóku í gær
við heiðursverðlaunum Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, á
Bessastöðum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti verðlaunin að viðstöddu
fjölmenni. Verðlaunin hlutu leikstjórarnir fyr-
ir ævistarf sitt og framlag til kvikmyndagerð-
ar. Valdar myndir þeirra eru sýndar á RIFF
og lýkur hátíðinni á sunnudaginn, 4. október.
David Cronenberg og Margarethe von Trotta tóku við heiðursverðlaunum RIFF
Listakoss David Cronenberg og Margarethe von Trotta létu lundana sína kyssast við verðlaunaafhendinguna og kætti það viðstadda.
Margmenni Fjölmargt fólk mætti á Bessastaði og fylgdist með athöfninni.
Gaman Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður á spjalli í veislunni. Faðmlag Elísabet Ronaldsdóttir og Margarethe von Trotta féllust í faðma.
Morgunblaðið/Eggert
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
THE MARTIAN - FORÝNING 10:30
EVEREST 3D 5:30,8,10:40
SICARIO 8,10:30
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 6
HÓTEL TRANSYLV. 2D ENS 6 (ótextuð)
MAZE RUNNER 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
FORSÝNING KLUKKAN 10:30