Morgunblaðið - 01.10.2015, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. „Fjölskyldan verður aldrei söm“
2. Aftakan tókst í þriðju tilraun
3. Jim Carrey tjáir sig um andlátið
4. Sjáðu íshelluna síga „í beinni“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn frumsýnir 15. október nk.
Sporvagninn Girnd eftir Tennessee
Williams í leikstjórn Egils Heiðars
Antons Pálssonar. Með hlutverk
Blanche Dubois fer Danica Curcic, en
hún leikur stórt hlutverk í kvikmynd
Billes Augusts, Stille hjerte, sem
frumsýnd var á RIFF í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Egill leikstýrir hjá
Konunglega leikhúsinu
Tómas R. Ein-
arsson bassaleik-
ari og Ómar Guð-
jónsson gítar-
leikari dóla þessa
dagana hringinn
um landið, rang-
sælis, og koma í
allt fram á fjórtán
tónleikum. Í kvöld
leika þeir í Systrakaffi á Kirkjubæjar-
klaustri kl. 20.30, annað kvöld í
Pakkhúsinu á Höfn og á laugardags-
kvöld í Löngubúð á Djúpavogi.
Ómar og Tómas í
hringferð, rangsælis
Saga Sigurðardóttir flytur dans-
verk Katrínar Gunnarsdóttur, Macho
Man, í Mengi kl. 21 í kvöld. Í verkinu
galdrar Saga fram tvíræð-
an heim þar sem karl-
mannlegar hreyfingar
eru nýttar til þess að
skapa samhljóm á milli
kvenkyns dansara og
þess hreyfimynst-
urs sem við kennum
við karlmennsku,
eins og segir í til-
kynningu.
Karlmannlegar
hreyfingar í Mengi
Á föstudag Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálitlar skúr-
ir og slydduél fyrir norðan. Hiti 1 til 8 stig.
Á laugardag Breytileg átt 5-13 m/s. Rigning um landið aust-
anvert, en slydda eða snjókoma til fjalla. Hiti 2 til 8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í hæga norðanátt með éljum norðantil
á landinu seint í kvöld, en styttir að mestu upp fyrir sunnan.
VEÐUR
„Hún hefur bætt sig gríðar-
lega síðustu tvö ár í að spila
inn á línu og út í horn, er
með mikla víðsýni og leik-
skilning. Hún er ekki bara
markavél,“ segir þjálfari
Hrafnhildar Hönnu Þrast-
ardóttur, handboltakonu frá
Selfossi, sem er leikmaður
4. umferðar hjá Morgun-
blaðinu eftir að hafa
skorað 18 mörk í leik
gegn Fylki í Olís-deild
kvenna. »4
Hún er ekki bara
markavél
Alfreð Finnbogason er hæstánægður
með að hafa náð að skora fyrsta
mark sitt fyrir Olympiacos gegn Ars-
enal í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.
„Það var mikilvægt að skora snemma
á tímabilinu. Þá lendir maður
ekki í að reyna að þvinga fram
fyrsta markið eða reyna eitt-
hvað öðruvísi. Auk þess er
stórt að skora í fyrsta
skipti í Meistaradeild-
inni og það gerir
þetta augnablik enn
skemmtilegra fyr-
ir mig,“ segir Al-
freð. »2-3
Gerir augnablikið enn
skemmtilegra fyrir mig
Portúgalinn frábæri Cristiano Ron-
aldo sýndi enn og aftur snilli sína á
fótboltavellinum þegar hann skoraði
bæði mörk Real Madrid á móti Kára
Árnasyni og félögum hans í Malmö í
Meistaradeildinni í gær. Ronaldo er
þar með orðinn markahæsti leik-
maður Real Madrid frá upphafi ásamt
goðsögninni Raúl en báðir hafa skor-
að 323 mörk. »1
Cristiano Ronaldo í
metabækurnar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir áratugum átti Haukur Heiðar
Hauksson í Ungmennafélagi Bessa-
staðahrepps sér þann draum að
verða Íslandsmeistari í fótbolta.
Draumurinn varð að veruleika þegar
FH tryggði sér Íslandsmeistaratitil
karla um liðna helgi.
Haukur Heiðar er söngvari hljóm-
sveitarinnar Diktu og fyrir um
þremur árum fékk hann upphring-
ingu sem breytti miklu. „Lið verða
að hafa lækni með sér í Evrópu-
keppni og ég var spurður hvort ég
gæti bætt við mig verkefnum og ver-
ið læknir FH í ævintýraferðum til
útlanda,“ útskýrir hann. „Ég svaraði
því til að ég væri reyndar mikið í út-
löndum með bandinu og hefði ekki
mikinn aukatíma, en þar sem ég er
mikill áhugamaður um fótbolta gat
ég ekki sagt nei. Síðan hef ég sinnt
læknisstarfinu í Evrópuleikjum FH
og reynt að mæta eins mikið og ég
get á aðra leiki, en þar er ekki
skylda að vera með lækni.“
Flókin leið
Þegar Haukur Heiðar æfði og lék
á Álftanesi átti hann sér ekkert
uppáhaldslið í efstu deild hérlendis
og segist lengi hafa verið svolítið úti
að aka í þeim efnum.
„Ég hef alla tíð verið brjálaður
aðdáandi Liverpool í ensku deild-
inni,“ segir hann. „Ég gekk í Garða-
skóla og kynntist þar hljómsveitar-
félögum mínum í Diktu, en var
aldrei í Stjörnunni eins og þeir. Þeg-
ar ég kynntist konunni minni kom í
ljós að hún er trylltur KR-ingur eins
og foreldrar hennar og um það leyti
sem ég var að verða KR-ingur varð
ég allt í einu FH-ingur.“
Sem barn ætlaði Haukur Heiðar
sér langt í boltanum og fór meðal
annars í knattspyrnuskóla FH í
nokkur sumur. „Þar voru bræður,
svona eins og Dalton-bræðurnir,
sem áttu staðinn, voru aðalgæjarnir
í skólanum og réðu öllu. Það var
tröppugangur í hæðinni á þeim og
þeir voru allir mjög líkir. Áratugum
síðar lágu leiðir okkar saman á ný í
FH, þegar bræðurnir Davíð Þór og
Bjarni Viðarssynir komu heim eftir
atvinnumennsku erlendis. „Þetta
eru þeir,“ hugsaði ég með mér þegar
ég sá þá aftur, en munurinn var sá
að nú var ég hluti af liðsheildinni.“
Haukur Heiðar byrjaði snemma
að leika á gítar og píanó og hefur
verið önnum kafinn með Diktu, sem
gaf út diskinn Easy Street á dög-
unum og kynnir hann grimmt þessar
vikurnar, auk þess sem hann hefur
nóg að gera sem læknir á Landspít-
alanum. Hann segir að samt hafi
gengið ótrúlega vel að samræma
hlutina. „Ég hef þurft að hræra til í
vöktum en á skilningsríka yfirmenn
og samstarfsfélaga sem hafa boðist
til þess að hlaupa í skarðið þegar á
hefur þurft að halda.“
Undanfarnar vikur hefur titillinn
legið í loftinu hjá FH og því kom
ekki á óvart þegar hann var í höfn.
„Það er mjög sérstakt að vera loks
Íslandsmeistari þótt ég hefði viljað
vera það sem leikmaður. Ég hef oft
gaukað því að Heimi [Guðjónssyni
þjálfara] að ég gæti farið inná en
hann hefur ekki enn hlustað á mig!
En leikmennirnir og þjálfararnir
eiga þetta skuldlaust og Jónas Grani
Garðarsson sjúkraþjálfari hefur
sinnt leikmönnunum miklu meira en
ég,“ segir Haukur Heiðar, sem á
ekki von á því að fá að spila ein-
hverjar mínútur í lokaumferðinni á
laugardag.
Draumurinn að veruleika
Haukur Heiðar í
Diktu loks Íslands-
meistari í fótbolta
Morgunblaðið/Eggert
Milljón augnablik Haukur Heiðar læknir og Jónas Grani Garðarsson sjúkraþjálfari lyfta bikarnum.
Morgunblaðið/Eggert
Milljón augnablik Haukur Heiðar
Hauksson söng lagið í úrslitum
Söngvakeppninnar 2015.