Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Síða 16
A
ð þjást af fóbíu eða fælni er ekkert
grín en talið er að 7-11% fólks þjá-
ist af fælni einhvern tímann á lífs-
leiðinni, en einungis 12-30% af
þeim leiti sér aðstoðar. Tökum dæmi af
manneskju sem er sjúklega hrædd við köngu-
lær, sem er vel þekkt fóbía. Hún veit að
köngulóin er agnarsmá í samanburði við
manneskju. Hún veit að þessi könguló er
sárameinlaus. Hún veit að köngulóin getur
ekki meitt hana á neinn hátt. Samt sem áður
fær manneskjan kvíðakast, öran hjartslátt,
það sprettur út á henni kaldur sviti og hún
jafnvel öskrar og æpir. Fyrir fólk sem er bara
almennt illa við köngulær eða finnst þær ekki
til trafala er erfitt að skilja þessi ofsafengnu
viðbrögð. En það er einmitt þess vegna sem
fóbíu er lýst sem órökréttri hræðslu.
Fóbíur geta haft mikil og slæm áhrif á líf
fólks og er það orðið vandamál ef það truflar
lífið. Sumir geta ekki ferðast af ótta við flug-
vélar. Aðrir geta ekki verið innan um fólk af
ótta við að verða dæmt. Sumir geta ekki gert
einföldustu hluti eins og að fara yfir brú eða
að borða fyrir framan aðra. Ef fóbían er farin
að stjórna lífi þínu væri ráð að leita sér hjálp-
ar. Oftast er hægt að „lækna“ þær.
Víðáttur og fjölfarnir staðir
Fóbíur eru flokkaðar í þrjá undirflokka, víð-
áttufælni, félagsfælni og afmarkaða fælni.
Undir víðáttufælni flokkast hræðsla við víð-
áttur en einnig við fjöl-
farna staði og lokaða staði
eins og lyftur og strætis-
vagna svo eitthvað sé
nefnt. Þessir staðir eiga
það sameiginlegt að það
er erfitt að komast í burtu
eða fá hjálp ef viðkomandi
fær hræðslukast, eða það
sem kallast felmturskast.
Í því felst að fá óstjórn-
legan kvíða, svitna, fá ör-
an hjartslátt og jafnvel
telja sig vera að deyja.
Þessi köst eru ekki hættu-
leg en þeir sem verða fyr-
ir því telja þau vera það.
Þeir sem þjást af félagsfælni veigra sér við
að vera innan um annað fólk af ótta við að
verða dæmdir af öðrum, að þeir verði sér til
skammar eða jafnvel þora ekki að tala við
annað fólk. Sumir geta ekki notað almenn-
ingssalerni eða borðað og drukkið fyrir fram-
an aðra. Þessi tegund fælni háir fólki að sjálf-
sögðu mikið þar sem enginn kemst hjá því að
umgangast aðra.
Snákar, blóð og flugvélar
Afmörkuð fælni beinist að einu afmörkuðu
fyrirbæri eins og í ofangreindu dæmi með
FÓBÍUR GETA HAFT VÍÐTÆK ÁHRIF Á LÍF FÓLKS
Fastur í troðfullri
lyftu með
könguló á öxlinni
FÓBÍA ER SKILGREIND SEM ÓRÖKRÉTT HRÆÐSLA ÞAR SEM ÞEIR
SEM AF HENNI ÞJÁST ERU HALDNIR OFSAHRÆÐSLU VIÐ TIL-
TEKNAR AÐSTÆÐUR, LIFANDI VERU, STAÐ EÐA HLUT. EINKENN-
IN ERU M.A. OFSAKVÍÐI, ÖR HJARTSLÁTTUR OG VERKUR FYRIR
BRJÓSTI. SUMIR TELJA JAFNVEL AÐ ÞEIR SÉU AÐ DEYJA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
köngulær. En afmarkaða fælnin skiptist í
fernt, dýrafælni, náttúrufælni, aðstæðubundna
fælni og blóðfælni. Köngulóin fellur þá undir
dýrafælni en einnig eru margir haldnir fóbíu
gagnvart snákum og hundum og er talið að
snákafælni sé algengasta fóbían í Bandaríkj-
unum. Undir náttúrufælni flokkast óveður
ýmiss konar, vatn og lofthræðsla. Við að-
stæðubundna fælni hræðist fólk til dæmis að
vera í flugvél, fara yfir brú eða í gegnum
göng og tengist þá innilokunarkennd. Blóð-
fælni er óttinn við að sjá blóð, sár og sprautur
en í þessari fælni eru líkamlegu einkennin
ólík því sem lýst var hér að ofan. Fólk með
blóðfælni fær lækkandi blóðþrýsting og hjart-
slátt og það líður gjarnan yfir það.
Fóbíur oftast frá barnæsku
Margar ástæður eru taldar geta legið að baki
fóbíum hjá fólki. Talið er að flestar fóbíur
myndist strax í barnæsku. Sumar fóbíur eru
tengdar skilyrðingu, þ.e.a.s. að þú tengir sam-
an eitthvað eins og sprautur og sársauka. Ef
þú upplifir sársauka við að fá sprautu getur
þú myndað fóbíu fyrir sprautum síðar í lífinu.
Sumir fá fóbíur við að hræðast það sem aðrir
hræðast. Enn aðrir fá fóbíu við það að fá upp-
lýsingar um eitthvað eða eru hræddir, eins til
dæmis þegar börn eru hrædd með Grýlu.
Ef fóbían þín hefur ekki alvarleg áhrif á líf
þitt er nóg að reyna að forðast það sem henni
veldur. En sumt er erfitt að forðast og þá er
gott að leita sér hjálp-
ar.
Oftast hægt að
lækna fóbíu
Hægt er að nota ýmsar
aðferðir við að lækna
fólk sem þjáist af fóbí-
um. Algengast er að
notuð sé atferlisaðferð
og þykir til dæmis
áhrifaríkt að láta fólk
horfast í augu við sína
fóbíu.
Þannig gæti mann-
eskja haldin loft-
hræðslu vera látin
standa á svölum á hárri byggingu. Oft er erf-
itt að fá fólk til að taka þátt í slíkri meðferð
og er nú oftar notast við sýndarveruleika.
Góðu fréttirnar eru að oftast er hægt að
hjálpa fólki að vinna bug á fóbíum sínum.
Stundum er gott að sameina atferlismeðferð
við lyfjagjafir.
Engin ein aðferð hentar öllum og þarf
læknir að skoða hvert og eitt tilvik. Hver veit
nema manneskja sem eitt sinn þjáðist af inni-
lokunarkennd, félagsfælni og köngulóar-
hræðslu geti einhvern tímann andað rólega í
troðfullri lyftu með könguló á öxlinni.
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2015
Heilsa og hreyfing
Ekki þykir endilega gott að nota sýkladrepandi sápu við handþvott. Engar sannanir eru fyrir
því að bakteríudrepandi sápa sé betri en venjuleg sápa þótt hún sé nauðsynleg inni á spítölum.
Ofnotkun sótthreinsandi sápu eykur líkurnar á þolnum bakteríustofnum. Einnig eru efni í
bakteríudrepandi sápunni sem gætu verið skaðleg líkamanum og umhverfinu.
Handþvottur með sápu bestur
Eva man ekki eftir sér öðruvísi enmeð fóbíu fyrir ælu og telur jafn-vel að það megi rekja til æsk-
unnar. Hún er tilbúin að segja sína
sögu en vill ekki koma fram undir fullu
nafni. „Ég er búin að vera svona síðan
ég man eftir mér. Ég var í París fyrir
nokkrum árum og sá mann æla í lest-
inni og fékk kast, þannig að ég fór síð-
an og gúglaði þetta og sá að þetta er
fóbía. Ég las mér til um þetta og öll
einkennin sem ég las um voru þau
sömu og ég var að upplifa,“ segir hún.
Hraður hjartsláttur og sviti
Eva segist bæði vera með fóbíu gagn-
vart því að kasta upp sjálf og að sjá
aðra kasta upp. „Ef ég sé einhvern
FÓBÍA FYRIR ÆLU
„Bað til guðs að ég
myndi ekki gubba“
EVA ER Á ÞRÍTUGSALDRI OG HEFUR VERIÐ MEÐ FÓBÍU FYRIR
ÆLU FRÁ UNGA ALDRI. HÚN SEGIST FORÐAST AÐSTÆÐUR ÞAR
SEM HÚN ÞEKKIR EKKI FÓLK OG VILL HELST EKKI BERA ÁBYRGÐ Á
BÖRNUM OG ÖLDRUÐUM SEM GÆTU KASTAÐ UPP.
* Hún veit aðköngulóin geturekki meitt hana á neinn
hátt. Samt sem áður
fær manneskjan kvíða-
kast, öran hjartslátt,
það sprettur út á henni
kaldur sviti og hún
jafnvel öskrar og æpir.