Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Qupperneq 31
Vetrarfrí er í grunnskólum Reykja-
víkur 23.-27. október. Margir nota
tækifærið og bregða sér af bæ,
fara til dæmis í sumarbústað eða
styttri ferðir. Ennfremur er jafnan
margt um að vera fyrir fjölskyld-
una í fríinu í ýmsum menningar-
stofnunum borgarinnar.
Það er þó engin skylda að fara í
burtu og eitt af því sem hægt er að
gera heima er að föndra. Það er
gaman að taka hluta úr degi í að
gera eitthvað skapandi saman. Það
er allavega ekki seinna vænna að
velta fyrir sér hvað eigi að hafa
fyrir stafni þessa daga.
Til dæmis er hægt að perla sam-
an og þá er gott ráð að prófa að
slá upp „hama templates“ á google
til að fá hugmyndir. Til eru mörg
ókeypis skapalón og til dæmis er
hægt að perla ýmsar teiknimynda-
fígúrur. Það þarf heldur ekki að
takmarka sig við ákveðnar persón-
ur heldur má auðvitað perla frjáls
munstur og liti að eigin vali.
Annað sem er hægt að gera er
að leira. Kaupa má sérstakan fönd-
urleir sem hægt er að búa til
margt skemmtilegt úr, til dæmis
skartgripi eða skraut. Ef til vill má
búa í haginn og gera jólagjöf
handa ömmu og afa! Nú eða besta
vininum eða vinkonunni.
VETRARFRÍ Í SKÓLUM
Föndrað í fríinu
ÞAÐ ER MARGT HÆGT AÐ GERA SAMAN Í VETRARFRÍINU, SEM
ER ORÐINN FASTUR LIÐUR Í DAGSKRÁ GRUNNSKÓLANNA. ÞEIR
SEM BREGÐA SÉR EKKI AF BÆ GETA HAFT ÞAÐ HUGGULEGT
HEIMA. TIL DÆMIS ER HÆGT AÐ FÖNDRA SAMAN.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það er til dæmis hægt að
perla fallega fiska.
Listakonan Wendy Tsao ákvað að
breyta Bratz-dúkkum í frægar fyr-
irmyndir til að kanna áhrifin sem
dúkkur geti haft á sjálfsmyndina.
„Dúkkurnar sem eru í búðum eru
oftar en ekki Disney-persónur eða
hetjur úr Hollywood-stórmynd sem
leika sér með fantasíu, tilbúnar per-
sónur sem höfða til ungra neytenda.
En það er líka til alvöru fólk sem er
hetjur, sem hefur sögur af hugrekki,
greind og hinu einstaka að segja
sem veita innblástur. Gætu börn
ekki lært af þeim og fengið inn-
blástur í gegnum leikföng?“ skrifaði
Tsao á boredpanda.com.
Hún setti líka inn myndir af þeim
dúkkum sem hún er nú þegar búin
að breyta. Fyrir utan þær sem eru
hér að ofan mátti sjá þarna rithöf-
undinn J.K. Rowling og geimfarann
Robertu Bondar.
LISTAKONAN WENDY TSAO
Konurnar þrjár sem hér sjást sem endurbættar Bratz-dúkkur eru frá vinstri til
hægri: Jane Goodall, helsti simpansafræðingur í heimi og friðarsendiherra
Sameinuðu þjóðanna, Malala Yousafzai, yngsti friðarverðlaunahafi Nóbels, og
loks sómalska baráttukonan Waris Dirie.
Breytir Bratz-dúkkum í
frægar fyrirmyndir
Mynd/Wendy Tsao
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Fuglavika í Reykjavík hefst í dag, laugardag, og stendur
til 23. október. Boðið verður upp á fuglaskoðun á ólík-
um stöðum í borginni á hverjum degi alla vikuna, m.a.
við Elliðavatn og í Laugarnesi. Nánar á Reykjavik.is.
Fuglavika í Reykjavík *Þeir sem eru hamingjusamir geta aldreifarið of snemma á fætur. Camilla Collett
Fjölskyldumeðlimir eru: „Við erum eins og svo marg-
ar aðrar fjölskyldur með flókna samsetningu. Á heim-
ilinu búa Sólveig Gísladóttir, blaðamaður á sérblöðum
Fréttablaðsins, Ólafur Helgason, deildarstjóri á tækni-
sviði Öryggismiðstöðvarinnar, Birgitta Ösp Ólafs-
dóttir, 18 ára stjúpdóttir, Sigríður Salka 7 ára og
Grímar Gauti 3 ára. Védís Kara, stjúpdóttir mín, á síð-
an eigin fjölskyldu, eiginmann, tvær dætur og einn
stjúpson.“
Þátturinn sem allir geta horft á? „Áhugasviðið er æði
ólíkt. Doddi og Dóra eiga hug þess minnsta, Gló magn-
aða og álíka heilla þessa sjö ára sem ungmennið hefur
enga þolinmæði fyrir enda ýmsar sápur fremur á mat-
seðlinum þar. Við foreldrarnir þjáumst síðan yfir
þessu öllu saman. Líklega eru þó forframaðar teikni-
bíómyndir það sem við getum helst sameinast um, auk
þess sem við náðum ágætlega saman yfir Benjamín
dúfu.“
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? „Ég myndi
vilja nefna eitthvert gúrmet-fæði en ætli pitsan sam-
eini ekki áhuga allra. Annars er mjög vinsælt að grilla
á heimilinu.“
Skemmtilegast að gera saman? „Sundferðir eru í
miklu uppáhaldi hjá öllum. Krakkarnir elska að ærsl-
ast og foreldrarnir hafa sett slakandi pottaferðir á bið í
nokkur ár og láta öllum illum látum með þeim stuttu.
Fjölskyldan á líka ágætar stundir í eigin heitum potti
sem er á svölum á áttundu hæð í Breiðholtinu. Göngu-
ferðir um Elliðaárdalinn eru líka vel séðar. Mamman
sér svo um að vekja áhugann á hestamennsku meðan
pabbinn uppfræðir ungviðið um veiði, bíla og hjólaferð-
ir.“
Borðið þið morgunmat saman? „Í einu orði sagt: Nei. Hér býr samsafn
af B-manneskjum, utan húsföðurins sem vaknar á undan öllum öðrum og
á stund með sjálfum sér við matarborðið áður en fýlutröllin fara á fætur.
Þó skánar yfirleitt skapið þegar ungarnir hafa sporðrennt jógúrtinu.“
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? „Hér væri
gaman að koma að útópískri lýsingu á heilsteyptri fjölskyldu sem syngur
saman og spilar á spil, en nei. Þegar við erum heima fer mestur tíminn í
að halda skikki á húshaldinu. Börnin leika sér meðan foreldrarnir svitna
yfir þvotti og uppvaski. Við höldum í fasta pósta eins og að lesa fyrir börn-
in fyrir svefninn auk þess sem við eigum okkar stundir þar sem við setj-
umst niður og spjöllum um alla heima og geima. Yfirleitt þykir okkur þó
best að flýja heimilið og upp í bústað til að eiga mestu gæðastundirnar.“
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Mestu gæðastundirnar í bústaðnum
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar