Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 585 4000 | uu.is
HÁLFT FÆÐI
TENERIFE
LA SIESTA ****
Verð frá 126.900 KR.
á mann m.v. 2 fullorðna, 1 barn með hálfu fæði
1. - 12. DES.
Njóttu aðventunnar á Tenerife
og gerðu jólainnkaupin í sólinni.
Mjög vel staðsett fjögurra
stjörnu hótel með hálfu fæði.
Siðanefnd Alþjóðaskáksambands-
ins, FIDE, hefur úrskurðað rúss-
neska stórmeistarann Garry Kasp-
arov og framkvæmdastjóra
skáksambandsins, Ignatius Leong, í
tveggja ára þátttökubann fyrir
óháttvísa hegðun, en Kasparov og
Leong eru nú með öllu óheimil
hvers kyns afskipti af starfi sam-
bandsins.
Borgað fyrir atkvæði
Málið nær aftur til forsetakosn-
inga skáksambandsins, í Tromsö á
síðasta ári þar sem Kasparov bauð
sig fram á móti sitjandi forseta,
Kirsan Ilyumzhinov, en sá síð-
arnefndi hefur setið sem forseti frá
árinu 1995. Í aðdraganda kosning-
anna gerðu Kasparov og Leong
samning um að Leong aflaði 15
stuðningsmenn frá Asíu gegn fjár-
hagsstuðningi Kasparovs.
Samningur þeirra var skriflegur
og komst upp um ráðabrugg þeirra
þegar honum var lekið á síðasta ári.
Pútín með puttana í málinu
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir Kasparov
hafa mótmælt ásökununum harð-
lega. „Jafnvel þótt hann sé ekki að
tefla er þetta hnekkir fyrir hann.
Hann telur að þetta sé hefndar-
ráðstöfun. Kirsan, forseti skák-
sambandsins, sé Rússi og á bak við
þetta allt sé Pútín,“ segir hann, en
Kasparov er þekktur fyrir andóf
sitt gegn stjórnvöldum í Rússlandi.
Hefur Kasparov m.a. sakað sam-
bandið um að hafa komist á snoðir
um samninginn gegnum tölvupóst
Leong á póstþjóni sambandsins og
lekið honum í kjölfarið. jbe@mbl.is
Kasparov dæmdur í tveggja ára
bann af Alþjóðaskáksambandinu
AFP
Kasparov Stórmeistaranum eru nú
óheimil afskipti af sambandinu.
Sakaður um spill-
ingu í aðdraganda
forsetakosninga
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hún svínvirkar hjá mér. Það er svo
spurning hvað hver og ein hræða
nær yfir stórt svæði,“ segir Auðunn
Óskarsson sem ræktar korn á Rauð-
kollsstöðum í Hnappadal. Hann hef-
ur notað fuglafælu sem hann kallar
„Finnboga“ með ágætum árangri í
þrjú ár.
Bændur hafa reynt allskyns fugla-
fælur og umgjörð um ræktunina til
að verja kornakra sína en einnig tún
og rúllur fyrir ágangi vargfugls, ekki
síst álfta og gæsa. Fáar varnir hafa
dugað til langframa. Fuglarnir venj-
ast þeim. Heimilt er að skjóta gæs
en álftin er alfriðuð.
Álftin of greind fyrir fælur
„Tíðin í haust hjálpar ekki til.
Þegar búið er að þreskja gerir
minna til þótt álft og gæs fari í akr-
ana og tíni upp það sem orðið hefur
eftir,“ segir Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsam-
bands Suðurlands. Hann staðfestir
að álftin skapi mikla erfiðleika hjá
kornbændum á vissum svæðum á
Suðurlandi. Hún sé mikill skaðvald-
ur í óþresktum ökrum, búi til flug-
brautir, troði og traðki og eyðileggi
heilu stykkin.
Búnaðarsamband Suðurlands hef-
ur gert tilraunir með virkni fugla-
fælna á tilraunastöðinni Stóra-
Ármóti. Það eru fælur sem spila
hljóð eins og fuglar gefa frá sér þeg-
ar hætta steðjar að. Sveinn segir að
hljóðin virki nokkuð á gæsina og
mjög vel á mávinn sem hverfi alveg.
Mávar valda einkum skaða á hey-
rúllum. Hættuhljóðin virka hins veg-
ar ekkert á álftina. Hún virðist vera
of greind fyrir þennan búnað, að
sögn Sveins.
Tæknivædd fuglahræða
Jötunn vélar fluttu inn fuglahræð-
ur fyrir áratug sem Auðunn Ósk-
arsson hefur ágæta reynslu af á
Rauðkollsstöðum. Hræðan er kölluð
„Finnbogi“ eftir Finnboga Magn-
ússyni, framkvæmdastjóra Jötunn
véla. Finnbogi segir að lítil eft-
irspurn hafi verið eftir þessum fæl-
um og þær verið lengi að seljast.
Fælan er í grunninn lítill kassi
sem rafgeymir er tengdur við. Ofan
á kassanum er stór appelsínugulur
poki með haus. Virknin er stillt á
tíma. Á kveðnum tíma blæs fugla-
hræðan upp þannig að hún líkist há-
vöxnum manni sem veifar hönd-
unum og æpir og galar. Einnig
blikka ljós innan í hræðunni. „Þetta
er eiginlega gamla fuglahræðan,
tæknivædd,“ segir Auðunn. Fugla-
hræður hans eru stilltar þannig að
þær „lifna við“ á tuttugu mínútna
fresti á meðan bjart er.
Hann er með þrjár hræður í um
20 hektara akri. Þær halda álftinni
alveg frá akrinum en hún er hins
vegar til vandræða á næsta bæ.
Gæsin er meira vandamál á þessum
slóðum en álftin og fuglahræðan
heldur henni líka frá akrinum.
„Finnbogi“ svín-
virkar á Rauð-
kollsstöðum
Álftin er of greind fyrir hljóðfælur
en þær halda gæs og mávi frá akrinum
Ljósmynd/Auðunn Óskarsson
Varnir Anna Margrét Ellertsdóttir
tekur um axlir „Finnboga“.
Fuglafælur
» Fáar varnir hafa dugað til
langframa gegn álft. Fuglarnir
venjast þeim og enda með að
verða bestu vinir fuglahræð-
anna og „hlæja“ að bóndanum,
eins og einn viðmælandi tekur
til orða.
» Bændur hafa ekki haft önn-
ur ráð en að fara oft á dag út á
akrana til að reka fuglinn í
burtu.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Þátturinn The Voice, sem Skjár 1
sýnir, ber höfuð og herðar yfir
keppinauta sína á föstudagskvöld-
um, Vikuna með Gísla Marteini á
RÚV og Loga í beinni á Stöð 2.
Meðaláhorf á The Voice á Skjá 1
þann 9. október sl. í aldursflokknum
12-49 ára var 24,7% samkvæmt staf-
rænum sjónvarpsmælingum Gallup.
Þátturinn Vikan með Gísla Mar-
teini mældist aðeins með 6,4% áhorf
í þessum aldursflokki en Logi Berg-
mann fer yfir hann með 10,2%.
Ungt fólk virðist ekki hafa áhuga á
þætti Gísla því sé meðaláhorfið 12-
80 ára skoðað réttir Gísli aðeins
sinn hlut. Er þá í 16% en þáttur
Loga Bergmanns er með 10,7%
áhorf. The Voice er aftur vinsæl-
astur með 22,2% áhorf. Tímaflakk
útsendingardags er tekið með í
þessum tölur en ekki uppsafnað
vikutímaflakk.
Gísli ekki á topp 10
Þátturinn Vikan með Gísla Mar-
teini kemst á hvorugu aldursbilinu á
topp 10 lista RÚV fyrir vikuna 5.-8.
október. Sé 12-80 ára bilið skoðað
trónir Landinn á toppnum og við-
ureign Íslands og Lettlands í fót-
bolta fær silfrið.
Þann 9. október bauð Gísli Mar-
teinn upp á viðtal við Aron Einar
Gunnarsson, landsliðsfyrirliða í
knattspyrnu, en þátturinn var dag-
inn fyrir viðureign Íslands og Lett-
lands. Aðrir gestir voru Ólöf Norð-
dal innanríkisráðherra, tónlistar-
maðurinn KK og Bryndís
Björgvinsdóttir. Þá tók MC Gauti
lagið.
Stökk við opnun
The Voice hefur hitt í mark fyrir
Skjá 1 og er langvinsælasti þáttur
stöðvarinnar, sem opnaði á ný dag-
skrá sína þann 1. október. Síðustu
tvær vikurnar áður en opnað var
fyrir dagskrána mældist stöðin með
5,7% meðaláhorf 12-49 ára en fyrstu
tvær vikurnar sem dagskráin hefur
verið ólæst mælist stöðin með 19,3%
að meðaltali í sama aldursflokki,
sem er 239% aukning.
Vikuna 5.-11. október sl. átti RÚV
um helming sjónvarpsáhorfs, mælt í
mínútum, Stöð 2 var með 24,3% og
Skjár einn 15,1%, sé aldurinn 12-80
ára skoðaður. Fréttastofur Stöðvar
2 og RÚV haldast nánast í hendur í
aldursflokknum 12-80 ára. Fréttir
RÚV mælast með 21,6% en fréttir
Stöðvar 2 með 21,5%.
Morgunblaðið/Eggert
Hæstu hæðir Helgi Björnsson og Salka Sól, tveir af dómurum í The Voice, syngja af sinni alkunnu snilld.
The Voice langvin-
sælast á föstudögum
Gísli Marteinn hittir ekki í mark hjá ungu fólki
Meðaláhorf 9. október 2015
Vikan með Gísla Logi í beinni The Voice
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Heimild: Gallup
12-80 ára 12-49 ára
16,0%
6,4%
10,7% 10,2%
22,2%
24,7%