Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Steingrímur J. Sigfússon áttikostulegt innlegg í umræðu um
störf þingsins á Alþingi í fyrradag.
Þar fann hann að því sem hann kall-
aði fullkomið
ógagnsæi ríkis-
stjórnarinnar „og
möndl hennar með
kröfuhöfum bak við
luktar dyr“ og átti
þar við kynningu á
afstöðu hóps kröfu-
hafa Glitnis
snemma þann
morguninn.
Vissulega er ástæða til að óttast
um hagsmuni Íslendinga í þessu
sambandi enda mikið í húfi og
margt óljóst um það hvernig gengið
verður frá slitabúum bankanna í
tengslum við afnám haftanna.
En að Steingrímur J. Sigfússon af
öllum mönnum skuli kvarta undan
skorti á gagnsæi í samskiptum við
kröfuhafa og möndl með þeim á bak
við luktar dyr er vægast sagt öfug-
snúið.
Steingrímur var annar helsti for-ystumaður ríkisstjórnar sem á
síðasta kjörtímabili stundaði stöð-
ugt baktjaldamakk með kröfu-
höfum og afhenti þeim meðal ann-
ars bankana á silfurfati án þess að
gefa á því nokkrar skýringar.
Þar var ekki einu sinni reynt aðviðhafa gagnsæi og hið sama á
við um baktjaldamakkið sem átti
sér stað með kröfugerðarmönn-
unum í Icesave-málinu.
Og til að þóknast þeim kannaðistSteingrímur ekkert við það í
umræðum á Alþingi að vera að gera
samning við þá, fáeinum klukku-
stundum áður en hann samdi.
Þá var ógagnsæið allsráðandi ogfæri betur á að Steingrímur
gerði þau mál upp en að hann veitt-
ist að öðrum fyrir þessháttar fram-
göngu.
Steingrímur J.
Sigfússon
Gagnsæ gagnrýni
um ógagnsæi
STAKSTEINAR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Breytingar á skipulagi í Úlfars-
árdal eru nauðsynlegar. Stækka
þarf hverfið meðal annars svo þær
framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru
á næstu árum við skóla, íþrótta-
mannvirki og fleira, nýtist sem
best,“ segir Guðfinna Jóhanna Guð-
mundsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins.
Yrði 10.000 manna byggð
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
samþykkt að stokka spilin hvað
varðar Úlfarsárdal með því að fjölga
byggingalóðum og íbúðum þar.
Dalurinn var við upphaf uppbygg-
ingar fyrir um tíu árum hugsaður
sem allt að 10.000 manna byggð. Út-
hlutun lóða hófst árið 2006. Upp-
haflega var gert ráð fyrir um það bil
900 íbúðum í fyrsta áfanga deili-
skipulags, sem náði til þess hluta
hverfsins sem byggður hefur verið.
Íbúðum í hverfinu var síðan fækkað í
um það bil 700. Það var gert til að
mæta mikilli eftirspurn eftir sér-
býlishúsalóðum á þeim tíma.
Í ágúst lögðu Framsókn og flug-
vallarvinir fram tillögu um endur-
skoðun skipulagsins í Úlfarsárdal.
Þar sagði að fjölga yrði litlum og
ódýrum eignum í borginni, til dæmis
leigu- og búseturéttaríbúðum í eigu
félaga sem rekin eru án hagnaðar-
sjónarmiða. Í því sambandi þyrfti að
hafa í huga hvernig mætti lækka
byggingarkostnað við hönnun, út-
færslu og byggingu húsa.
Meirihlutinn lagði fram breyt-
ingatillögu sem var samþykkt í
borgarráði. Samkvæmt henni er
gert ráð fyrir að núverandi hverfi
stækki til austurs og til norðurs.
Einnig sé mögulegt að þróa hverfið
til vesturs. Gert er ráð fyrir, sam-
kvæmt samþykktinni nýju, að íbúð-
irnar verði alls 1.400 – það er fjölgað
um helming frá því sem nú er.
Mæta markaði og óskum íbúa
„Það er mikilvægt er að vinna nýtt
skipulag Úlfarsárdalsins í samráði
við íbúa,“ segir Guðfinna. Hún bend-
ir á að íbúar hafi keypt lóðirnar mið-
að við ákveðnar forsendur.
„Koma þarf til móts við þarfir
markaðarins í dag og miða þá við
byggðina sem fyrir er. Það er hagur
allra. Nú vantar lóðir fyrir fjölbýlis-
hús og það er hægt að setja stærri
hús annars staðar en á lóðum sem nú
er gert ráð fyrir sérbýlum á. Það
vantar til dæmis fjölbýlishús með
litlum íbúðum til að bregðast við
húsnæðisvanda efnaminna fólks. Þar
má nefna félagslegar leiguíbúðir og
stúdentaíbúðir og húsnæði fyrir
þann hóp sem á ekki eigið fé, kemst
ekki í gegnum greiðslumat og leigir
langt umfram greiðslugetu á al-
mennum markaði.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úthverfið Úlfarsárdalur er smátt og smátt að ná svip heildstæðrar byggðar.
Spilin stokkuð í
Úlfarsárdalnum
Veður víða um heim 21.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 3 rigning
Akureyri 4 rigning
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 7 skúrir
Kaupmannahöfn 10 heiðskírt
Stokkhólmur 8 heiðskírt
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 10 skúrir
Dublin 13 súld
Glasgow 13 súld
London 13 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 11 súld
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 10 skýjað
Vín 10 skýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 skýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 8 léttskýjað
Montreal 7 skýjað
New York 21 heiðskírt
Chicago 20 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:39 17:46
ÍSAFJÖRÐUR 8:53 17:43
SIGLUFJÖRÐUR 8:36 17:25
DJÚPIVOGUR 8:11 17:14
Glæsileg snekkja til sölu
Tilvalin fyrir 4-6 eigendur eða einkaaðila. Snekkjan er
staðsett í Króatíu. Verð 33 milljónir.
Allar upplýsingar gefur Gunnar
í síma 663 4865 eða skip@batar.is