Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Vetrarfrí verða í grunnskólum
Reykjavíkur föstudaginn 23. októ-
ber og mánudag og þriðjudag 26.-
27. október. Fjölbreytt dagskrá
verður í boði fyrir börn og fjöl-
skyldur í frístundamiðstöðvum
borgarinnar, bókasöfnum, sund-
laugum og menningarstofnunum,
segir í frétt frá borginni.
Fjölmargt verður í boði fyrir alla
fjölskylduna í vetrarfríinu og full-
orðnir í fylgd með börnum fá frítt
inn á borgarsöfnin; Listasafn
Reykjavíkur, Kjarvalsstaði, Ás-
mundarsafn, Árbæjarsafn, Land-
námssýninguna í Aðalstræti og
Víkina sjóminjasafn. Borgarbóka-
safnið býður upp á dagskrá,
krakkabingó og í Gerðubergi verð-
ur skrímslasmiðja fyrir alla fjöl-
skylduna. Dagskána má ská á
www. reykjavik.is.
Fjölbreytt
dagskrá í
vetrarfríi
Morgunblaðið/Kristinn
Líf og fjör Boðið verður upp á fjöl-
breytta afþreyingu í vetrarfríinu.
„Þetta samstarf mun hjálpa okkur
að gera lausnina enn betri og skil-
virkari fyrir þá sem glíma við syk-
ursýki dag frá degi,“ segir Sigurjón
Lýðsson, framkvæmdastjóri sprota-
fyrirtækisins Medilync sem er að
hanna og þróa nýja tegund af tæki
og hugbúnaði til að gera meðhöndl-
un á sykursýki meðfærilegri fyrir
sjúklingana.
Nýverið gerðu Medilync og
Landspítali samstarfssamning um
prófanir á lausn fyrirtækisins.
„Fólk sem er með insúlínháða syk-
ursýki þarf að leggja mikið á sig til
að ná góðum tökum á sjúkdómnum.
Allar tækninýjungar sem gera
þetta ferli einfaldara og skilvirkara
eru vel þegnar,“ segir Rafn Bene-
diktsson, yfirlæknir á innkirtlasviði
Landspítalans og starfar með Medi-
lync að prófun tækjanna.
Mikilvægi úrvinnslu gagna
Tækinu er ætla að sameina þarfir
sykursjúkra með þeim hætti að
hægt verður að mæla blóðsykur og
gata fingur til að ná fram blóðinu.
Ef blóðsykur er lágur og insúlíns er
þörf notar sjúklingurinn insúlín-
penna. Pennanum er síðan stungið í
tækið sem les hve mikið magn var
gefið og biður notanda að staðfesta
það. Gögnunum er síðan hlaðið
sjálfkrafa upp í svokallað ský á net-
inu. „Við teljum úrvinnslu
gagnanna skipta öllu máli,“ segir
Sigurjón en þannig verði bæði hægt
að fylgjast með stöðu sjúklingsins í
rauntíma og koma upplýsingum til
heilbrigðisyfirvalda með skjótum
hætti, ólíkt því sem er í dag.
Einfaldar líf sykursjúkra
Nýtt Tækið á að sameina þarfir sykursjúkra og gera meðhöndlun einfaldari.
Tækninýjungar gera meðhöndlun sykursýki skilvirkari
Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson
Grænlenska skipið Polar Amaroq
hélt til loðnuveiða frá Neskaupstað á
þriðjudag. „Við munum veiða í nót og
ætlunin er að byrja að leita norður af
Strandagrunni Grænlandsmegin og
þaðan síðan í norðaustur. Hún er
þarna einhvers staðar. Það skiptir
hins vegar miklu máli að veður verði
sæmilegt,“ er haft eftir Geir Zoëga
skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar.
Í loðnuleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar í síðasta mánuði fannst lítið
af loðnu og verður heildaraflamark á
vertíðinni í vetur að óbreyttu 44 þús-
und tonn. Aðstæður til mælinga voru
erfiðar vegna rekíss og brælu. Til
skoðunar er að fara í aukaleiðangur í
næsta mánuði en veiðistofninn mun
síðan, venju samkvæmt, verða mæld-
ur í byrjun næsta árs. aij@mbl.is
Byrjaðir á
loðnuveiðum
Röng atvikalýsing
Í frétt sem birtist í blaðinu sl. mánu-
dag um umferðarslys á Miklubraut
við Skeifuna á sunnudag var meinleg
villa.
Þarna skullu saman tveir bílar,
jeppi og fólksbíll. Rétt lýsing á atvik-
inu er þessi: Jeppi var á austurleið
eftir Miklubraut þegar ökumaður
missti stjórn á honum, fór í gegnum
vegrið og hafnaði framan á fólksbíl
sem kom akandi eftir Miklubraut til
vesturs.
Morgunblaðið biður hlutaðeigandi
afsökunar á þessu ranghermi.
LEIÐRÉTT