Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
SVIÐSLJÓS
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Hraði er töfraorðið hér. Aftur til
framtíðar II byrjar í æði og endar í
ennþá meira æði og allt þar á milli er
æðisgenginn hraði. Frásögnin þýtur
hjá fram og aftur í tíma og hliðartíma
og stoppar aldrei til að kasta mæð-
inni og maður getur ekki ímyndað sér
hvað gerist næst, hvar og hvenær.“
Svona hefst dómur Arnaldar Indr-
iðasonar um kvikmyndina Aftur til
framtíðar II (Back to the Future) í
Morgunblaðinu hinn 16. desember
1989.
Önnur myndin í Back to the Fut-
ure-þríleiknum var frumsýnd þetta
sama ár en hún gerist að hluta til
hinn 21. október 2015. Fjölmargir
hafa beðið eftir þeim degi síðan
myndin var frumsýnd og var tölu-
verður fjöldi í Bíó Paradís þar sem
rætt var um tímaflakk og framtíðina
auk þess sem allar myndirnar voru
sýndar.
Óþokkinn Biff Tannen
Kvikmyndin gerist að litlu leyti á
þessum degi en hún hefst þar sem
fyrsta myndin endaði þegar Doc
Brown eða Doksi, leikinn af Christ-
opher Lloyd, sækir Marty McFly,
sem Michael J. Fox leikur, til að
koma í veg fyrir að fjölskylda Marty
lendi í vandræðum í framtíðinni. Eft-
ir mikinn hamagang fara þeir aftur til
1989. Veruleikinn hefur þó eitthvað
breyst og komast þeir félagar að því
að óþokkinn Biff Tannen stal DeLo-
rean-tímavélabíl Doksa vopnaður öll-
um íþróttaúrslitum framtíðarinnar
og auðgast gríðarlega á veðmálum.
Til að laga nútímann og framtíðina
þurfa þeir að fara til ársins 1955 þar
sem myndin gerist meira og minna.
Ólíkt mörgum myndum á þessum
tíma endaði myndin í rauninni ekki
heldur urðu áhorfendur að sjá þriðju
myndina til að sjá niðurstöðu tíma-
flakks þeirra félaga.
Meira gert í gríni
Þegar Robert Zemeckis, leikstjóri
myndarinnar, bjó til framtíðina árið
1989 gerði hann það meira sem grín
en alvöru. Hann hefur látið hafa eftir
sér að hann hafi ekki notið þess að
búa til 2015 árið 1989.
„Ég kann ekki við myndir sem
reyna að segja fyrir um framtíðina. Í
staðinn fyrir að reyna ákváðum við að
hafa framtíðina fyndna,“ sagði leik-
stjórinn.
Arnaldur valdi myndina eina af 10
bestu myndum ársins 1989 en hún var
þó harðlega gagnrýnd fyrir auglýs-
ingamennsku þar sem fjölmörg þekkt
vörumerki eins og Pepsi, Black &
Decker og Nike birtast hvað eftir
annað með framtíðarskilaboð.
Myndin hefur reynst sannspá um
margt, eins og flatskjái, fingra-
faraskanna, dróna og unglinga við
matarborð sem sýna tækjum og tól-
um heimilisins mun meiri áhuga en
matnum.
Eðlilega var fjölmargt sem ekki
gengur upp. Lengi hefur verið rætt
um svifbrettið, sem Marty stelur af
blásaklausri ungri stúlku og svífur
um til að forðast barsmíðar frá syni
Biff Tannen, og stoppar á miðri tjörn
vegna þess að það virkar ekki á vatni.
Brettið er ekki enn komið í verslanir
þó að einhverjar frumtýpur séu í
kortunum og hafi verið lengi. Enn
eru ekki til pitsur sem verða tilbúnar
á 5 sekúndum og hvað þá vélar sem
gera slíkt lostæti. Þá var Jaws 19
ekki gerð þó að stikla hefði verið gerð
í tilefni dagsins. Zemeckis sá reyndar
kannski fyrir sér að framhalds-
myndir yrðu vinsælastar en síðan um
aldamótin hafa aðeins tvær af vin-
sælustu myndunum, Frozen og Avat-
ar, ekki verið framhaldsmyndir. Að
endingu verður að nefna að Nike er
ekki enn komið með sjálfreimandi
skó.
Sá fyrir offituvandamál
Framtíðin eins og Zemeckis sá
fyrir sér hafði enn Díönu prinsessu,
faxtæki, símaklefa og vegir voru
orðnir óþarfir enda ferðuðust allir á
fljúgandi bílum. Alfa-svæfir Doksa
hefur ekki komið út og veðurkerfi
sem spáir um veðurbreytingar með
sekúndunákvæmni hefur ekki litið
dagsins ljós. Kannski sá leikstjórinn
fyrir offituvandamál heimsins því
þegar Marty fer á veitingastað situr
fólk á æfingahjóli um leið og það
hámar í sig skyndibita. Á sama
skyndibitastað spilar Marty tölvuleik
í spilakassa án snúru. Eitthvað sem
tölvuleikjaiðnaðurinn hefur þróað
með Bluetooth-tækninni.
Öskubuskuævintýri
Eitt sem myndin spáði var að
hafnaboltaliðið Chicago Cubs myndi
vinna titilinn í MLB-deildinni. Var
það einn stærsti brandarinn í mynd-
inni enda hefur Cubs lítið getað og
lengst af skrapað botninn. Í ár komst
liðið í svokallaðan Wild Card-leik þar
sem liðið vann Pittsburgh Pirates. Í
næsta leik vann liðið svo ótrúlegan
sigur á St. Louis Cardinals. Í gær lék
liðið við New York Mets í annarri um-
ferð úrslitakeppninnar en sá leikur
var ekki búinn þegar blaðið fór í
prentun.
„Ég er áhugamaður um hafna-
bolta og ákvað að skrifa að Cubs ynni
titilinn enda gæti það einfaldlega
ekki gengið upp. Það var mjög gam-
an að horfa á myndina með áhorf-
endum á sínum tíma því það hlógu
allir að þeim möguleika að Cubs gæti
unnið titilinn,“ sagði Bob Gale, hand-
ritshöfundur myndarinnar.
Framtíðin sem var í gær er tölu-
vert frábrugðin raunveruleikanum
sem blasir við okkur í dag en fyrir 26
árum birtist samt kvikmynd sem enn
lifir ágætu lífi – enda stórgóð.
9 spádómar sem rættust
1. Drónar
2. Bluetooth
3. Fingrafaraskanni
4. Google gleraugun
5. Skype
6. Börn og unglingar upptekin af tækjum
við matarborðið
7. Blöð eru enn gefin út
8. Þrívíddar kvikmyndir
9. Vélmenni gera hlutina auðveldari
14 hlutir sem ekki hafa ræst
1. Tímavél
2. Flugbílar
3. Alfa svæfir
4. Geisladiskar á stærð við vinyl plötur
5. Sjálfreimandi skór
6. Vélmenni sem dæla bensíni
7. Ókindin 19 (Jaws 19) var ekki gerð
8. Dómur fellur sama dag og viðkomandi er handtekinn
9. Faxtæki urðu ekki aðalsamskiptamátinn
10. Ferskir ávextir úr eldhúsloftinu
11. Matarvél sem gerir mat tilbúinn á 5 sekúndum
12. Ofurpepsi
13. Gagnvirkir sjónvarpsþjónar
14. Veðurspá upp á sekúndu
Rættist framtíð Aftur til framtíðar?
Kvikmyndin Back to the Future II gerist 21. október 2015 Tímamótunum fagnað víða í gær
Leikstjórinn vildi hafa framtíðina fyndna Hitti naglann á höfuðið nokkrum sinnum
Dagskrá:
17.30 Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
Rakel Óskarsdóttir formaður starfshóps um Sementsreit.
Kynning Kanon arkitekta.
Kynning Ask arkitekta.
Kynning Landmótunar.
18.45 Léttur kvöldverður.
19.15 Vinnuhópar.
Finndu viðburðinn á facebook –Opinn kynningarfundur um skipulagsmál á Sementsreitnum
SEMENTSREITURINN OG SKIPULAG
Opinn kynningarfundur um skipulagsmál Sementsreitsins á Akranesi
Fimmtudaginn 22. okt. kl. 17.30-20.30 í Tónbergi
Fundarstjóri er Sigríður Indriðadóttir
SK
ES
SU
H
O
R
N
20
15