Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Allir dreifingaraðilar okkar eru
mikilvægir, stórir sem smáir og
verðskulda sömu athygli,“ segir Joh-
an van Zyl, forstjóri Toyota í Evrópu
og Afríku, en hann var hér á landi
um þar síðustu helgi, en Toyota-
umboðið á Íslandi fagnar um þessar
mundir hálfrar aldar afmæli sínu.
Van Zyl segir tilefnið vera kjörið
tækifæri fyrir sig til þess að koma á
framfæri sérstökum þökkum, bæði
til starfsfólks Toyota, en ekki síst
viðskiptavina umboðsins. „Vonandi
getum við átt samleið í hálfa öld í við-
bót, hið minnsta.“
Alltaf heillaður af bílum
Johan van Zyl hóf störf hjá Toyota
í heimalandi sínu, Suður-Afríku árið
1993, en hann er með doktorsgráðu í
viðskiptum. „Ég var frekar ungur
fræðimaður, en ég hef alltaf verið
heillaður af bílum.“ Hann gerðist því
meðeigandi hjá tveimur söluaðilum
Toyota í Suður-Afríku áður en hann
gekk til liðs við fyrirtækið. Þar
kynntist hann öllum þáttum rekstr-
arins, frá framleiðslu til auglýsinga,
áður en hann var gerður að forstjóra
Toyota í Suður-Afríku árið 2003.
Hann segir stærsta muninn á við-
skiptalífinu og heimi fræðimannsins
vera þann að í akademísku umhverfi
séu menn yfirleitt að starfa einir með
sjálfum sér, en í viðskiptum skipti
samvinna öllu máli. „Enginn getur
náð árangri einn síns liðs í viðskipta-
lífinu,“ segir van Zyl. „Ég hef til
dæmis aldrei verið hræddur við að
ráða fólk sem veit meira en ég um til-
tekna hluti, því að þannig styrkirðu
sjálfan þig og hópinn.“
Horft á framleiðsluferlið í heild
Talið berst að framleiðsluferli
Toyota, sem ber heitið „Just in
time“, en van Zyl segir það snúast
um það hvernig hægt sé að gera öll
ferli betri, finna bestu úrræðin og
nýta auðlindir sem best. „Fyrirtækið
er mjög meðvitað um það hvernig
hægt sé að bæta framleiðsluferlið.
Við spyrjum hvernig við getum
hannað og framleitt bíla sem eru
endurvinnanlegir, við spyrjum
hvernig hægt sé að tryggja að fram-
leiðslan noti eins lítið vatn og skili af
sér eins litlum úrgangi og mögulegt
er.“
Spurður um framtíð jarðefnaelds-
neytis segir van Zyl að hann telji að
samfélag framtíðarinnar muni reiða
sig á marga mismunandi orkugjafa,
til dæmis sólarorku, vind eða jarð-
varma, allt eftir því hvað henti við-
komandi svæði best. Því hafi Toyota
ekki sett áherslu á einn tiltekinn
orkugjafa, heldur hafi fyrirtækið
þróað áfram mismunandi tegundir,
eins og rafbíla, tvinnbíla og nú síðast
Toyota Mirai, bíl sem gangi fyrir
vetni.
Van Zyl segir það skoðun sína að
vetni sé einn mest spennandi orku-
gjafi framtíðarinnar, og ekki bara í
bílaiðnaðinum. „Við vildum sýna
með Mirai að það væri hægt að búa
til venjulega bifreið fyrir venjulegar
akstursaðstæður sem gengi fyrir
vetni og blési eingöngu út vatni.“
Bílar endurspegla samfélagið
Eitt af áhugamálum van Zyls er
að endurgera gamla bíla. Hann segir
áhugann kominn frá föður sínum,
sem var verkfræðingur. „Hann
kenndi mér og bróður mínum að
laga hluti, og við höfðum mikinn
áhuga á því að taka hluti í
sundur og gera svo við
þá. Niðurstaðan varð
þó oftar en ekki
sú að við brut-
um þá frekar!“
segir van Zyl
og hlær.
Aðspurður
hvað hægt sé að læra af gömlu bíl-
unum segir van Zyl að hönnun bíla
sé venjulegast endurspeglun á því
sem sé að gerast í samfélaginu á
þeim tíma. „Ef þú ferð á safn og
skoðar bílana sérðu þetta glöggt.
Stundum finnurðu bíla með mjög
ríkmannlega hönnun, mjög flotta
hönnun. Svo, eins og til dæmis á
stríðstímum verður hönnunin mjög
íhaldssöm. Í bílum dagsins í dag sést
þetta líka, tískan er fjölbreyttari og
beittari.“
Hann bætir við að það sé vart
hægt að bera saman bílana í dag og
gömlu tegundirnar. „Þegar þú horfir
á rafkerfin, ökureynsluna, hávaðam-
innkun, titring, jafnvægi, öryggis-
þætti, og berð það saman við eldri
kynslóðina, þá sérðu að þessir bílar
eru ekki eins og bílarnir í dag.“ Mun-
urinn sé sá að bifreiðar dagsins í dag
séu nánast sérhannaðar í kringum
ökumanninn og þarfir hans.
Van Zyl játar því aðspurður að
bílar hvers tíma endurspegli í raun
tækniframfarir samfélagins. „Bíllinn
breytti heiminum og hann er leið-
andi afl, til dæmis í framleiðslugeir-
anum, þar sem bílaiðnaðurinn er í
fremstu röð, til dæmis í notkun
vinnuþjarka við hlið manna. Iðn-
aðurinn hefur einnig leiðandi hlut-
verk í umhverfisvernd og við að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Bílaiðnaðurinn er um margt
vegvísir á það sem er að gerast í
heiminum.“
Bílaiðnaðurinn vísar veginn
Johan van Zyl, forstjóri Toyota í Evrópu og Afríku, segir mikinn mun á bílum fortíðarinnar og
dagsins í dag Vetni verður einn af helstu orkugjöfum framtíðarinnar Öryggi skiptir meginmáli
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bílaiðnaður Dr. Johan van Zyl, forstjóri Toyota í Evrópu og Afríku, segir bílaiðnaðinn vísa veginn þegar kemur að framförum í tækni og framleiðslu. Erf-
itt sé að bera saman bíla eins og þeir séu framleiddir í dag og þá sem framleiddir voru á síðustu öld, munurinn á þægindum og öryggi sé það mikill.
Toyota tilkynnti á dögunum um
að fyrirtækið væri að vinna að
sjálfkeyrandi bíl sem yrði próf-
aður á þjóðvegum Japans.
„Ég tel að við munum ekki sjá
sjálfkeyrandi bíla bara taka yfir
á einni nóttu, heldur verður
þetta ferli í nokkrum skrefum,“
segir van Zyl, en hann telur að í
upphafi næsta áratugar verði
slík farartæki farin að sjást á
þjóðvegum.
„Það er þegar byrjað að nota
einhvers konar sjálfkeyrslu sem
aðstoð við ökumanninn til þess
að gera bílinn öruggari.“ Þannig
séu nú þegar komnir nemar í
bíla sem aðstoði við að halda
réttri lengd milli farartækja eða
við að skipta um akrein, svo
dæmi séu nefnd. Lykilspurn-
ingin sé hins vegar ekki um
þægindi heldur öryggi.
Öryggið verði
í fyrirrúmi
SJÁLFKEYRANDI BÍLAR
Sjálfkeyrandi
bíll Google hef-
ur notað Toyota
Prius í tilraunum
sínum.
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu ogmeltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
Morgunblaðið/Eggert
Afmæli Van Zyl fagnar árangri
Toyota á Íslandi síðustu hálfa öld.