Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
MAk seldi miða og gjafakort fyr-
ir 63 milljónir frá 1. janúar til vors en
á hálfum öðrum mánuði nú í upphafi
nýs starfsárs er sambærilega tala
rúmar 56 milljónir. Því er gert ráð
fyrir mikilli aukningu í miðasölu í
vetur.
Velta MAk var um 180 milljónir á
síðasta starfsári. Laun eru helsti út-
gjaldaliður upp á 80 milljónir og var
rekstrarafgangur um hálf milljón.
Starsemin er að mestu fjármögnuð
af Akureyri skv. menningarsamn-
ingi við ríkið og rennur sá samn-
ingur út um næstu mánaðamót.
Rekstrarafgangur var um 500 þús-
und.
Í haust réðst hverfisnefnd Síðu-
hverfis í það verkefni að koma upp
grasvelli vestan Síðuskóla, í sam-
vinnu við umhverfisnefnd skólans,
og útbúa stíga, hól og skjólvegg við
útikennslustofu, sem áður hafði ver-
ið komið upp. Útigrill hefur einnig
verið sett upp.
Fjármagn til verksins fékkst
vegna umhverfisátaks Akureyrar-
bæjar vegna 150 ára afmælis bæj-
arins 2012. Næsta vor stendur til að
byggja hús yfir útigrillið og vinna
frekar í stígagerð og uppsetningu
þrautabrauta á svæðinu.
Aðeins meira af Menningar-
félaginu: í kvöld verður frumsýnt
nýtt íslenskt verk í sviðsetningu
Leikfélags Akureyrar og Hofs. Það
kallast Þetta er grín, án djóks og er
eftir Halldór Laxness Halldórsson
(Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur,
sem leika í verkinu. Auk þeirra stíg-
ur Benedikt Karl Gröndal á svið.
Saga og Dóri leika sig sjálf – „ef
þau væru kærustupar“, eins og segir
í tilkynningu. Verkið ku spreng-
hlægilegt og að sögn heimildamanns
sem séð hefur æfingu er um að ræða
a.m.k. tveggja vasaklúta verk, til að
þurrka tárin úr augunum.
Verkið fjallar fyrst og síðast um
húmor og velta þau mikið fyrir sér
virði brandara. Hverju má gera grín
að og hver má gera það? Þarf maður
að sleppa því að segja alveg ógeðs-
lega fyndinn brandara bara af því að
hann er óviðeigandi? „Í þessari
rannsókn sinni leyfa þau sér að
ganga ansi langt í prófunum, svo
langt að við getum lofað því að ein-
hverjum áhorfendum mun blöskra
eða blygðast sín,“ segir í tilkynningu
frá Menningarfélaginu.
Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir
gríninu og betri helmingar Sögu og
Dóra koma einnig við sögu; Magnea
Guðmundsdóttir, eiginkona Dóra,
hannar leikmynd og búninga og
kærasti Sögu, tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason, á hljóðmynd og út-
setningar.
Söngkonan Ragnheiður Grön-
dal heldur tónleika á Græna hatt-
inum í kvöld ásamt hljómsveit. Með
henni leika Guðmundur Pétursson á
gítar, Pálmi Gunnarsson á bassa og
Kristinn Snær Agnarsson trommari.
Dúndurfréttir verða með 20 ára
afmælistónleika á Græna hattinum
annað kvöld og Agent Fresco með
útgáfutónleika á laugardaginn. Vert
er að geta þess að uppselt er á þá
tónleika. Högni Egilsson slær svo
botninn í helgina með tónleikum á
sunnudagskvöldið.
Einhverjir glöddust eflaust í gær
þegar veðurspá fyrir næstu daga var
birt. Aðrir ekki. Aðfaranótt mánu-
dagsins er nefnilega spáð hvorki
meira né minna en 18 stiga frosti á
Akureyri!
Haustið hefur til þessa verið fá-
dæma gott á Akureyri og nágrenni;
betra en sumarið sem ekki verður
lengi í minnum haft nema fyrir það
hve veðrið var leiðinlegt.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Grín, án djóks Saga Garðarsdóttir og Halldór Laxness í glænýju, eigin verki, sem frumsýnt verður í kvöld í Hofi.
Grín án djóks en veð-
urspáin er ekki grín
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Áhorfendur á listviðburði í hús-
næði Menningarfélags Akureyrar,
MAk, voru 17.000 frá áramótum þar
til fyrir nokkrum dögum. Flestir, um
3.000 manns, sáu leikritið um Lísu í
Undralandi í Samkomuhúsinu. Þetta
kom fram á fyrsta aðalfundi MAk í
vikunni.
Menningarfélagið tók yfir
rekstur Leikfélags Akureyrar,
Menningarfélagsins Hofs og Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands á fyrsta
degi þess árs.
Eitt af markmiðum með samein-
ingunni var að framleiða meira efni
og minnka yfirbyggingu. Það hefur
tekist. Í sumar var í fyrsta sinn boð-
ið upp á dagskrá yfir sumarið og
mæltist það vel fyrir, að sögn Gunn-
ars I. Gunnsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra MAk. Sumardagskrá
verður áfram í boði á næsta ári í
nánu samvinnu við fólk í ferðaþjón-
ustunni.
Á vegum MAk var komið á fót
nýju verkefni í nafni The Arctic Cin-
ematic Orchestra (ACO); að spila
inn tónlist fyrir erlendar kvikmynd-
ir, og þykir það verkefni hafa farið
vel af stað.
Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
Hvaða lit mundir þú velja?
Hafðu augun opin í dag þegar heppinn
áskrifandi hlýtur að gjöf
glæsilegan Suzuki Vitara GLX
að verðmæti 5.440.000 kr.
í lit að eigin vali.
VIÐ DRÖGUM
í dag