Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 39
FRÉTTIR 39Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Aflaverðmæti smábáta á nýliðnu
fiskveiðiári nam 23,1 milljarði
króna. Heildarafli þeirra var alls
80.717 tonn, en var 88.260 tonn árið
á undan. Þar munar mestu um
minni makrílafla og minni ýsu-
kvóta. Alls lönduðu 1.085 smábátar
afla á fiskveiðiárinu 2014/2015 og
voru 603 þeirra í krókaaflamarki,
140 í aflamark og 630 í strandveið-
um, þar af 342 eingöngu á strand-
veiðum.
Þetta kom fram í ræðu Arnar
Pálssonar, framkvæmdastjóra
Landssambands smábátaeigenda, í
síðustu viku. Alls lönduðu smábáta-
eigendur rúmlega 50 þúsund tonn-
um af þorski sem jafngildir 23,4%
af því sem veitt var í íslenskri lög-
sögu.
3,8 milljónir að meðaltali á bát
Aflaverðmæti strandveiðibáta
2015 varð 2,4 milljarðar sem skilar
um 3,8 milljónum að meðaltali á
hvern bát í brúttóinnkomu. Verð-
mæti í hverjum róðri var 160 þús-
und krónur, sem er 6,7% aukning
frá árinu 2014. Meðalafli á hvern
bát var sá mesti frá upphafi strand-
veiðanna eða 13,6 tonn, að því er
fram kom í skýrslu Arnar.
Bátum á strandveiðum hefur
fækkað á undanförnum þremur ár-
um, eftir metfjölda 2012 þegar 759
bátar voru á þessum veiðum. Ágætt
verð fékkst fyrir aflann mestallan
tímann eða 287 krónur á kíló að
meðaltali fyrir óslægðan þorsk sem
var 1% lægra en 2014. Róa mátti
alla dagana 65 á svæði D, 56 á C, 53
á B, en á svæði A voru leyfilegir
róðradagar 36 sem er fjölgun um 7
daga frá í fyrra. Þorskur var 89,2%
af aflanum, alls 7.643 tonn. Afli að
meðaltali í róðri var 575 kg og jókst
um 6,1% milli ára. aij@mbl.is
Smábátar
skiluðu 23,1
milljarði
Heildarafli var
yfir 80 þúsund tonn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Patreksfjörður Mikið líf fylgir smá-
bátum í höfnum víða um land.
Vaxtarhraða og holdafari makríls í
Norðaustur-Atlantshafi hefur hrak-
að jafnt og þétt síðan árið 2004. Sí-
aukin samkeppni um takmarkaða
fæðu er talin helsta orsökin.
Þetta eru niðurstöður rannsókn-
ar á árlegum breytileika í vaxtar-
hraða og holdafari makríls frá 1984
til 2013 sem vísindamenn frá Nor-
egi, Færeyjum og Hafrannsókna-
stofnun birtu nýlega í tímaritinu
ICES Journal of Marine Science.
Alls voru mældir 26 þúsund fiskar á
þriggja til átta ára bili sem veiddir
voru með nót við vesturströnd Nor-
egs. Sýnum var safnað í lok fæðu-
tímabils í september og október, að
því er fram kemur í frétt frá Haf-
rannsóknastofnun.
Hægt hefur á vexti makríls
Mikið hefur hægt á vexti makríls
undanfarin ár. Sem dæmi var átta
ára fiskur árið 2013 að meðaltali
jafnlangur og jafnþungur og fjög-
urra ára fiskur árið 2004. Á þessu
sama tíu ára tímabili minnkaði
meðalþyngd eftir aldri um 32%.
Niðurstöður rannsóknarinnar
benda til að bæði stærð makríl-
stofnsins og stærð norskíslenska
vorgotssíldarstofnsins hafi neikvæð
áhrif á vöxt makríls en breytileiki í
hitastigi sjávar hafði engin áhrif.
Þótt makríll og síld blandist ekki
mikið yfir sumarið keppa þessar
tegundir um sömu fæðuna.
Tilgátan er því sú að þar sem síld
byrjar sumarfæðugöngu sína ein-
um til tveimur mánuðum fyrr en
makríll hefur afrán hennar áhrif á
hversu mikil fæða er eftir á svæð-
inu þegar makríllinn kemur. Einnig
er nefnt að stækkun útbreiðslu-
svæðis makríls á fæðutímabilinu
leiðir til þess að fiskurinn þarf að
eyða meiri orku í að ferðast milli
fæðusvæðis og hrygningarsvæða.
Það gæti líka verið hluti skýringa á
hægari vexti einstaklinganna.
Fæðunám makríls er nánast ein-
skorðað við sumarið og auk þess að
nota orkuna til vaxtar notar fisk-
urinn orkuna sem hann hefur safn-
að til að ferðast milli svæða og til að
framleiða hrogn og svil. Hægari
vöxtur og lélegra holdarfar hafa
bæði neikvæð áhrif á lífslíkur ein-
staklingsins og líkurnar á því að
hrygning hans heppnist vel.
aij@mbl.is
Vöxtur og þyngd makríls minni en áður
Neikvæð áhrif á lífslíkur Síld og makríll keppa um sömu fæðuna Meiri orka í að ferðast
INNRÉTTINGUM
&RAFTÆKJUM
FRÍFORMER15ÁRAOGAFÞVÍ TILEFNI ÞÁBJÓÐUMVIÐ
15%AFSLÁTTAF INNRÉTTINGUMOGRAFTÆKJUMÚTNÓVEMBER
- 2015 -
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
15ÁRA
STOFNAÐ2000
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
15%
NÚERRÉTTI
TÍMINNTILAÐGERA
GÓÐKAUP
15ÁRAAFMÆLISTILBOÐÁ