Morgunblaðið - 22.10.2015, Side 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Um borð í Amundsen. AFP. | Undir
fögrum norðurljósum siglir olíuskip
framhjá Amundsen, ísbrjóti kan-
adísku strandgæslunnar, og hverfur
inn í eitt af sundum norðvestur-
leiðarinnar á hafsvæði sem var fros-
ið á þessum árstíma í þúsundir ára.
Ísþekjan í Norður-Íshafi hefur
minnkað vegna hlýnandi loftslags og
það hefur orðið til þess að sigl-
ingaleiðin milli Atlantshafs og
Kyrrahafs í gegnum norðurskauts-
eyjaklasa Kanada er nú opin í
nokkra mánuði á ári.
Skipherrann Alain Lacerte stend-
ur við stýrið þegar ísbrjóturinn sigl-
ir inn á flóa á siglingaleiðinni, horfir
á sjókort frá sjötta áratug aldar-
innar sem leið og breytir stefnu
skipsins með hjálp GPS-staðsetn-
ingarbúnaðar. „Þegar svæðin eru
sýnd með hvítu á kortinu merkir það
að þau eru ókönnuð,“ segir skipherr-
ann og bendir á kort sem er að
mestu leyti hvítt. „Mesti hluti haf-
svæðanna á þessum slóðum hefur
ekki verið kannaður, þannig að það
er ekki hægt að treysta á kortin okk-
ar.“
Áhöfnin notar ratsjá og hljóðsjár-
búnað til að forðast grynningar á
leiðinni. „Við viljum ekki að nein
grynning verði nefnd eftir okkur,“
segir Lacerte.
Hafsvæðin í lögsögu Kanada eru
næstum á stærð við öll aðildarlönd
Evrópusambandsins og að mestu
ókönnuð. Sundin milli eyjanna eru
grunn og sigling um ókönnuð svæði
getur verið háskaleg, jafnvel þegar
þau eru íslaus.
Sparar tíma og eldsneyti
Með því að sigla norðvesturleiðina
styttist sigling milli Lundúna og
Tókýó um 7.000 kílómetra, þannig
að þessi leið sparar bæði mikinn
tíma og eldsneyti.
Frá fimmtándu öld hafa verið
farnir tugir leiðangra til að finna
skemmri siglingaleiðir í norðri milli
Evrópu og Asíu. Norski landkönn-
uðurinn Roald Amundsen sigldi
norðvesturleiðina fyrstur manna á
47 tonna síldveiðibát, Gjøa, sem
hafði verið breytt til að þola þessa
erfiðu siglingu. Hún tók þrjú ár og
henni lauk 1906.
Undrandi á breytingunni
á ísþekjunni
Áhuginn á norðvesturleiðinni
minnkaði þó fljótlega og á síðustu
100 árum var að meðaltali gerð ein
tilraun á ári til að sigla þessa leið.
Áhuginn hefur nú glæðst að nýju
vegna þess að rýrnun ísþekjunnar
hefur vakið vonir um að siglinga-
leiðin verði greiðfær einhvern tíma á
næstu áratugum.
Vísindamenn á vegum kanadísku
ríkisstjórnarinnar, þeirra á meðal
veðurfræðingurinn Roger Provost,
nota Amundsen á sumrin til að rann-
saka siglingaleiðina, auk fleiri vís-
indamanna sem rannsaka áhrif lofts-
lagsbreytinga í heiminum.
Provost kvaðst vera undrandi á
því hversu mikið ísþekjan hefur
minnkað. „Þeir sem neita því enn að
loftslagsbreytingarnar séu raun-
veruleiki vilja ekki sjá þær, þeir eru
blindir,“ sagði Provost sem hefur
tekið þátt í rannsóknum á hafsvæð-
unum í 37 ár. „Ég gerði mér aldrei í
hugarlund að ég myndi sjá þetta.“
Rannsóknarskipið var á svæði þar
sem bátur Amundsens festist næst-
um í ís fyrir tæpum 112 árum. Pro-
vost sagði að annar kanadískur ís-
brjótur hefði þurft að snúa við á
þessum slóðum í fyrstu ferð sinni ár-
ið 1979 vegna þess að hafísinn hefði
verið of þykkur.
Á síðustu fimm árum hafa alls 117
skip, m.a. flutningaskip og skemmti-
ferðaskip, siglt norðvesturleiðina.
Óttast stórfellt
mengunarslys
Hafísþekjan hefur minnkað stöð-
ugt á síðustu tíu árum og líklegt er
að þetta ár verði það hlýjasta frá því
að mælingar hófust árið 1880, að
sögn bandarísku haf- og loftslags-
stofnunarinnar NOAA. Frá árinu
1880 hefur meðalhiti við yfirborð
jarðar hækkað um 0,8°C en á
norðurskautssvæðinu hefur hlýn-
unin verið enn meiri.
Flestir vísindamennirnir í rann-
sóknaskipinu telja ólíklegt að norð-
vesturleiðin verði jafnfjölfarin og
sumir hafa spáð vegna þess að á
þessum slóðum geta veður verið vá-
lynd. Þeir telja þó öruggt að sigling-
arnar haldi áfram að aukast á næstu
árum og segja það áhyggjuefni
vegna hættunnar á umhverfis-
spjöllum. „Stórfellt olíumeng-
unarslys eins og í Mexíkóflóa árið
2010 má aldrei gerast á norður-
skautssvæðinu,“ sagði Provost. „Af-
leiðingarnar myndu vera miklu al-
varlegri.“
Minni hafís og fleiri skip
Auknar siglingar um norðvesturleiðina Vísindamenn telja þó að siglingaleiðin verði ekki jafn-
fjölfarin og sumir hafa spáð Leiðin getur verið háskaleg vegna grynninga og slæms veðurs
AFP
Leiðangur Kanadíski ísbrjóturinn og rannsóknaskipið Amundsen.
AFP
Skipherrann Alain Lacerte skimar eftir hafísjökum með kíki.
Heimildir:
Norðurskautsráðið
Durham-háskóli í Bretlandi
Sameinuðu þjóðirnar
Bandaríska snjó- og ísrannsóknastofnunin NSIDC
Norðvesturleiðin Norðaustur-
leiðin
GRÆNLAND
KANADA
BANDA-
RÍKIN
RÚSSLAND
Norðurpóllinn
NORÐUR-
ÍSHAF
KYRRAHAF
ATLANTSHAF
Talið er að siglingaleiðin geti orðið greiðfær á næstu áratugum
vegna hlýnandi loftslags
Norðvesturleiðin
-30 til -50%
-10 til -30%
allt að -10 %
Breytingar á
ísþekju
Norður-Íshafs
Í október 2013,
miðað við
meðaltal áranna
1979-2013
Flestum að óvörum kom Bashar al-
Assad, forseti Sýrlands, til Moskvu í
fyrradag til þess að funda með
starfsbróður sínum og bandamanni,
Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
þetta sé fyrsta heimsókn al-Assads
til erlends ríkis frá því að styrjöldin í
Sýrlandi braust út árið 2011.
Samkvæmt upplýsingum sem bor-
ist hafa frá Kreml vegna heimsókn-
arinnar þakkaði al-Assad Pútín fyrir
veitta hernaðaraðstoð í Sýrlandi. Er
hún sögð hafa átt mikilvægan þátt í
baráttu stjórnarhersins við upp-
reisnarsveitir og komið í veg fyrir
frekari útbreiðslu „hryðjuverka“ í
landinu. Á fundinum lýsti Pútín því
yfir að hersveitir Rússlands myndu
halda áfram stuðningi sínum við
stjórnvöld í Sýrlandi, en al-Assad er
nú snúinn heim aftur.
AFP
Bandamenn Forsetar Sýrlands og Rússlands hittust óvænt í Moskvu í fyrra-
dag og ræddu þeir einkum hernaðaraðstoð Rússlands í Sýrlandi.
Sýrlandsforseti sótti
óvænt Pútín heim
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Við sendum
hádegismat í bökkum
og kantínum til fyrirtækja
og stofnana alla daga ársins!
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
SKÚTAN
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði