Morgunblaðið - 22.10.2015, Side 48

Morgunblaðið - 22.10.2015, Side 48
48 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015 Berlín. AFP. | Svo virðist sem svindl Volkswagen í útblástursmælingum dísilvéla hafi ekki einungis komið bílarisanum þýska í klandur – einnig er farið að hitna undir ráðamönnum í Berlín samhliða vaxandi þrýstingi þess efnis að stjórnvöld uppfylli eig- in markmið um framleiðslu raf- magnsbíla. Fyrstu viðbrögðin við fréttunum af svindlinu voru að hlutabréf í Volkswagen-samsteypunni hrundu. Var sala á dísilbílum Volkswagen í Bandaríkjunum því næst stöðvuð og 7,3 milljarðar dollarar settir til hlið- ar til að mæta hugsanlegum sektum, endurköllunum og til að endurreisa orðspor Volkswagen þar vestra. Sérfræðingar segja bílasmiðinn geta átt von á allt að 18 milljarða dollara sekt, en slík upphæð hefði, samkvæmt þýska umhverfis- ráðherranum Barböru Hendricks, hæglega getað dugað til þess að fjármagna alla þá kostnaðarliði sem tengjast framleiðslu rafmagnsbíla. Ráðamenn í Berlín hafa á undan- förnum sex árum varið um 1,7 millj- örðum dollara í rannsóknir tengdum framleiðslu rafmagnsbíla. Vinnur ráðuneyti umhverfismála nú að því að kanna hvernig best megi styrkja markaðsstöðu rafknúinna ökutækja og hafa skattaívilnanir m.a. verið nefndar í því samhengi. Rafbílavæðing fyrir árið 2020 Árið 2009 tilkynntu þýskir ráða- menn metnaðarfulla áætlun sína sem miðar að því að koma um einni milljón rafmagnsbíla á götuna fyrir árið 2020. Var samhliða þessu þróun rafgeyma sett í forgang. Nú þegar fimm ár eru til stefnu er hins vegar ljóst að enn er langt í land þar sem einungis um 19.000 rafmagnsbílar eru á götum Þýskalands. Stefan Bratzel, sérfræðingur í framleiðslu þýskra bíla, segir áður- nefnt markmið stjórnvalda „ein- faldlega ómögulegt“ í framkvæmd. Svo gæti þó farið að sá ólgusjór sem Volkswagen siglir nú í gegnum verði til þess að gæða framleiðslu rafmagnsbíla, og um leið umræðu um framleiðsluna, nýju lífi í Þýska- landi. „En til að það megi verða er þörf á samstilltu átaki bílaframleið- enda, birgðasala og stjórnvalda,“ hefur fréttaveita AFP eftir Bratzel. Ýmis fríðindi og rafstaurar Um viku eftir að upp komst um útblásturssvindl Volkswagen til- kynntu stjórnvöld í Berlín áform þeirra um mikla uppbyggingu í tengslum við aðbúnað og þjónustu rafmagnsbíla þar í landi. Stendur nú til að setja upp 400 hleðslustaura við þjónustustöðvar sem finna má í námunda við þjóðvegi landsins og eiga þeir að vera komnir upp fyrir árið 2017. Að auki sögðust ráða- menn ætla að veita eigendum raf- bíla ýmis „forréttindi“ á þjóðvegum landsins. Yrði þá leyft að aka rafbílum á ak- brautum fyrir strætisvagna og öku- mönnum gefinn kostur á því að leggja rafbílum sínum án endur- gjalds innan borgarmarka. Bratzel bendir hins vegar á að bæjar- og borgaryfirvöld eigi síðasta orðið í þeim efnum og óvíst að þau leyfi einkabílnum að keyra um á yfirfull- um akbrautum strætisvagnanna. Þjóðverjar beina kastljósi sínu á rafbíla  Vildu milljón rafbíla á götuna fyrir 2020  Ómögulegt, segir sérfræðingur AFP Í hleðslu Angela Merkel, kanslari Þýskalands, virtist heldur stúrin á svip þegar ljósmyndari náði af henni mynd þar sem hún kynnti sér nýjan rafmagnsbíl á dögunum. Vandamál Volkswagen hafa e.t.v. verið kanslaranum hugleikin. Xi Jinping, forseti Kína, skálar við Katrínu, hertoga- ynju af Cambridge, í veislu í Buckingham-höll í fyrra- kvöld, á fyrsta degi heimsóknar kínverska forsetans til Bretlands. Xi og breski forsætisráðherrann David Cameron staðfestu í gær að náðst hefði samkomulag um að kínverskt orkufyrirtæki fjárfesti í kjarnorkuveri í Hinkley Point í Somerset, sýslu á suðvestanverðu Englandi. Búist er við að margir aðrir viðskiptasamn- ingar milli landanna verði undirritaðir meðan á fjög- urra daga heimsókn forsetans stendur. AFP Bretar og Kínverjar treysta böndin Að minnsta kosti 2.139 manns biðu bana í troðningnum sem varð 24. september þegar hundruð þúsunda manna tóku þátt í síðustu trúar- athöfninni í pílagrímsferð múslíma til Mekka. Yfirvöld í Sádi-Arabíu sögðu skömmu eftir slysið að 769 manns hefðu látið lífið en hafa ekki veitt frekari upplýsingar um mann- tjónið. Pílagrímar frá meira en 30 löndum fórust í troðningnum og samkvæmt upplýsingum frá þess- um löndum er tala látinna komin í 2.139. Manntjónið var þó líklega enn meira því að yfirvöld í Sádi- Arabíu hafa ekki enn veitt upplýs- ingar um fjölda Sádi-Araba sem létu lífið í troðningnum. Á meðal þeirra sem biðu bana voru 464 frá Íran, 199 frá Nígeríu, 198 frá Malí, 182 frá Egyptalandi, 137 Bangladess, 129 Indónesíu og 116 frá Indlandi. Þetta er mannskæðasta slys í sögu pílagrímaferða múslíma til Mekka. Næstmannskæðasta slysið varð árið 1990 þegar 1.426 manns fórust í troðningi í göngum í Mína eftir að loftræstingarbúnaður bil- aði. SÁDI-ARABÍA Meira en 2.100 manns létu lífið í troðningnum AFP Sorg Íranskar konur syrgja pílagríma sem létu lífið í troðningi nálægt Mekka. Joe Biden, vara- forseti Banda- ríkjanna, skýrði í gær frá því að hann hygðist ekki sækjast eftir því að verða for- setaefni demó- krata í forseta- kosningunum á næsta ári. Hann sagði ástæðuna þá að ekki væri nægur tími til stefnu. Biden hefur tvisvar boðið sig fram í forkosningum demókrata og hafði gefið í skyn að hann væri að íhuga að bjóða sig fram í þriðja skipti. BANDARÍKIN Biden hyggst ekki bjóða sig fram Joe Biden varaforseti. Ungversk myndatökukona sem sást fella flóttamann þegar hann hljóp með barn í fanginu segist ætla að höfða mál gegn honum. Konan sem heitir Petra Laszlo var rekin úr starfi sínu hjá sjónvarpsstöðinni N1TV eftir að myndskeið af atvik- inu var birt á netinu og hún hefur verið ákærð fyrir árás á flótta- manninn. Konan heldur því fram að hann hafi breytt vitnisburði sínum eftir að hafa fyrst haldið því fram að lögreglumaður hafi fellt hann. Atvikið gerðist 8. september ná- lægt ungverska þorpinu Roszke þegar hópur flóttamanna frá Sýr- landi fór þar í gegn á leiðinni til Vestur-Evrópu. UNGVERJALAND Hyggst höfða mál gegn flóttamanni Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra Ísraels, sætti í gær gagnrýni vegna ræðu þar sem hann sakaði leiðtoga Palestínumanna í Jerúsal- em á árum síðari heimsstyrjaldar- innar um að hafa fengið Adolf Hitler til að fyrirskipa útrýmingarherferð- ina gegn gyðingum, helförina svo- nefndu. Netanyahu sagði í ræðu í fyrradag að Hitler hefði ekki ætlað að útrýma gyðingum fyrr en hann hefði hitt leiðtoga palestínskra þjóðernissinna, múftann Amin al- Husseini, í nóv- ember 1941. „Hitler vildi ekki útrýma gyðingum á þessum tíma, hann vildi vísa þeim úr landi. Og Amin al-Husseini fór til Hitlers og sagði: Ef þú rek- ur þá á brott koma þeir allir til okk- ar,“ sagði forsætisráðherrann. „Þeg- ar Hitler spurði hvað hann ætti að gera við þá svaraði múftinn: Brenndu þá.“ Ísraelskir sagnfræðingar, sem hafa sérhæft sig í rannsóknum á hel- förinni, drógu þessa túlkun Net- anyahus í efa. Þeir sögðu að Hitler hefði ekki rætt við palestínska leið- togann fyrr en eftir að útrýmingar- herferðin var hafin. Stjórnarand- stæðingar í Ísrael sökuðu Netanyahu um að gera of lítið úr ábyrgð Hitlers á helförinni. Helförin múfta að kenna?  Netanyahu gagnrýndur vegna ummæla um að leiðtogi Pal- estínumanna hafi fengið Hitler til að fyrirskipa helför gyðinga Benjamin Netanyahu Menningarhúsinu Gerðubergi Gerðubergi 3–5, 111 Reykjavík Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN www.is.gral-norden.net Bók handa heiminum Gralsboðskapurinn Kynning (á ensku) sem Christof Leuze heldur Laugardaginn 24.10.2015 kl. 09:30 Aðgangur ókeypis vasey-leuze@gral-norden.net Sími: 842 2552 „Í ljósi sannleikans“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.