Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 53
UMRÆÐAN 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Sú umræða og
áskorun hefur komið
upp undanfarna daga
að byggja eigi nýjan
Landspítala á nýjum
stað. Samtök sem
kenna sig við „Betri
spítala á betri stað“
hafa staðið fyrir aug-
lýsingu um þetta
efni. Þar eiga fjöl-
margar fullyrðingar
ekki við rök að styðjast. Sem stjórn-
armaður í áhugamannasamtökum
um uppbyggingu nýs landsspítala,
„Spítalinn okkar“, hef ég kynnst því
vel hvað búið er að vinna mikið og
gott undirbúningsstarf á undanförn-
um árum þótt vissulega sé mikið
undirbúningsstarf eftir. Samtökin
líta ekki á það sem sitt hlutverk að
berjast fyrir ákveðnum stað, en
þegar lífið liggur við, þá verður ekki
orða bundist. Að hvetja til hiks og
umbyltingar á þessu verkefni getur
haft afdrifaríkar afleiðingar.
Öll rök eru fyrir stað-
setningu við Hringbraut
Rökin fyrir uppbyggingu við
Hringbraut eru mjög afgerandi
hvernig sem á málið er litið og eru
hér nefnd nokkur dæmi.
Við Hringbraut á svokölluðum
BSÍ-reit við „bæjardyr“ Landspít-
ala mun rísa samgöngumiðstöð fyrir
allt höfuðborgarsvæðið, m.a. fyrir
Strætó og langferðabifreiðir. Þetta
skiptir miklu máli í neikvæðri um-
ræðu um umferðarmál.
Í nágrenninu eru tveir öflugir
háskólar, Íslensk erfðagreining,
lyfjafyrirtæki og margvísleg önnur
vísindastarfsemi. Háskóli Íslands er
rannsókna- og kennsluháskóli á
sviði læknisfræði, hjúkrunarfræði,
lyfjafræði, verkfræði og fjölmargra
annarra háskólagreina. Háskólinn í
Reykjavík er einnig kennslu- og
rannsóknarháskóli í fremstu röð hér
á landi á sviði tækni- og verkfræði,
m.a. heilbrigðisverkfræði. Báðir
þessir háskólar, nemendur þeirra og
kennarar eiga í miklu samstarfi við
Landspítala. Kennsla, rannsóknir
og lækningar fara einfaldlega ekki
bara fram í gegnum netið.
Sífellt fleiri nemendur búa á
stúdentagörðum í nágrenninu, sem
dregur úr umferð. Háskólaspítali er
eins og nafnið gefur til kynna jafn-
framt kennslu- og rannsóknaspítali.
Þangað sækja allir nemendur sína
menntun og þjálfun og leggja jafn-
framt mikið af mörkum til reksturs
spítalans og rannsókna.
Samband sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og Skipulagsstofnun
ríkisins hafa samþykkt þetta staðar-
val. Forstjóri Skipulagsstofnunar
hefur þar til viðbótar talið þennan
stað þann besta á höfuðborgar-
svæðinu fyrir Landspítala.
Landlæknir, forstjóri Land-
spítala og mikill fjöldi heilbrigð-
isstarfsmanna við Landspítala og
víðar hafa bent á mikilvægi þess að
ráðast í framkvæmdir við nýjan
Landspítala sem fyrst. Læknar
verða seint allir sammála um stað-
setningu enda eðlilegt að skoðanir
séu skiptar.
Ef byggður verður nýr Land-
spítali á nýjum stað mun þjóðin
þurfa að reka þrjá spítalaklasa til
næstu áratuga. Einn bætist við á
nýjum stað ef hann klárast þá ein-
hvern tíma og áfram verða hinir
tveir spítalarnir við Hringbraut og í
Fossvogi um ófyrirsjáanlega fram-
tíð. Að fenginni reynslu af stórum
framkvæmdum mun eitt stykki nýr
spítali aldrei klárast að fullu sbr. K-
byggingu Landspítala og Lækna-
garð, sem eru lítil verkefni en hafa
aldrei klárast.
Ekkert liggur fyrir um það
hvar betri spítali á betri stað ætti að
vera og nýtt skipulags- og undir-
búningsferli mundi taka fjölda ára.
Áfram verður því spítali við Hring-
braut um langa framtíð og nauðsyn-
legt að ráðast þar í ýmsar endur-
bætur og verið að hefja byggingu
sjúkrahótels á svæðinu.
Ekki verður forsvar-
anlegt að loka spítal-
anum í Fossvogi á næst-
unni enda mun álag á
spítalann vaxa hratt á
næstu árum. Þetta mun
kalla á enn frekari óhag-
kvæmni í rekstri.
Ákvörðun hefur
verið tekin um
uppbyggingu við
Hringbraut
Ákvörðun hefur verið
tekin á Alþingi og þar hafa verið
samþykkt lög um það að Landspítali
verði áfram við Hringbraut. Ýmsar
leiðir eru færar fyrir ríkið að fjár-
magna verkefnið, en mun erfiðara
að ráðast í helmingi stærra verk-
efni. Í svona mikilvægu og flóknu
máli er mikill ábyrgðarhluti að
reyna að setja verkefnið í uppnám
með einhverjum pólitískum áskor-
unum og yfirlýsingum um miklu
betri lausn. Talað er um að hægt sé
að græða svo mikið á að selja núver-
andi landsvæði og byggingar Land-
spítala við Hringbraut. Og hverjum
á að selja og hvenær? Við eigum
ekki að byggja nýjan spítala með
væntingar um að græða megi svo
mikið á núverandi landsvæði og
byggingum.
Það mun auðvitað ekki takast að
brjóta niður þá samstöðu sem er og
hefur verið um þetta verkefni. Það
er aftur á móti mikilvægt að starfs-
fólk spítalans, unga fólkið, sem er að
mennta sig á þessu sviði, og sjúk-
lingar framtíðarinnar missi ekki
trúna á því að verkefnið sé að fara
loksins í gang. Við viljum ekki ein-
hvern annan spítala á einhverjum
öðrum stað. Þannig væri verið að
gera tilraun til að ýta verkefninu yf-
ir á nýtt Alþingi og næstu rík-
isstjórn. Þegar ákvörðun eins og
þessi hefur verið tekin þá á öll þjóð-
in að standa á bak við hana og
styðja með ráðum og dáð. Það er
full þörf á því.
Um annan spítala á öðrum stað
Eftir Þorkel
Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson
» Ákvörðun hefur ver-
ið tekin á Alþingi og
öllum stjórnsýslustigum
um að Landspítali verði
áfram við Hringbraut.
Við eigum að geta treyst
því að svo verði.
Höfundur er stjórnarmaður
í samtökunum.
Ársreikningaskrá RSK
Áskorun vegna
vanskila ársreikninga!
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Áskorun um skil á ársreikningum hefur nú verið
birt á þjónustusíðu (skattur.is) þeirra félaga,
sem ekki hafa staðið skil á ársreikningi sínum
til ársreikningaskrár. Forráðamenn viðkomandi
félaga eru hvattir til að bregðast skjótt við og
senda ársreikning rafrænt, þannig að ekki þurfi
að koma til frekari aðgerða.
Unnt er að finna á rsk.is yfirlit yfir þau félög sem
ekki hafa skilað ársreikningi.
Nánari upplýsingará rsk.is
Lokafrestur til að skila ársreikningum til
ársreikningaskrár RSK rann út hinn 31. ágúst