Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 60

Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015 Frisland Goð viðhafnar útgáfa Hraun skífa með ösku úr Eyjafjallajökli Rispufrítt safírgler Handútskorið í fornum víkinga stíl og höfðaletri Handsaumuð ól úr hákarlaskinni Svissneskt hágæða sjálftrekkt gangverk www.gilbert.is JÓLAbakstur Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is „Sérstaða vistvænu brúneggjanna frá Brúneggjum felst fyrst og fremst í vist hænanna, það er aðstöðunni þar sem þær lifa og verpa sínum eggjum. Þær ganga frjálsar um gólf og hafa rúmt um sig og verpa í hreiður þar sem líkt er sem mest eftir náttúr- ulegum aðstæðum þeirra,“ segir Kristinn Gylfi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Brúneggja. „Þær kom- ast meðal annars í rykbað eða sand- bað sem er þeim eðlislægt. Brúnhænur eru af sérstökum stofni sem við höldum í Mosfellsdal og eru eggin aðeins stærri en þau hvítu.“ Kristinn Gylfi bætir við að vorið 2016 verði svo opnað fyrir útivist fyrir hænurnar þeirra. „Þær fá þá aðgang að sérstöku svæði utandyra hvenær sem þær vilja yfir daginn, þar sem þær geta komist í snertingu við náttúruna. Hænunum er ennfremur gefið gott fóður sem gerir meðal annars eggja- guluna rauðari og þá er skurnin sterk á þessum eggjum.“ Sífellt vinsælli brúnegg Sala á brúneggjum hefur aukist mikið á liðnum árum ekki síst vegna aukinnar sölu á eggjum almennt, eins og Kristinn bendir á. „Íslendingar eru vanir hvítum eggjum og flestir aldir upp við þau. Margir neytendur hafa aftur á móti valið brúnegg þar sem þeir treysta því að aðstæður séu betri hjá hænunum og líkari því sem er þeim eðlislægt frá náttúrunnar hendi heldur en hjá hænum sem hald- ið er í þröngum búrum alla ævina.“ Að hans sögn henta brúnegg vel í alls kyns matargerð og bakstur, gefa til að mynda góða lyftingu í kökum. „Oft er mælt með því að notuð séu stór egg í uppskriftir en við seljum einmitt svokölluð XL egg eða júmbó- egg en meðalvigt þeirra er um 77 g. Þau eru einnig oft kölluð morgun- verðaregg þar sem fólk vill fá góðan skammt af próteinum og orku í upp- hafi dags og því henta þau sérlega vel í morgunverðinn.“ Aðspurður hvort einhver viðmið gildi um hæfilega neyslu eggja segir Kristinn svo ekki vera. „Fólk getur borðað eins mikið af eggjum og það lystir. Egg eru holl og góð matvara og einnig ódýr miðað við marga aðra matvöru.“ Hann bætir því við að töluvert sé síðan búið var að afsanna alla gamlar mýtur um óholl- ustu eggja og samhengi blóðfitu (e. kólesteróls) í fæðu og líkama. „Eitt egg á dag eða einhverjar tak- markanir eiga því ekki við lengur. En eins og sagt er um flestar mat, þetta er allt gott hvað með öðru,“ segir Kristinn Gylfi að endingu. Hér koma svo nokkrar vel valdar uppskriftir að smákökum, ís og fleira góðgæti þar sem Brúneggin má ekki vanta: Kaklar 200 g smjör 100 g sykur 250 g hveiti 2 eggjarauður ½ tsk. hjartarsalt Hnoðað saman 175-200 g flórsykur 2 hvítur Hrært vel með hrærara, ekki þeyt- ara, í ca. 10 mín. Smurt á kökurnar. Saxa má möndlur yfir ef vill. Ólakökur 1¾ bolli hveiti 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 1 tsk. matarsódi 1¼ bolli sykur 2 egg 100 g smjör 6 msk. síróp 1 bolli haframjöl 1 bolli kókosmjöl Allt hrært saman. Sett með tveim tsk. á plötu. Gaffli stungið í kalt vatn og pressað á kökuna. Bakað við 350°F í 8-10 mín. Ís „a la mamma“ 10-12 egg, þar af 5 heil, hitt rauður. Fyrst þeyta ½ lítra af rjóma. Eggin þeytt sér, með 175 -200 g strausykri, síðan vanilla eftir smekk, þeytt vel saman, rjómanum blandað gætilega í og súkkulaðibitar ef vill. Súkkulaðibúðingur „a la mamma“ 1 peli þeyttur rjómi 100 g bráðið súkkulaði 3 eggjahvítur 3 eggjarauður vanilla 120 g strausykur 6-7 bl. matarlím Bræðið súkkulaði við vægan hita í potti. Hellið súkkulaðinu síðan í skál og blandið þremur eggjarauðum saman við súkkulaðið. Leggið til hlið- ar. Þeytið rjómann og að því loknu bætið súkkulaðiblöndunni saman við, í þremur til fjórum skömmtum. Leggið blönduna til hliðar. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt saman við. Hrærið eggjahvítublöndunni mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju, setjið í glös eða skál. Kælið í 2-3 klukkustundir. Brúnegg í bakstur til jóla  Fersk egg frá frjálsum hænum  Salan aukist mik- ið hin seinni ár  Gefa góða lyft- ingu í baksturinn. Egg Brúneggin henta vel til baksturs og gefa fyrirtaks lyftingu í kökum. Hamingjuhænur „Sérstaða vistvænu brúneggjanna frá Brúneggjum felst fyrst og fremst í vist hænanna, það er að- stöðunni þar sem þær lifa og verpa sínum eggjum,“ segir Kristinn Gylfi Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Brúnegg. Í ísinn Egg eru ómissandi í ísgerðina og fátt ljúffengara heimalagaður ís. Bakstur Eggin má ekki vanta smá- kökubakstrinum fyrir jólin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.