Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 65
kæli og er uppgefið geymsluþol
allt að 8 mánuðir, en í nýlegri
geymsluþolsmælingu kom í ljós
að deigið hélst gott í allt upp
undir tólf mánuði,“ segir Tryggvi
og bætir við að hafi meira að
segja frést af því að ýmsar ömm-
ur hér og þar um landið hafi stol-
ist til að einfalda sér jólabakst-
urinn með tilbúna deiginu.
Piparkökubakstur
leikur einn
Piparkökudeigið má hvort
heldur sneiða í smákökustærðir
eða fletja út og skera deigið með
piparkökumótum. Er jafnvel
hægt að nota deigið til að byggja
piparkökuhús en Tryggvi segir
að þá verði að gæta þess að rúlla
deigið ekki of þunnt og baka
nægilega lengi í ofni til að ná
réttum styrkleika. Þegar kemur
að því að skreyta piparköku-
húsið, -karlana og -kerlingarnar
er svo hægt að grípa til glassúrs-
ins sem kaupa má tilbúinn frá
Kötlu í fjölda lita.
„Í aðdraganda jóla seljum við
glassúrinn í klassískum litum og
bjóðum núna í fyrsta skipti upp á
fimm lita kassa. Litirnir eru í
handhægum brúsum sem má
opna og loka eftir þörfum og
mjög auðvelt er að skreyta með.“
Óhefðbundnir
dropar sækja á
Á vöruframboðinu hjá Kötlu
má greina að jólabakstur Íslend-
inga er að verða ævintýralegri.
Segir Tryggvi þannig að úrvalið
af kökudropum hafi stækkað í
samræmi við óskir neytenda.
„Klassísku droparnir með kardi-
mommu-, vanillu- og möndlukeim
standa alltaf fyrir sínu en óhefð-
bundnir dropar eru að sækja
mikið á. Þetta eru t.d. pipar-
mintudropar, appelsínudropar og
rommdropar.“
Með nýju dropunum er hægt
að gera alls kyns kúnstir í eld-
húsinu og bregða á leik með
gamlar uppskriftir. Piparmintan,
appelsínan og rommið getur líka
hentað sérlega vel til konfekt-
gerðar enda bragð sem fer vel
með súkkulaði.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sköpun Piparkökuhúsakeppni Kötlu vekur jafnan athygli.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Regnbogi Tryggvi Magnússon
með nýju glassúr-pakkn-
inguna. Þar eru margir litir
saman í einum pakka og auð-
velt að skreytakökurnar.
65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Löng hefð er fyrir piparköku-
húsakeppni Kötlu. Tryggvi segir
alltaf jafn ánægjulegt að sjá
hversu margir taka þátt, og
hversu mikið sköpunargleðin fær
að njóta sín. Skemmtilegustu kök-
urnar eru einmitt þær þar sem sést
að litlir fingur hafa fengið að
leggja hönd á plóg og á sumum
leikskólum er það stundað að
senda piparkökuhús í keppnina sem börnin hafa skreytt í sameiningu af miklum
metnaði.
„Ólympíski andinn ræður ferðinni enda skiptir mestu að taka þátt frekar en
endilega að vinna, þó svo að verðlaunin séu vegleg,“ útskýrir Tryggvi en pip-
arkökuhúsin þurfa að berast til Kötlu fyrir 3. desember og vinningshafarnir valdir
við hátíðlega athöfn í Smáralind 5. desember. Eru piparkökuhúsin síðan til sýnis í
verslunarmiðstöðinni allt fram til 20. desember.
Metnaðarfullir piparkökuarkitektar