Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 66
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mittismálið Skipta má út ýmsum hráefnum í smákökubakstrinum til að fá
hollara góðgæti. Nína í Heilsuhúsinu segir hollara ekki endilega dýrara.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Jólin eru tími kræsinga. Veislu-
borðin eru drekkhlaðin af söltuð-
um og reyktum mat og feitum sós-
um, og á betri heimilum dugar
ekkert minna en að baka fjölda-
margar sortir af smákökum.
Jónína Björg Yngvadóttir, eða
Nína eins og hún er oftast kölluð,
segir að mataræðinu á þessum
tíma árs fylgi mikið álag á melt-
ingarkerfi og líkama og til mikils
að vinna ef hægt er að gera mat-
inn ögn heilsusamlegri.
Jafnvel ef fólk er ekki tilbúið að
sleppa sykrinum og smjörinu er
það strax mikil framför að velja
hollari tegundir af sykri, hveiti og
olíum. „Það er líka upplagt að fjár-
festa í pakkningum af Acidophilus-
hylkjum og meltingarensímum til
að auðvelda líkamanum að brjóta
fæðuna niður, og hjálpa maganum
að komast í gegnum jólin.“
Oft má helminga sykurinn
Þegar kemur að jólabakstrinum
er ekki svo flókið að finna heilsu-
samlegri uppskriftir, eða breyta
gömlu uppskriftunum þannig að
þær verði hollari. Nína segir að í
klassísku fjölskylduuppskriftunum
sem gengið hafa í arf frá ömmu og
langömmu sé oft yfrið nóg af sykri
og reynandi að helminga sykur-
magnið. Í mörgum tilvikum verði
smákökurnar engu verri þó í þær
fari helmingi meiri sykur en mun-
ar miklu fyrir insúlínkerfi lík-
amans.
„Það má líka skipta hvíta unna
sykrinum út fyrir aðra valkosti,
s.s. hrásykurinn sem ekki hefur
verið unninn að sama marki og
hvíti strásykurinn og inniheldur
enn smávegis næringu úr plönt-
unni. Kókospálmasykurinn er líka
mjög hentugur í bakstur og bragð-
góður með mildan karamellukeim,“
segir Nína en minnir á að kók-
ospálmasykurinn sé sætari en
venjulegur strásykur og þurfi því
minna magn til að fá sama bragð.
„Sama gildir með stevíuna, sem
landinn er farinn að þekkja vel.
Þetta náttúrulega sætuefni er svo
sætt að þarf bara rúmlega 1-2 te-
skeiðar af stevíudropum til að
skipta út einum bolla af strásykri.
Stevían hefur það umfram aðra
sætugjafa að hún hækkar ekki
blóðsykurinn.“
Hvítt hveiti er heldur ekki það
hollasta sem setja má í líkamann
og segir Nína oft hægt að nota í
staðinn spelthveiti eða bygg í smá-
kökurnar. „Margir eru líka við-
kvæmir fyrir glúteni og erum við
með til sölu vörulínu af glúten-
lausu mjöli.“
Ekki óttast tilraunirnar
Mælir Nína með því að fólk sé
óhrætt við að prófa sig áfram með
smákökuuppskriftirnar sem fjöl-
skyldan hefur stólað á í áranna
rás. Útkoman verður kannski ekki
fullkomin í fyrstu tilraun en ekki
taki langan tíma að fínstilla upp-
skriftina svo að hún falli í kramið
en sé samt mun hollari en áður.
„Og ef fólk vill samt sem minnstu
breyta, og halda sig t.d. við hvíta
hveitið, þá má a.m.k. velja hveiti
úr lífrænu korni sem er þá örugg-
lega laust við hvers kyns óæskileg
efni sem annars kunna að hafa
verið notuð við ræktunina,“ segir
Nína. „Starfsmenn Heilsuhússins
eru boðnir og búnir að veita aðstoð
og ráðgjöf. Þeir sem vilja gera
jólabaksturinn hollari ættu endi-
lega að gefa sig á tal við okkur og
sjá hvað er í boði.“
Eplamauk í stað eggja?
En fleira þarf í kökur en þurr-
efnin. Hvað um smjörið, olíurnar,
mjólkina og eggin? Nína segir að
áhugavert væri að prófa að steikja
t.d. laufabrauð upp úr kókosolíu,
enda olía sem þolir vel hita og
gæti vel gefið laufabrauðinu
skemmtilegan keim. Þá er hægt að
fá kókosolíu sem er bragðlaus en
hefur alla sömu heilsusamlegu eig-
inleikana og venjuleg kókosolía.
„Í versluninni seljum við duft
sem getur komið í staðinn fyrir
egg og hentar t.d. þeim sem eru
með ofnæmi. Í sumum upp-
skriftum getur líka gengið að
skipta eggjunum út fyrir t.d. epla-
mauk, banana eða hnetusmjör. Það
má einnig nota í staðinn hör- og
chia fræ sem hafa fengið að liggja
í bleyti,“ útskýrir Nína.
Hvað snýr að mjólkinni mælir
Nína með „Koko“-mjólk. „Þetta er
drykkur sem er mjög líkur kúa-
mjólk í bragði og áferð og er gerð-
ur úr kókoshnetum, en er ekki
með neitt kókosbragð. Nota ég
Koko í stað mjólkur þegar ég
baka. Þá er hægt að fá rjóma úr
soja-, kóks- og möndlum, en aðeins
soja-rjóminn þeytist eins og hefð-
bundinn rjómi.“
Jólabaksturinn gerður hollari
Fjölbreytni Í Heilsuhúsinu er mikið úrval af bökunarvörum, s.s. glútenfrítt mjöl, þurrkuðum ávöxtum og hnetum, og sætuefnum sem ekki gera út af við insúlínkerfi líkamans.
Velja má ýmsa heilsusamlegri
sætugjafa sem geta komið í staðinn fyrir
hvíta strásykurinn Spelthveiti og bygg
geta líka hentað vel í smákökurnar
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
JÓLAbakstur
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
Mama B - ítölsk hönnun
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
Þessi uppskrift er í miklu
uppáhaldi hjá Nínu. Í grunn-
inn er uppskriftin fengin úr
matreiðslubók Ebbu Guð-
nýjar en Nína hefur aðlagað
hana lítillega að sínum smekk.
Fylling:
3 epli
3 döðlur ( skornar smátt)
2 tsk. kókospálmasykur
1 slétt msk. kanill
1-2 msk. ferskur sítrónusafi
Eplin þvegin, afhýdd og
kjarnhreinsuð og steikt á
pönnu við lágan hita með döðl-
unum í olíu (1-2 msk.). Eftir 3
mínútur er slökkt undir pönn-
unni og sett á pönnuna 1-2
msk. af vatni. Þá er kók-
ospálmasykrinum, kanilnum
og sítrónusafanum bætt út á
og öllu hrært vel saman. Látið
eiga sig á pönnunni á meðan
deigið er útbúið.
Deig:
1-2 egg
¾ dl kaldpressuð kókosolía eða
sólblómaolía ( sem er sérstaklega
ætluð til að steikja upp úr)
2⁄4 dl lífrænt hunang eða kók-
ospálmasykur
1 ½ dl spelt (gróft og fínt til helm-
inga)
1 ½ tsk. vínsteinslyftiduft
¼ tsk vanilluduft
Öllu hráefninu
í deigið er hrært saman. Eplin
því næst sett í eldfast mót og
deiginu svo einfaldlega hellt
yfir. Bakað í 180°C heitum
ofni í um 20 mínútur.
Dásamleg með soja- eða
hrísgrjónarjóma.
Gómsæt en
fljótleg eplakaka