Morgunblaðið - 22.10.2015, Side 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Hildur Sverris-dóttir er lögmað-ur og varaborg-
arfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
„Stjórnkerfið er öðruvísi
uppbyggt en á Alþingi og
það fer eftir því hve
mörgum nefndum og ráð-
um maður situr í hversu
mikil vinna þetta er, og
þetta er svo gott sem full
vinna hjá mér.“
Hildur vildi á dögunum
leggja niður ráð sem hún
situr sjálf í. „Maður verð-
ur að hugsa þetta út frá
heildinni en ekki eigin
hagsmunum.“
Meirihlutinn felldi til-
löguna en samþykkt var
að færa ráðið niður um
flokk svo það sé aðeins
minna greitt í nefndar-
laun. „En ég tel að það
hefði átt að stíga skrefið
alla leið því að þessum
verkefnum er auðveld-
lega hægt að sinna annars
staðar í borgarkerfinu. Borgarkerfið er of stórt og með mörg ráð og
marga sem sitja í hverju ráði.“
Hildur skrifar hálfsmánaðarlega bakþanka í Fréttablaðið. „Ég
skrifa um ýmis samfélagsleg mál og þá oft út frá hægri vinkli sem ég
tel að skipti máli að heyrist oftar. Ég skrifa samt sjaldan um borgar-
mál því mér finnst ósanngjarnt að pólitískir andstæðingar mínir geti
ekki svarað mér á sama vettvangi.“
Hver eru áhugamálin fyrir utan pólitíkina? „Mér hefur alltaf fund-
ist þessi spurning erfið. Ég hef svo sem lesið margar bækur og finnst
gaman í göngutúrum, en ég hef mestan áhuga á samfélagsmálum og
að spjalla við fólk um þau. Eftir að hafa séð myndina um Jóhönnu Sig-
urðardóttur sem sagði að vinnan væri áhugamál sitt þá get ég bara
óhikað svarað þessari spurningu eins.“
Hildur mun eyða afmælisdeginum í aðdraganda landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins. „Ég mun stússast í að skoða ályktanir og um kvöldið
verður hóf Landssambands sjálfstæðiskvenna sem verður m.a. til-
einkað 100 ára kosningaafmæli kvenna.“
Faðir Hildar var Sverrir Einarsson, rektor Menntaskólans við
Hamrahlíð, en hann lést árið 1998. Móðir hennar er Rannveig Jó-
hannsdóttir kennari og þekkt sem annar hluti af dúóinu Rannveig og
Krummi sem voru í fyrstu Stundinni okkar.
Varaborgarfulltrúinn „Öll þessi ráð eru af
góðum hug en það þarf að forgangsraða
þegar borgin er rekin með halla.“
Vinnan er áhugamálið
Hildur Sverrisdóttir er 37 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
R
agnar fæddist í
Reykjavík 22.10. 1965,
ólst þar upp fyrstu
sjö árin, átti heima á
Selfossi í tvö ár en
síðan í Kópavogi. Hann var í Kópa-
vogsskóla og Víghólaskóla, lauk
stúdentsprófi frá MR 1984, lauk
prófum í viðskiptafræði við HÍ
1988 og lauk MBA-prófi frá McGill
University í Montreal í Kanada
1992.
Ragnar var í sveit sem ungling-
ur, fyrst í Miðfirði í tvö sumur og
síðan á Fljótshólum í Flóa: „Þar
var ég hjá afabróður mínum, Þor-
móði Sturlusyni og Guðrúnu Jó-
hannesdóttur, konu hans. Þessi
sumardvöl var góður skóli og ég
kunni alltaf vel við mig í sveitinni.
Skemmtilegast var að vinna á trak-
tor en umhverfið er strangara í
dag og vélarnar mun stærri. Bæði
þessi bú voru kúabú en það var
handmjólkað fyrir norðan en
mjaltakerfi á Fljótshólum og mun
stærra bú. Ég hef alltaf haldið
góðu sambandi við frændfólk mitt
á Fljótshólum, og nú er styttra að
fara frá sumarbústaðnum sem fjöl-
skyldan hefur átt í landi Öndverð-
arness í nokkur ár.“
Ragnar segir að fyrsta launaða
starfið hans hafi verið blaðburður á
vegum Morgunblaðsins í Kópavog-
inum. Hann vann síðan með skóla
hjá útgáfufélögunum Eldhúsbók-
inni og Setbergi en á háskóla-
árunum starfaði hann hjá BYKO:
„Þar var ég fyrst við afgreiðslu-
störf, þá innheimtu og annaðist
loks bókhald tveggja dótturfyr-
Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls – 50 ára
Fríður hópur Ragnar og Íris Halla með börnunum, Patreki, Andreu, Karen og Kristófer sem er að verða fimm ára.
Er alsæll í golfinu og
í sumarbústaðnum
Afmælisbarnið Hér er Ragnar í vinn-
unni, forstjóri Norðuráls frá 2007.
Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson
Reykjavík Róbert Aron
fæddist á Landspítal-
anum 5. október 2014 kl.
00.38. Hann vó 4.980 g
og var 56 cm langur.
Móðir hans er Berglind
Svanlaugardóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.SPEGLAR SKORNIR AÐ
ÞÍNUM ÓSKUM
LED LÝSING - SANDBLÁSUM
ispan@ispan.is • ispan.is
30%
afslátturaf speglum