Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 77
irtækja BYKO. Þetta var því frá-
bær starfsreynsla með viðskipta-
fræðináminu við HÍ.“
Að loknu viðskiptafræðiprófi hóf
Ragnar störf hjá hugbúnaðarfyr-
irtækinu Hjarna og starfaði þar í
tvö ár en að loknu námi í Kanada
var hann deildarstjóri hagdeildar
og síðan deildarstjóri innanlands-
deildar hjá Samskipum 1993-96.
Hann var síðan fjármálastjóri
Básafells á Ísafirði 1996-97, hóf
síðan störf hjá Norðuráli 1997, var
þar framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs fyrirtækisins og hefur verið
forstjóri Norðuráls frá 2007.
Ragnar hefur setið í stjórn hinna
ýmsu fyrirtækja, sat um árabil í
stjórn Viðskiptaráðs Íslands og var
formaður Amerísk íslenska við-
skiptaráðsins. Hann á sæti í stjórn
Samáls, Samtaka iðnaðarins og
Hibernia Networks á Írlandi.
Ragnar er hvorki með hesta- né
veiðidellu en hefur látið golfið duga
þegar hann hefur átt frí frá vinnu
sl. 12 ár. Hann er félagi í Golf-
klúbbi Reykjavíkur og Golfklúbbi
Öndverðarness: „Þrjú elstu börnin
okkar æfa líka golf í barna- og
unglingastarfi GR auk þess sem
fimleikar og knattspyrna eru á
dagskrá. Það fer því drjúgur tími í
að fara með börnunum á mót og
aðra íþróttaviðburði. En þeim tíma
er vel varið og ég hef virkilega
gaman af að fylgjast með þessu
uppbyggilega íþróttastarfi.“ Fjöl-
skyldan hefur oftar en ekki haldið
jól á erlendri grundu, oftast í Flór-
ída: „Það styttir skammdegið að
komast í sól og golf yfir vetrartím-
ann. Krakkarnir hafa vanist þessu
og nú síðast fóru bæði mamma og
pabbi og systir mín með.“
Fjölskylda
Eiginkona Ragnars er Íris Halla
Nordquist, f. 9.10. 1969, viðskipta-
fræðingur og skrifstofustjóri hjá
Fjeldsted og Blöndal lögmanns-
stofu. Foreldrar hennar: Jón Nor-
dquist, f. 1950, d. 2008, verkstjóri í
Kópavogi, og Pálína Friðgeirs-
dóttir, f. 1951, bankastarfsmaður í
Kópavogi.
Börn Ragnars og Írisar Höllu
eru Patrekur N. Ragnarsson, f.
17.7. 1998, nemi við VÍ; Andrea N.
Ragnarsdóttir, f. 31.7. 2000, nemi
við Kársnesskóla; Karen N. Ragn-
arsdóttir, f. 3.3. 2004, nemi við
Kársnesskóla, og Kristófer N.
Ragnarsson, f. 11.11. 2010.
Systkini Ragnars eru Unnur Ása
Guðmundsdóttir, f. 24.8. 1970,
starfsmaður hjá Ási, og Örn Guð-
mundsson, f. 1.12. 1972, viðskipta-
fræðingur og fjármálastjóri Mann-
vits, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Ragnars eru Guð-
mundur Ragnarsson, f. 14.8. 1946,
viðskiptafræðingur og fyrrv. fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og Dúfa
Sylvía Einarsdóttir, f. 13.7. 1946,
tónlistarkennari í Reykjavík.
Úr frændgarði Ragnars Guðmundssonar
Ragnar
Guðmundsson
Þuríður Magnúsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka og í Rvík
Haraldur Guðmundsson
bankam. á Eyrarbakka og í Rvík
Unnur D. Haraldsdóttir
bankastarfsm. í Kópavogi
Einar Sturluson
söngkennari í Rvík
Dúfa Sylvía Einarsdóttir
tónlistarkennari í Rvík
Sigríður Einarsdóttir
b. í Fljótshólum
Sturla Jónsson
b. í Fljótshólum í Árnessýslu
Örn Guðmundsson
viðskiptafr. og fjármálastj.
Mannvits
Unnur Ása Guðmundsdóttir
starfsm. hjá Ási
Ragnar Ragnarsson offset-
prentari í Vestmannaeyjum
Anna Sigríður Einarsdóttir
fyrrv. forstöðumaður
Bókasafns Hafnarfjarðar
Hörn Hrafns-
dóttir verkfr.
og söngkona
Sturla Einarsson
húsasmíðam. í Rvík
Kristín Sturludóttir
húsfr. í Rvík
Þormóður Sturluson
b. á Fljótshólum
Ingveldur Einars-
dóttir húsfr. í
Kaldárholti
Gestur Einarsson b. á
Hæli í Gnúpverjahreppi
Benedikt
Sveinsson hrl.
Ingimundur
Sveinsson
arkitekt
Einar Sveinsson, fyrrv. forstjóri Sjóvár
Atli Sturluson
viðskiptafr. hjá
Kópavogsbæ
Hafsteinn Gunnarsson
rafeindavirki hjá Norðuráli
Sturla Þormóðsson
b. á Fljótshólum
Helga
Ingimundard.
húsfr. í Rvík
Steinþór Gestsson
b. og alþm. á Hæli
Gestur Steinþórsson
skattstjóri
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra og form.
Sjálfstæðisflokksins
Hrefna Ingimundardóttir
hagfræðingur
Árni Gunnar
Ragnarsson
þróunarstjóri
Óðinn Software
Margrét Gísladóttir
húsfr. í Ólafsvík og í Rvík
Bjarni Ólafsson
sjóm. í Ólafsvík og í Rvík
Katrín Ingibjörg Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
Ragnar Þ. Guðmundsson
prentari og forstj. í Rvík
Guðmundur Ragnarsson
viðskiptafr. og
framkvæmdastj. í Rvík
Ingunn Sigríður
Tómasdóttir Klog
húsfr. í Rvík
Guðmundur H. Þorláksson
húsasmíðam. og skrifstofustj. í Rvík
Guðmundur Ingi Ásmundsson
forstjóri Landsnets
Þorsteinn S. Ásmundsson fram-
kvæmdastj. Borgarleikhússins
Margrét Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Ólafía Jóhannsdóttir fæddist áMosfelli í Mosfellssveit 22.10.1863. Foreldrar hennar voru
Jóhann Benediktsson, prestur síðast
og lengst af á Kálfafellsstað, og k.h.
Ragnheiður Sveinsdóttir, systir Bene-
dikts alþingsmanns og sýslumanns,
föður Einars skálds.
Ólafía ólst að mestu upp hjá móð-
ursystur sinni Þorbjörgu Sveins-
dóttur, ljósmóður við Skólavörðustíg-
inn í Reykjavík, þjóðkunnum kven-
skörungi og kvenréttindakonu.
Ólafía var við nám í Reykjavíkur-
skóla, fór til náms í Askov í Danmörku
1892, var í Noregi í nokkra mánuði
1894, kynntist þar starfi Hvítabands-
ins og hélt fyrirlestra. Hún tók þátt í
stofnun Hins íslenska kvenfélags, var
formaður Hvítabandsdeildar þess frá
stofnun 1895, fór bindindisleiðangra,
m.a. um Norður-Ameríku 1897-98 og
Bretlands í eitt sumar. Hún fór svo
aftur til Noregs og stóð þar fyrir
samkomum. Ólafía var ritstjóri Æsk-
unnar 1899. Hún varð fyrir áhrifaríkri
trúarreynslu, seldi eigur sínar og
helgaði líf sitt vændiskonum, of-
drykkjumönnum, fátækum og sjúk-
um. Hún stofnaði hjálparsamtök og
heimili fyrir vændiskonur og starfaði
við þau, lengst af í Osló frá 1909, varð
forstöðukona nýs kvennahælis þar
1912, lét af því starfi 1915 vegna
heilsubrests en starfaði ötullega
áfram við hjálparstarfið og hélt víða
fyrirlestra í fjáröflunarskyni.
Ólafía sendi frá sér bækurnar Dag-
legt ljós, 1908, De Ulykkeligste
(Aumastar allra), 1916 og 1921, og
Frá myrkri til ljóss, 1925. Aumastar
allra vakti athygli í Noregi og örvaði
fjársöfnun fyrir hjálparstarfið.
Ólafía var lágvaxin, fíngerð og
rauðbirkin, skaprík, stórvel gefin og
bjó yfir hrífandi mælskulist. Hjálp-
arstarf hennar og fábrotið líferni sem
helst minnti á helga menn fyrri tíma,
gerði hana þjóðþekkta í Noregi. Í
Osló er gata kennd við hana og bauta-
steinn með andlitsmynd hennar var
reistur þar í borg árið 1930.
Árið 2006 kom út sérlega vönduð
ævisaga Ólafíu, eftir Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur.
Ólafía lést 21.6. 1924.
Merkir Íslendingar
Ólafía Jóhannesdóttir
95 ára
Þórunn Vilmundsdóttir
90 ára
Hrafnhildur Einarsdóttir
85 ára
Guðríður Árnadóttir
Gunnar Dúi Júlíusson
Júlíana Tyrfingsdóttir
Kristbjörg Gunnarsdóttir
Sigríður Björnsdóttir
Þorsteinn Pétursson
80 ára
Björg Sigríður
Lúthersdóttir
Pétur Ólafsson
Sigríður Antoníusdóttir
75 ára
Birgir Björnsson
Hilda G. Guðmundsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
Bjartmars
Ingibjörg Valdimarsdóttir
70 ára
Guðbjörg Baldursdóttir
Guðmundur Þ. Gíslason
Heimir Bessason
Jón A. Ágústsson
Ólína Arnbjörg Helgadóttir
Stefanía Magnúsdóttir
Þorsteinn Sigurðsson
60 ára
Guðrún Sveinbjörnsdóttir
Haukur Ingi Hauksson
Hörður Hákonarson
Ólafur Gunnar Ívarsson
Sigurður Kristmann
Sigurðsson
Sigurmon Þórðarson
Vilborg Kristjánsdóttir
Þórður Sigurbjörn
Magnússon
50 ára
Bjarni Ingi Steinarsson
Fríður Magnúsdóttir
Geir Gunnarsson
Ívar Guðmundsson
Jón Kristinn Guðmundsson
Karl Hjartarson
Margeir Kúld Eiríksson
Pálmi Hreinn Harðarson
Steinunn D. Brynjarsdóttir
40 ára
Aðalbjörg Sif Kristinsdóttir
Aleksandar Linta
Björgvin Elísson
Eyjólfur Snædal
Aðalsteinsson
Friðrik Kjartansson
Monika Sitarz
Rungjit Trakulma
Sigurður Gunnar Sigfússon
Unnur Ásgeirsdóttir
30 ára
Angela Ingibjörg Coppola
Ewa Barbara Forys
Hera Hannesdóttir
Ragnheiður Ósk
Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Helga ólst upp í
Svíþjóð, býr á Seltjarn-
arnesi, lauk MA-prófi í
lögfræði frá HÍ og er lög-
fræðingur hjá Símanum.
Maki: Friðrik Helgi Árna-
son, f. 1984, rekstrarstjóri
Stólpa ehf.
Sonur: Markús Jón, f.
2014.
Foreldrar: Kjartan Jóns-
son, f. 1950, hagfræð-
ingur, og Þórunn Elín
Tómasdóttir, f. 1952,
hjúkrunarritari við LSH.
Helga Grethe
Kjartansdóttir
30 ára Erla býr í Hafn-
arfirði og stundar nám í
tækniteiknun.
Maki: Ingi Björnsson, f.
1983, húsasmiður og vél-
stjóri.
Synir: Kristján Hrafn, f.
2006; Arnar Þór, f. 2008,
og Bjarni Freyr, f. 2012.
Foreldrar: Örn Guð-
mundsson, f. 1958, d.
2015, húsasmíðameistari,
og Herdís Kristjánsdóttir,
f. 1958, kennari og launa-
fulltrúi hjá Ístak.
Erla
Arnardóttir
40 ára Vilhjálmur býr á
Höfn og rekur Vöruhúsið,
list- og verkgreinahús, og
Fab Lab, nýsköp-
unarsmiðju á Höfn.
Maki: Ólöf Ingunn Björns-
dóttir, f. 1979, fjár-
málastjóri Hornafjarðar.
Börn: Hafdís Rut, f. 2001;
Björn Ívar, f. 2006, og
Magnús Már, f. 2006.
Foreldrar: Magnús Már
Vilhjálmsson, f. 1958, og
Hafdís S. Sveinbjörns-
dóttir, f. 1958, d. 2000.
Vilhjálmur
Magnússon
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -