Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 82

Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015 SÖLUAÐILAR: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 | Gullúrið Mjódd s: 587-4100 | GÞ skartgripir og úr Bankastræti 12 s: 551-4007 | Meba Kringlunni s: 553-1199 | Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 | Jón Sigmundsson skartgripaverslun Laugavegi 5 s: 551-3383 | Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 | Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 | Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 | Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 | Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Leikhópurinn Kriðpleir heldur krísufund að sínum hætti með gest- um Mengis í kvöld og annað kvöld kl. 21. Hópurinn flytur verkið Crisis Meeting sem var frumflutt á Dans- verkstæðinu við Skúlagötu í ágúst sl. „Leikhópurinn Kriðpleir er önn- um kafinn við að setja saman glæsi- lega umsókn til leiklistarsjóðs og stendur frammi fyrir ýmsum áskor- unum þar að lútandi sem áhorf- endum gefst kostur á að fylgjast með,“ segir í tilkynningu frá Mengi. Kriðpleir er skipaður Árna Vil- hjálmssyni, Bjarna Jónssyni, Frið- geiri Einarssyni og Ragnari Ísleifi Bragasyni og semur hópurinn og flytur verk þar sem raunveruleika og skáldskap er fléttað saman. Kriðpleir hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna fyrir síðasta verk sitt, Síðbúna rannsókn, og er nýkominn frá Graz í Austurríki þar sem hann sýndi verkið Tiny Guy á sviðslistahátíðinni Steirischer Herbst. Verkið verður aftur sýnt á Culturescapes í Basel í Sviss hinn 4. nóvember næstkomandi. Aðrar sýningar í Mengi á Crisis Meeting verða haldnar 1. og 9. nóvember. Krísa Kriðpleir heldur krísufund að sínum hætti með gestum Mengis. Kriðpleir heldur krísu- fund með gestum Mengis Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir stuttu kom út bókin Lausnin eftir Evu Magnúsdóttur, en ekki þarf lengi að lesa í þeirri bók til að finna sterkan svip með öðrum höfundi, nafntoguðum. Ekki liggur þó stað- festing fyrir því hver viðkomandi er og ef leitað er svara birtist aukasjálfið eins og í eftirfarandi tölvupósts- samskiptum: – Samkvæmt Gegni er Eva Magn- úsdóttir dulnefni (sjá: https://goo.- gl/iB2SHh). Af hverju dulnefni? „Mig langaði bara til að vera í friði, alveg platlaust. Ég hef áhuga á því að skrifa, að minnsta kosti þessa einu bók. En ekki að hafa andlitið á mér í auglýsingum eða nota persónu mína og líf og játningar um ægilega fíkn í kattamyndbönd eða amfetamín til að selja bók. Er enginn orðinn leiður á þessum játningakúltúr? Af hverju látum við okkur ekki öll hverfa! Ég bjóst ekki við að þetta myndi vekja viðlíka athygli og það hefur gert, dul- nefnið átti að færa mér frið en það voru mistök að leyna því í viðtali. Friðrika Benónýsdóttir er frábær blaðamaður og góð manneskja, mér þykir leitt að hafa villt um fyrir henni [í Fréttatímanum]. En allt annað sem fram kemur í viðtalinu er rétt, nema það sem varðar foreldra mína sem eru bæði íslensk og ættleiddu mig frá Afríku þegar ég var ungbarn. Og ég lifi á tveimur evrum á dag en ekki einni.“ – Hvað kom þér til að skrifa Lausn- ina? „Löngun til að verða hamingjusöm, skilja hamingjuna. Komast í gegnum ástarsorg og verða aftur sterk. Í bók- inni er allt sem ég barðist fyrir að uppgötva sjálf, og ég stend við end- inn, hann er einfaldur og sannur.“ – Það er talsvert nafnadrit í bók- inni og persónur sem þar koma fyrir, fyrirtæki og staðir, eru til í raunveru- leikanum. Fyrir vikið verður hún ævi- sögulegri – er það meðvitað og vísvit- andi? „Það er heilmargt þarna úr mínu eigin lífi, allt sem varðar fyrrverandi kærasta að minnsta kosti. Ég breyti háralitnum á þeim, víxla nöfnunum og fatasmekknum en það skiptir engu. Fyrirtæki gúglar maður bara og hendir inn sem skrauti, nema bör- unum, ég þekki Ölstofuna og veit að fólk syngur þar í útiklefa upp úr mið- nætti, það er engin játning.“ – Af hverju er þér í nöp við Eck- hart Tolle? „Mér er alls ekki í nöp við hann, margt af hans tali er inspírerandi og hefur veitt mörgum gæfu. Ég krefst þess ekki af tíu akreina hraðbraut að vera með allt of flóknar reglur, hún beinir fólki inn á fáfarnari stíga og kannski heim til sín. En fyrir Lísu í bókinni minni gerist allt of hægt og núið hans Tolle gerist ekki nógu snemma.“ – Starfsmenn Lausnarinnar eru lunknir í að brjóta fólk niður og ræða háðslega um prinsippið „að trúa því að aðrir geti gert mann hamingju- saman“. Hver er þín skoðun á því – geta aðrir gert okkur hamingjusöm? „Við sækjum styrk og hvatningu og traust í sambönd okkar við aðra. Enginn gerir okkur að neinu, en án annarra værum við smá, innra sem ytra. Stakir stafir. Ég trúi því.“ – Nú finnur Lísa sykurfroðuham- ingju í lokin fyrir tilstilli annarra, en hversu raunveruleg er sú hamingja? „Hamingja annarra er alltaf syk- urfroða, er það ekki? Hamingja ann- arra er ósannfærandi, heimskuleg, óréttlát og allt vont sem óhamingju- samt fólk getur klínt á hana. En ég er ekki sammála. Það er óhamingjan sem er alltaf eins; flöt, súr, keimlík og auðvelt að stæla upp úr öðrum. Það er miklu erfiðara að skilja hamingj- una og miðla henni, og ef mér mis- tekst í Lausninni hef ég alla vega gert mitt besta :) Má ekki annars nota broskalla í blaðaviðtölum?“ – Engisprettukynslóðin fær líka til tevatnsins, að hve miklu leyti ertu að birta þína eigin skoðun? „Það eru engar kynslóðir, eins og Hagstofan veit. Bara eigna- og skuldastaða. Fólk undir fertugu á Ís- landi á sama og ekkert og hefur borg- að langt umfram sinn skerf í langan tíma og mun gera lengi enn. Þau eru kynslóðin sem mun landið erfa, sann- arlega.“ Hamingja annarra er alltaf sykurfroða  Skrifar undir dulnefni til að fá að vera í friði Ljósmynd/Shutterstock Dulnefni Þessi mynd af Evu Magnúsdóttur er ekki mynd af Evu Magnús- dóttur, heldur af ótilgreindri konu í ótilgreindu landi. Að gera hinum margslungnageðsjúkdómi geðhvörfumskil, jafnvel bara í einföld-um leiðbeiningarbæklingi eða sjúkdómslýsingu, er ærið verk. Svo einstaklingsbundinn og marg- breytilegur er þessi sjúkdómur, hann er ólíkindatól, alveg eins og þeir sem glíma við geðhvörf geta orðið ólíkindatól meðan á veikind- unum stendur. Það eitt og sér að skrifa bók um geðhvörf og geta komið sjúkdómn- um til skila þann- ig að fólk geri sér nokkuð góða mynd af honum er því eitt og sér vel unnið verk. Enn betra er þó þegar skrif liggja dável fyrir þeim sem skrifar eins og á við um höfund bókarinnar Vertu úlfur; Héðin Unnsteinsson. Bókin verður því mun meira en „þarft“ verk og fræðandi. Héðinn skrifar um eigin veikindi; oflætis- og þunglyndiskafla, orsakir og afleið- ingar, viðbrögð sinna nánustu og umhverfisins og í þessu tilfelli eru þetta fagurfræðiskrif. Héðinn veltir við mörgum steinum og eftir sitja spurningar um áherslu nútímans á það að eygja frávik og greiningar á þeim. Sjálfur hefur Héðinn sagt í viðtali að hann hafi aldrei litið á geðhvörf sem alvöru- sjúkdóm, heldur ákveðinn hluta af persónuleika. Sem ýmist óstjórnlega orku eða enga. Hvað svo sem þeim pælingum um sjúkdóm eða ekki sjúkdóm líður er það oft helsti annmarkinn á skrifum sjúklinga um eigin geðhvörf að uppátæki þeirra og oflæti og flókin atburðarás í veikindakaflanum geta skilað sér illa í línulegri frásögn þannig að venjulegur lesandi fylgi. Héðinn nær hins vegar því jafnvægi í frásögninni að lesandinn nær að fylgja honum og hans frjóu og hröðu hugsun án þess að höfundur dragi úr og „dempi“ lýsingu á upplifun sinni svo auðveldara sé fyrir okkur hin að elta hann um sín holt og hæðir. Textinn er ekki of tilfinninga- þrunginn þrátt fyrir fallegt og mikið myndmál, oft kómískt. Það er frum- legt, fágað og ekki er það síst því að þakka að lesandinn fær glögga mynd af oflætis- og þunglyndis- ástandinu til skiptis. Næm skynjun á umhverfinu skilar sér svo í áhuga- verðum umhverfis- og mannlýs- ingum. Þrátt fyrir lipurt og ljóðrænt myndmál er textinn í raun lág- stemmdur í sirkus atburðarásar- innar. Setningar eru sjaldan langar, oftast fremur stuttar, sem býr til ákveðinn takt sem venst vel. Það er mikill kostur að lesandinn er ekki mataður á orsökum og afleiðingum heldur fær að eiga krefjandi mótleik í að mynda sér eigin skoðanir. Þrátt fyrir að Héðinn sé gagnrýninn ein- kennist sú gagnrýni ekki af réttlæt- ingum og hann sneiðir fimlega hjá því að gera bókina að áróðursriti með því hvað sé rétt og rangt. Það er nóg af gráum svæðum og lesandinn fær svigrúm til að vera honum ósam- mála. Morgunblaðið/Eva Björk Höfundurinn Héðinn Unnsteinsson. Nóg af gráum svæðum Sjálfsævisaga Vertu úlfur bbbbn Eftir Héðin Unnsteinsson. JPV útgáfa, 2015. Innbundin. 192 bls. JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.