Morgunblaðið - 22.10.2015, Side 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Hörkutólið Mórún Hróbjarts
Í skugga Skrattakolls
bbbnn
eftir Davíð Þór Jónsson.
Kaldá, 194 bls. kilja.
Álfamærin
Mórún Hró-
bjarts er mikið
hörkutól, hug-
rakkur og víg-
fimur bogliða-
foringi. Þegar
sagan hefst er
hún stödd í
Faravík og hef-
ur nýlokið verk-
efni sem ekki er
tíundað frekar, en snýr að sambýli
manna og álfa. Mórún vill helst vera í
hasar og látum og tekur því fagnandi
þegar hún er beðin að koma í veg fyr-
ir að óprúttnir komist yfir drekaegg í
Sviðnavatni. Fljótlega kemur í ljós að
Mórún þarf ekki bara að beita bar-
dagalist, heldur krefst lausn verkefn-
isins athyglisgáfu og íhygli. Já og
galdrakunnáttu.
Af þessari stuttu lýsingu má vænt-
anlega ráða að sagan af Mórúnu er
mjög ævintýraleg og í bókinni birtast
líka alls kyns furðuverur og for-
dæður. Þetta er þó ekki bara æv-
intýri, heldur líka snúin saga af glæp-
um og illvirkjum. Heimurinn sem lýst
er í bókinni er reyndar fulllos-
aralegur, það hefði mátt segja minna
og leyfa manni að geta í eyðurnar, en
Mórún er sannkallaður töffari en líka
tilfinninganæm og viðkvæm á sinn
hátt.
Engin venjuleg barnasaga
Dúkka
bbbmn
eftir Gerði Kristnýju.
Myndir eftir Lindu Ólafsdóttur.
Mál og menning, 2015. 97 bls. innb.
Þótt Kristín Katla sé orðin tíu ára
er hún ekki hætt að leika sér með
dúkkur, eða réttara sagt eina tiltekna
gerð af dúkkum sem hún, og allar vin-
konur hennar, er vitlaus í. Fljótlega
kemur þó í ljós
að umræddar
dúkkur eru
óvenjulegar í
meira lagi.
Strax á kápu
Dúkku sést að
þetta er engin
venjuleg barna-
saga, eða af
hverju eru bara
sölnuð blóm á veggfóðrinu? Reyndar
fer sagan sakleysislega af stað … og
þó, það er eitthvað óvenjulegt við
dúkkurnar í Leikfangabúðinni og
reyndar við búðina sjálfa. Ekki bara
eitthvað óvenjulegt, heldur óhuggu-
legt, ógnandi.
Þetta er einkar vel skrifuð saga
með þekkilegum óhugnaði, ekki of
hryllileg en þó nóg til að maður fái
gæsahúð við lesturinn. Hönnun er til
fyrirmyndar og myndir eru vel
heppnaðar.
Óttalegur vökudraumur
Vetrarfrí
bbbbn
eftir Hildi Knútsdóttur.
Mál og menning, 2015. 263 bls. innb.
Sagan hefst þar sem Bergljót er á
leið í skólann síðasta daginn fyrir
vetrarfrí. Hún hlakkar að vonum
mikið til þess að komast í frí en mesti
spenningurinn er þó vegna fyrirhug-
aðs tíundabekkjarpartís þar sem hún
vonast til að komast í tæri við Grím,
sem hún hefur verið skotin í síðan í
áttunda bekk. Svo eru mamma henn-
ar og pabbi á leið í rómantíska sum-
arbústaðarferð
og Bergljót fær
að gista hjá
bestu vinkonu
sinni, en Bragi
bróðir hennar,
sem er svolítið
sérstakur, fær
að gista hjá vini
sínum.
Örlögin haga
því þó svo að
Bergljót og
Bragi þurfa að fara með pabba upp í
sumarbústað, en mamma þeirra verð-
ur heima til að vinna. Það blasa því
við tóm leiðindi, eða svo heldur Berg-
ljót þar til pabbi hennar fer með
Braga út í fótbolta á sparkvöll
skammt fá sumarbústaðnum og
drengir sem eru á vellinum fara
skyndilega að kasta upp og deyja síð-
an hver á fætur öðrum. Fljótlega
kemur í ljós að þetta er engin venju-
leg plága.
Þetta er einkar vel skrifuð saga, of-
beldi í henni skemmtilega blóðugt og
hrottalegt, persónur margræðar og
trúverðugar og hörmungarnar sem
dynja yfir vel útfærðar, eins og ótta-
legur vökudraumur. Svo er bráðsnjall
snúningur í lokin, í síðustu setning-
unni, sem fær mann til að skella upp-
úr. Mjög vel gert.
Sagan af Sögu
Skuggasaga – Arftakinn
bbmnn
eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur.
Vaka-Helgafell, 2015. 412 bls. innb.
Arftakinn
segir frá Sögu,
tólf ára gamalli
stúlku sem býr
með Guðmundi
föður sínum og
Geira bróður
sínum. Hún á
það til að
gleymast á
heimilinu og
reyndar í skól-
anum líka, það
virðist enginn taka eftir Sögu. Móðir
hennar er dáin en á heimilinu er ráðs-
kona sem hverfur skyndilega. Sú eina
sem grefst fyrir um hvarfið er Saga
og kynnist þá óvætti, skuggabaldri,
sem skýrir henni frá því að hún sé í
raun álfamær og hann sé kominn til
að fylgja henni heim.
Við tekur ansi mikið ævintýri og
það er mikið undir í Arftakanum, heill
heimur sem þarf að lýsa, furðudýr og
aðrar uppákomur. Ragnheiður fellur
þó í þá gryfju að segja okkur of mikið,
lýsa of mörgu í stað þess að leyfa les-
andanum að geta í eyðurnar og beita
ímyndunaraflinu og fyrir vikið verður
bókin heldur langdregin á köflum.
Svo er allt í yfirstærð, ekki bara stórt,
heldur risastórir hellar, risastórar
slöngur, risastórar þjálfunarbúðir,
gríðarstórar styttur, gríðarstórar
brúarundirstöður og gríðarlangir
hrammar. Stíllinn á bókinni er ekki
nógu góður og málfari ábótavant og
svo hefði mátt klippa hressilega fyrir
minn smekk – það tekur ríflega
hundrað síður að snúa söguna í gang.
Forneskja og furðuverur
Drauga-Dísa
bbbbn
eftir Gunnar Theodór Eggertsson.
Vaka-Helgafell, 2015. 287 bls. innb.
Dísa á dapra
daga í skólanum
því hún verður
fyrir einelti þótt
hún eigi sér góða
vinkonu. Hún
tekur því fegins
hendi að fara
með foreldrum
sínum í sumar-
bústað sem
byggður var á
rústum eyðibýlis. Á því eyðibýli ólst
Björn upp, 300 árum fyrr, í forneskju
og ótta við furðuverur íslenskra þjóð-
sagna. Örlögin haga því svo að þau
hittast og lenda í óttalegu ævintýri.
Þetta er býsna óhugnanleg bók á
köflum, ofbeldið harkalegt, dauði og
djöfull og svo er fullt af ófreskjum úr
íslenskum þjóðsögum, þar á meðal
skoffín, tröll, fjörulallar, galdrahyski,
uppvakningar og Ókindin, sem leikur
reyndar býsna stórt hlutverk í sög-
unni.
Björn er reyndar óttaleg gufa, þótt
hann taki á honum stóra sínum í lok-
in, en Dísa er góð söguhetja, hæfilega
brothætt og breysk en hörkutól þeg-
ar á hólminn er komið.
Framvindan er hröð og skemmti-
lega skipt á milli tímaskeiða, stökkið
frá 21. öldinni á þá 18. og aftur til
baka og litlum tíma eytt í að tyggja
ofan í lesandann það sem hann getur
gert sér í hugarlund. Eina sem út á
söguna má setja er að fjórði hluti
hennar, Af draugum ertu komin, er
losaralegur – hugmyndin er svo snjöll
að það hefði eflaust mátt vinna hana
betur.
Að því sögðu þá er hér komin
einkar fínn bræðingur af forneskju
og nútíma, bráðspennandi saga og
skemmtilega hryllileg.
Kápan á bókinni er frábær.
Hryllingur og
hörmungar og hasar
Yfirlit yfir ævintýralegar íslenskar ungmennabækur.
Gerður
Kristný
Gunnar Theódór
Eggertsson
Hildur Knútsdóttir
Ragnheiður
Eyjólfsdóttir
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Davíð Þór Jónsson
Tónlistarmennirnir Jón Ólafsson og
Futuregrapher, réttu nafni Árni
Grétar Jóhannesson, halda útgáfu-
tónleika annað kvöld kl. 21 í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar vegna
nýrrar sveimplötu sinnar, Eitt. Sam-
starf þeirra hefur vakið allnokkra
athygli þar sem þeir koma úr ólíkum
tónlistaráttum; Jón úr poppi og
rokki en Árni er einn afkastamesti
raftónlistarmaður landsins. Jón mun
leika á flygil á tónleikunum og Árni
leggja til áhrifahljóð og tóna af ýmsu
tagi. Á tónleikunum koma einnig
fram Elín Ey og Murya.
Jón og Árni kynntust í gegnum
Facebook-grúppuna „Íslensk raf-
tónlist“ þar sem Jón mætti til leiks,
rafheilum landsins til mikillar undr-
unar, eins og Jón lýsir því. Hann
segir þá Árna hafa ákveðið að gera
plötu saman og niðurstaðan orðið
sveimtónlist þar sem Jón spann
mínímalíska píanótónlist sem Árni
skreytti með áhrifahljóðum, hljóð-
gervlum og ýmsum hljóðum öðrum.
„Einhverjir kynnu að kalla tónlistina
neo-klassík og vissulega er stutt á
milli en þekking Futuregraphers á
raftónlist og þ.m.t. ambient og hans
framlag til hljómplötunnar færir
hana umsvifalaust í ambient-rekk-
ann í plötubúðum heimsins,“ segir
Jón. Platan sé jafnframt sú fyrsta
frá Möller Records þar sem píanóið
sé í forgrunni.
Samstarf Jón Ólafsson og Árni Grétar sem kallar sig Futuregrapher.
Jón og Futuregrapher
leika í safni Sigurjóns
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
INNRÉTTINGA- OG
SKÁPAHÖLDUR
Í MIKLU ÚRVALI
UM
400
GER
ÐIR
!
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16