Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 18
JÓLABLAÐ1988 ViKurt Ungir Keflvíkingar í framhaldsnámi erlendis: „Eitt ævin- týri útí gegn“ Við vorum lentir í Stuttgart. Skelltum okkur í eina af þessum fáránlegu dagsferðum. „Flug- leiðir þakka samfylgdina og óska ykkur góðrar dvalar í Stuttgart“ hljómaði í flugfreyj- unni sem þakkaði sínum sæla að vera komin á áfangastað með 130 Islendinga á leið í Boss- fataverksmiðjuna og á leik með Asgeiri Sigurvinssyni. Landinn var samur við sig á leiðinni, kláraði bjórforðann í vélinni og var til í slaginn. Flugstöðin í þessari stóru borg, sem hýsir um milljón manns, er þó aðeins eins og eitt klósett í Leifsstöð. Ja, hérna, hugsaði ég, það er ýmist of eða van. Við sýndum vegabréfin og brostum framan í þýsku tollverðina, sem sinntu starfi sínu af alvörugefni. Auglýsing um tillögu að breyttu miðbæjarskipulagi í Keflavík Samkvæmt 17. grein skipulagslaga nr. 19/ 1964 er lýst eftirathugasemd- um við tillögu að breyttu miðbæjar- skipulagi í Keflavík. Skipulagssvæðið afmarkast að sunn- anverðu af Tjarnargötu, að vestan af Kirkjuvegi. Að norðan af Norð- fjörðsgötu og að austanverðu af sjón- um. Tillagan liggur frammi á skrifstofu byggingafulltrúa, Hafnargötu 32, Keflavík, frá 10. nóvember 1988 til 22. des. Athugasemdum við tillög- una skal skila til byggingafulltrúa Keflavíkur eigi síðar en 7. janúar 1989, og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir inn- an tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Keflavík 19. október 1988 Bæjarstjórinn í Keflavík Skipulagsstjóri Ríkisins. Fl 941 KEFLAVIK DF 2048 MUENCHEN^ Ltt 201 FRANKFURT~ SJ 2594 LAS PALMAS ;J 205 FRANKFURT MD0N HAMBURG 833 M-Y0RK-ZURICH Halla og Hrannar í flugstöðinni í Stuttgart, benda á „hóm svít hóm“. Frammi fyrir biðu tvö keflvísk pör, annars vegar Halla Bene- diktsdóttir og Hrannar Hólm og hins vegar Guðbjörg Jóns- dóttir og Omar Ellertsson. Allt keflvískir nemar í Stuttgart. Þau síðarnefndu voru að taka á móti mömmum sínum sem nýttu sér dagsferðina til að heimsækja „börnin“ sín. Við ætluðum hins vegar að eyða deginum með Hrannari og Höllu. Hrannar fylgdi okkur fyrst í Boss-verksmiðjuna, sem var eins og flóamarkaður, full af æstum Þjóðverjum í fata- kaupum. „Þeir keyra jafnvel í marga klukkutíma til að koma í verksmiðjuna og versla,“ sagði Hrannar, aðspurður um þennan mikla áhuga þeirra fjölda Þjóð- verja, að versla í þessari þekktu fataverksmiðju. „Við erum á versta tíma. Heimamenn eru í fríi á laugardögum og nota tím- ann til að versla.“ Eftir árang- urslitla heimsókn í verksmiðj- una var haldið til heimavallar Stuttgartliðsins. Það tók sinn tíma en þegar við komum á áfangastað hittum við Höllu og Astu, eiginkonu Asgeirs, og slógumst í för með þeim. Aður en við fórum inn á leikvanginn notuðum við tækifærið og feng- um okkur þýska pulsu, með brauði og sinnepi, skoluðu nið- ur með úrvalsbjór. En það voru „Hamborgarar" sem öttu kappi við Asgeir og félaga inn á knattspyrnuvellinum. Asgeir hitaði upp en meiðsli hrjáðu hann, þannig að Eyjapeyinn endaði á bekknum. Hvílík von- brigði hjá okkur 130 íslending- um. Leýkmenn Stuttgart bættu okkur Ásgeirsmissinn upp og unnu sigur í frábærum leik. Við ákváðum að fara á veit- ingahús að loknum leik. „Eg veit um góðan stað,“ sagði Halla. „Get ég ekki tekið viðtal við ykkur þar?“ spurði ég. „Við okkur?“ sagði Hrannar hissa. „Já, ykkur“ svaraði ég. „Fólk- ið heima vill fá að vita hvernig það er að vera í öðrum löndum að læra, þar sem hvorki er slát- ur eða hangikjöt. Eftir stuttar samræður um leikinn snérum við dæminu við og ég spurði þau út í veruna í Þýskalandi. Mikill háskólabær Hrannar og Halla komu til Tíibingen haustið 1986. Þetta er mikill háskólabær og stend- ur skammt fyrir utan stór- borgina Stuttgart, þar sem ís- lenska knattspyrnuhetjan, As- geir Sigurvinsson, býr og leik- ur með knattspyrnuliði borg- arinnar. í Tiibingen setja stú- dentarnir mikinn ,,svip“ á bæ- inn, enda eru þeir þriðjungur hans, um 25 þúsund. „Það snýst nánast allt um háskól- ann og það sem tengist hon- um, enda starfa mörg hundruð manns við hann. Það er mikið af fólki í þjónustustörfum sem tengjast skólanum og auðvitað öllu námsfólkinu sem býr í stúdentaíbúðunum í bænum,“ segja þau HrannarogHallaog skoða matseðilinn vandlega. Unga parið úr Keflavík var með heppnina með sér þegar þau komu fyrst til bæjarins til að hefjasittnám, haustið 1986. „Við gerðum okkur enga grein fyrir því að það væri erfitt aðfá íbúð hérna. Við fórum á leigu- miðlun sem benti okkur á íbúð sem við skoðuðum strax. Nú, við fengum íbúðina og fannst ekkert sjálfsagðara en fengum að vita eftirá að við vorum fjórtánda parið sem skoðaði þessa einu íbúð, sem er 2ja her- bergja í sexbýli, en það er mjög erfití að fá íbúð hérna í bæn- um. Hvað réði því að við feng- um hana vitum við ekki. Við hljótum að hafa verið ábyggi- leg á svipinn, sem við auðvitað erum. Leigan kostar 15 þús. krónur á mánuði sem er sann- gjarnt.“ Ævintýri Þegar þau Halla og Hrann- ar voru búin að koma sér fyrir þurftu þau að fara í inntöku- próf í þýsku, sem er skilyrði til að vera tekin inn í skólann. Hrannar var vel undirbúinn undir prófið eftir sitt fyrra nám en Halla hafði ekki sömu sögu að segja, þannig að hann náði prófinu en hún ekki. Halla þurfti því að fara í einn- ar annar nám í þýsku, sem hún og gerði og hóf síðan nám sitt í sálfræði strax eftir áramót. Hrannar fór í íþróttafræði og einnig líffræði. En hvernig tilfinning er það að fara að heiman, burt frá öll- um vinum og ættingjum til að hefja nám í fjarlægu landi? „Þegar út er komið gerir maður sér óljósa grein fyrir því hvað maður er aðfara út 1. Mér finnst þetta bara eitt ævintýri út í gegn. Vissulega var byrj- unin erfið. Við komum hingað tvö, þekktum engan, erfiðleik- ar í tungumáli, þó það sé fljótt að koma, og erum í tímum með 200 öðrum krökkum. Og svo áttum við ekki þvottavél," segir Hrannar. Þvottavél? spyr ég undrandi. „Við vorum að sjálfsögðu líka bíllaus,“ bætir Halla við, „og því þurftum við að ganga með þvottinn til vina okkar, í minnst hálftíma, þar sem við fengum að þvo, oft í frosti og miklum kulda. En svo kom að því að við keyptum okkur bæði þvottavél og bíl, þannig að þetta ,,ástand“ var- aði aðeins fyrsta veturinn. Annars sættir maður sig ótrú- lega vel við þetta og finnst þetta ekki stórt vandamál á meðan þetta stendur yfir. Það er ekki fyrr en maður hugsar til baka að það fer hrollur um mann. „Eg man að einu sinni hringdum við heim úr síma- klefa í 25 stiga frosti. Við skulfum úr kulda, sjálfir Frón- búarnir. Svo þegar við vorum að kvarta yfir kuldanum við skólafélaga okkar spurðu þeir hissa: Hva? Eruð þið ekki ís- lendingar?“ Halla og Hrannar hlógu bæði. Fannst sennilega spurn- ing skólafélaga sinna jafn fár- ánleg og þeim fannst spurning þeirra um þennan kulda. „Það hefur ekki komið ein mínúta frá því við komum sem maður hefur getað sagt að þetta væri erfitt og leiðinlegt," segir Hrannar og verður litið til Höllu. Hún tekur undir orð hans og segist svo sakna mest að fá ekki íslenskan lakkrís. Þjónninn kemur í þann mund með steikurnar, sem verður til þess að Hrannar minnist á ís- lenska matinn: „Eg sakna ís- lenska lambakjötsins, sunnu- dagshryggjarins hennar mömmu. Stundum langar okkur líka í fisk, auðvitað frá íslandi. Við höfum oft keypt Tiann hér í nokkrum búðum, ^em.nú eru hættar að selj’ann -vegna hvalveiðideilunnar.” Halla segir að matarúrvalið sé þó mikið í Þýskalandi. „Græn- metið er gott hérna og líka brauðið.“ Sumrin góð Okkur verður tíðrætt um veðrið en þennan dag var frek-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.