Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 43

Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 43
muR (tittít Noregsferð 5. bekkjar Gerðaskóla: „Fannst full- snemmt að fara að sofa klukkan tíu“ JÓLABLAÐ 1988 Hópurinn á Bygdö í Osló. um krökkum sem sungu há- stöfum lög sem við höfðum aldrei heyrt og skildum ekk- ert í (en við sungum fyrir þau seinna). Eftir klukkutímaakst- ur var komið til Hurdal Hotel- sem átti að vera heimili okkar var komin kveðjustund. Það var erfítt að kveðja nýju vinina og ekki laust við að sumir væru votir um augun. En Oslóborg beið okkar, því þar áttum við að dvelja frá laugardegi til mánudagskvölds. í Osló mætti okkur steikj- andi hiti, sem var eitthvað annað en rigningin heima. Þar var tekið á móti okkur oe hópnum skipt niður í tvo rútu- bíla. Annar bíllinn þurfti að hinkra eftir færeyskum hóp frá Tvöröyri en hin fór strax af stað. Rútan var full af norsk- næstu vikuna. Virðulegur maður sem hét Finn bauð okk- ur velkomin á Nordisk Barne- kongress. Svo komu hóparnir hver af öðrum, tveir íslenskir skólar, einn færeyskur, einn danskur og fimm norskir. Um kvöldið kynntumst við herbergisfélögunum en okkur vaka smástund og þá voru sýnd myndbönd með atburð- um dagsins. Og síðan var farið að sofa kl. 10. Okkur fannst það nú fullsnemmt en við komumst fljótt á aðra skoðun, dauðþreytt eftir skemmtilegan dag. Vikan leið hratt og allt í einu Það var einn morgun að Ei- ríkur skóiastjóri kom inn í skóla- «stofu til okkar og spurði hvort við hefðum áhuga á að fara í skólabúðir í Hurdal í Noregi að loknu skólaárinu. Þar átti að halda Nordisk Barnekongress eða Norrænt Barnaþing. Eins og við mátti búast höfðu allir áhuga. Fyrst þurfti að hafa fund með foreídrum og þau voru líka spennt fyrir þessu. Svo hófst undirbúningurinn. Fyrst þurfti að reyna að fjár- magna ferðina. Haldin var vorhátíð fyrir alla Garðbúa og seldar vöfflur og kafft. Þá var gefið út blað og haldin tomb- óla og ýmislegt fleira. Ekki má heldur gleyma því að mörg fyrirtæki og félagasamtök styrktu ferðasjóðinn. Ferða- sjóðnum var síðan skipt á milli okkar og 7. bekkjar, sem átti að fara til Danmerkur um haust- ið. Einnig þurfti að búa til veggspjöld og fleira til þess að kynna heimabyggðina okkar fyrir hinum krökkunum í skólabúðunum. Lokst rann ferðadagurinn upp eftir langa og stranga bið. Eldsnemma að morgni 29. maí mættum við öll, 17 talsins, upp á flugvöll ásamt fararstjórun- um okkar, Eiríki Hermanns- syni skólastjóra og kennaran- um okkar, Kristjáni Guð- mundssyni. Þarna hittum við einnig hressan hóp frá Lund- arskóla á Akureyri, sem_ var líka á leiðinni til Hurdal. Aður en við vissum af vorum við á leiðinni til Osló. Vinsælasta íþróttin við Herdalvatn, bátasiglingar. Það er margt að sjá í Osló og hún er ótrúlega stór, a.m.k. er langt á milli merkisstaða. En við fórum upp á Holmenkoll- en og skoðuðum frægasta skíðastökkpall heims og þaðan í Vigeland garðinn og svo í Akershus virkið sem er stíðsminjasafn og fleira. Eld- gamalt og flott virki. Svo fór- um við í siglingu til Bygdö og sáum ýmis söfn þar, Kon Tiki og Fram og fleira (það sem all- ir skoða í Osló). A mánudegin- um keyptum við minjagripi og smágjafir handa fólkinu heima og skoðuðum miðborg- ina betur. Um kvöldið héldum við út á flugvöll. Viðburðaríkri ferð var að ljúka og heimþrá farin að gera vart við sig. Flugferðin heim gekk vel og flugfreyjurnar stjönuðu við okkur enda var fátt í vélinni. Við fengum að fara fram í flug- stjórnarklefann að skoða og hitta flugmennina, en útsýnið var nú ekkert sérlega mikið þótt við værum hátt uppi. Um miðnættið lentum við á Kefla- víkurflugvelli og þar tók á móti okkur „móttökunefnd- in“, mömmur og pabbar og systkini. Það var gott að koma heim en minningin um skemmtilega ferð og góða vini í Noregi, Danmörku og Fær- eyjum á eftir að lifa lengi. Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem gerðu þessa ferð mögulega. Linda Helgadóttir og Birta Rós Arnórsdóttir, 6. bekk Gerðaskóla. í Holmenkollen skíðastökkpallinum. Jón, Þórunn, Halldór og Eiríkur. Á Hurdalhótelinu. Siggi, Maggi, Nonni, Davíð, Sigurgeir og Kári. var raðað niður þannig að allir lentu með ,,útlendingi“ í her- bergi. Næsta dag var dagskrá- in kynnt fyrir okkur, en hún var mjög fjölbreytt. Kl. 7 á hverjum morgni var morgun- hlaup eða ganga u.þ.b. 5 kml! og síðan sund eða sturta fyrir morgunmat. Eftir það var klukkutíma kynningarfundur þar sem hver skóli kynnti land sitt og heimabyggð og síðan var farið í íþróttir og leiki sem maður gat valið sér. Eftirtaldir leikir komu til greina: Sigling- ar, kanóróður, túngolf, blak, mini-tennis, ratleikur um skóginn, indíánaieikur, sil- ungsveiði (margar stangir - engin veiði), trampólín, júdó, glíma og karate og fótbolti. Þetta var svo endurtekið eftir hádegi en í stað kynningar- fundar voru umræður um ým- is mál s.s. umferðina, mengun og tísku. Við verðum að viður- kenna að það var erfitt að skilja hina Norðurlandabúana og þess vegna þurftu kennar- arnir alltaf að túlka fyrir okk- ur. Eftir kvöldmat var kvöld-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.