Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 21
WH3&«Í±
JÓLABLAÐ 1988
molar - grín - gagnrýni - vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Skuldabrennur?
Keílavíkurbær hefur nú
ákveðið að standa bæði að
áramótabrennu svo og ann-
arri á Þrettándanum, með
tilheyrandi blysför. Hvað
brennt verður á þessum
brennum hefur ekki enn frést
um en gárungarnir telja þó
vist að það eina sem Kefla-
víkurbær eigi meira en nóg af
séu skuldir og því hljóta
brennur þessar að verða
skuldabrennur!
Hvað með ábyrgð
oddamannsins?
Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur var bók-
uð harðorð bókun bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins um
málefni HK. Þar var m.a.
bent á ábyrgð stjórnar HK
og þá ekki síður bæjarstjór-
ans í Keflavík sem eftirlits-
manns eigna bæjarfélagsins.
Vilhjálmur Ketilsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri, gat ekki
orða bundist og spurði á
móti hvað væri með ábyrgð
oddamanns sjálfstæðis-
manna í Keflavík og bæjar-
fulltrúann Ingólf Falsson?
En eins og flestir vita er hann
bæði í stjórn HK og fram-
kvæmdastjóri þess fyrirtæk-
is;
Suðurnesjamenn!
Gleymum
Kringlunni.
Verslum á
heimaslóðum
mur<
Menningarsjóðurinn
dottinn upp fyrir
Hannes Einarsson, bæjar-
fulltrúi og stjórnarmaður í
Hitaveitu Suðurnesja, upp-
lýsti á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur að hug-
myndir Hitaveitunnar um
sérstakan menningarsjóð
væru nú dottnar upp fyrir.
Ástæðuna sagði hann vera
þá að í slíkum málum yrði að
vera algjör samstaða, því í
raun hefðu sveitarfélögin
neitunarvald. Þar sem Mið-
neshreppur og Vatnsleysu-
strandarhreppur hefðu verið
mótfallnir þessu, væri þetta
úr sögunni.
Sóun á fjármunum
í umræðum um hækkun
útsvarsprósentu á síðasta
fundi bæjarstjórnar Kefla-
víkur ræddi Guðfinnur Sig-
urvinsson um kostnað því
samfara að vera með sjö bæj-
ar- og sveitarstjórnir á Suð-
urnesjum. Taldi hann þetta
vera hina mestu sóun á fjár-
munum borgaranna.
Óheyrilega hár
skrifstofukostnaður
Brunavarnir Suðurnesja
kvarta nú sáran yfir óheyri-
lega háum skrifstofukostn-
aði hjá SSS en fyrir þá þjón-
ustu að hafa bókhaldið hjá
sambandinu eru greiddar
litlar 1200 þúsund. Er þetta
fyrsta árið sem SSS sér um
þetta mál en það var áður í
höndum Keflavíkurbæjar og
þó greiðslan í fyrra hafi verið
undir hálfri milljón kvört-
uðu aðildarsveitarfélög BS
yfír háum kostnaði.
Lokuðu á kost
eigin fyrirtækis
Sá sérstæði atburður átti
sér stað í síðustu viku að
Kaupfélag Suðumesja neit-
aði afgreiðslu á kosti um
boið í HK togarann Bergvík
vegna skulda fyrirtækisins
við þetta eignarfyrirtæki sitt.
Svo togarinn kæmist út var
staðgreiddur kostur hjá
Nonna og Bubba. Því spyrja
menn nú hvað sé eftir hjá
HK, fyrst eigandi þess,
kaupfélagið, þorir ekki leng-
ur að framlengja viðskiptin?
Tjarnarsel:
Jólaball
á
sunnudag
Á næstu vikum verða jóla-
böllin ómissandi þáttur í lífí
bamanna. Hið fyrsta sem við
vitum af verður nú á sunnu-
dag fyrir krakka áTjamarseli í
Keflavík.
Er það foreldrafélagið sem
stendur að hátíð þessari sem
verður nú haldin í íþróttahúsi
Myllubakkaskóla og stendur
yfirfrákl. 14til ló.Erverði að-
göngumiðans stillt í hóf og
kostar því aðeins 250 kr. fyrir
bamið.
JOLAGJAFIR I
DROPANUM