Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 59
\>iKun
jutm
an af handboltanum og ákvað
því að taka hann fyrir. Það var
erfið ákvörðun að segja skilið
við félagana í ÍBK, en hún var
þó fyrst og fremst handbolta-
legs eðlis. Hjá KR gafst mér
kostur á bæði fleiri og lengri
æfingum undir stjórn útlærð-
asta og besta þjálfara landsins,
Jóhanns Inga Gunnarssonar,
með tveimur okkar bestu og
reyndustu handknattleiks-
manna, þeim Alfreð Gíslasyni
og Páli Olafssyni, auk sex fél-
aga minna úr U-20 liðinu. Mér
var ljóst að þetta var einstakt
tækifæri fyrir mig og ég á seint
eftir að sjá eftir þessu. Síðan ég
byrjaði að æfa undir stjórn Jó-
hanns Inga hef ég nánast verið
að læra handbolta upp á nýtt.
Hann er mjög hæfur þjálfari
og mikill sálfræðingur, og það
er gaman að sjá hvernig hann
vinnur. Það er mikil barátta
um sæti í liðinu svo maður
kemst ekki upp með neitt ann-
að en að leggja sig allan fram.“
-En hver er mesta breytingin
við að vera kominn í KR?
„Stærsta stökkið er að vera
bara í einni íþrótt, og ég sé eft-
ir körfunni og blakinu. Ég hef
æft mikið, oft með landsliðinu
á morgnana og KR á kvöldin,
og kennt leikfimi í Myllu-
bakkaskóla og F.S. á daginn,
þannig að það er ekki pláss fy r-
ir neitt annað en handbolt-
ann.“
Slappa af í bílnum
Þegar minnst er á það hvort
Einvarði finnist ekkert lýjandi
að ferðast alltaf á milli Kefla-
víkur og Reykjavíkur til æf-
inga, gerir hann lítið úr því.
„Mér finnst það í raun nauð-
synlegur tími til þess að vera
með sjálfum mér og hugsa um
lífið og tilveruna. Það er oftast
mikið fjör í leikfimikennslunni
og á æfingunum, og því lítið
tóm til að slappa af annars
staðar en í bílnum. Þar fyrir ut-
an er þetta í raun minnkuð
keyrsla frá þvi sem var þegar
ég var á Laugarvatni, en þá
keyrði ég upp í 1500 kmá viku.
Handboltalega séð eru
breytingarnar frá því ég gekk í
KR gífurlegar. Munurinn á 1.
og svo 2. og 3. deild er mjög
mikill, enda markmiðin og
hugsjónin allt önnur. 3. deild-
in er að mestu leyti skipuð
Reynismenn
selja ávexti
og jólatré
Nú um jólin munu félagar
úr knattspyrnudeild Reynis
ganga í hús í Sandgerði og selja
hina geysivinsælu jólaávexti.
Er ávaxtasalan árlegur við-
burður í fjáröflunarstarfi fél-
agsins. Verða þeir félagar á
ferðinni núna um helgina.
En þeir ætla ekki að láta
kyrrt liggja með ávaxtasöluna
eina, heldur bjóða þeir nú líka
upp á jólatré. Verða þau seld
við áhaldahús hreppsins að
Strandgötu á föstudag, 16.
des.,frákl. 17-21 oglaugardag
og sunnudag frá kl. 10-21.
JÓLABLAÐ 1988
„Gleymi því seint, þegar ég kom inná í fyrsta landsleiknum innan um allar þessar stjörnur
„áhugamönnum um holla
hreyfingu" og aðeins fá lið sem
berjast um toppinn. 2. deildin
er barningur margra jafnra
liða, en þegar komið er í 1.
deild eru gerðar ótrúlegar
kröfur og mikill þrýstingur frá
stuðnings- og stjórnarmönn-
um um árangur. Eftir heim-
komu allra landsliðsmann-
anna er stemningin fyrir hand-
boltanum mikil og áhorfenda-
fjöldi á leikjum KR er iðulega
yfir 1000 manns og mikil læti.
Hérna heima varð maður varla
var við áhorfendur.“
Leist ekki á blikuna
í 1. landsleiknum
Að síðustu ræðum við um
tilfinninguna að leika með
landsliði og hvernig gangi að
aðlagast toppslagnum í 1.
deild með nýju félagi.
„Ég gleymi því seint þegar
ég kom inn á í fyrsta lands-
leiknum, sem var í Flugleiða-
mótinu gegn Islandi-A. Ég var
sendur inn á línuna og þegar
ég leit aftur fyrir mig sá ég Geir
Sveinsson gnæfa yfir mig. Ég
ákvað því að færa mig yfir til
vinstri, en þar var fyrir Kristj-
án Arason og ekki leist mér
betur á hann, þannig að ég af-
réð að koma mér yflr til
hægri. Þar tók ekki betra við,
því Alfreð Gíslason var þeim
megin, þreknasturþeirra allra.
Mér var öllum lokið og ég gat
ekki annað en hugsað hvað ég
Við höfum jólagjöfina handa eigin-
manninum. Mikið úrval af fallegum
peysum frá GANT. Rakspíri og sápa
frá Karl Lagerfeld kr. 1.695.-
Ný sending af stökum jökkum frá
GANT. Mikið úrval af Birmington
sokkum.
5%
staðgr.-
afsláttur
herrafataverslunin
PERSÓNA
HAFNARGÖTU 61 - SÍMI 15099
-ÞEGAR ÞÚ KAUPIR FÖT
Nýtt
greiðslu-
korta-
tímabil
væri að vilja þarna innan um
allar þessar stjörnur. Ekki
löngu síðar var ég svo farinn
að æfa með „Alla“ og get ekki
sagt annað en mér hafi líkað
mjög vel vistin hjá KR það sem
af er. Það er í raun og veru
ótrúlegt hvað maður er fljótur
að fá taugar til nýs félags, en
þrátt fyrir það mun ég þó allt-
af fyrst og fremst verða Kefl-
víkingur. - Það breytist
aldrei,“ sagði Einvarður Jó-
hannsson, einn efnilegasti
íþróttamaður Suðurnesja í
dag.
SIEMENS
heimilistæki í úrvali
Eldavélarsett, örbylgjuofnar,
kæli- og frystitæki, þvotta-
vélar, hrærivélar, ryksugur,
kaffivélar.
Útvarpstæki,
sjónvarpstæki,
myndbandstæki.
Pioneer og Sharp -
hljómtæki. Skák-
tölvur, jólaseríur og
margt fleira.
^ Hafnargötu 25 ^
Keflavík
Símar 11535-11521