Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 19
\)iKur<
juiUt
Með Astu, konu Asgeirs Sigurvinssonar, utan við Neckar-leikvang-
inn, heimavöll Stuttgart.
ar kalt í Stuttgart á meðan það
var vetrarblíða heima á ís-
landi. „Það er mikill munur á
veðri hérna á sumri og vetri.
Sumarið er langt og gott. Þáer
maður mikið úti, spilar tennis
á stuttbuxum og golf og grill-
ar úti. Það er æðislegt. A vet-
urna erum við meira inni við.
Frostið verður oft mikið en
aldrei hreyfist hér vindur.
Stundum sakna ég þess, þó
skrítið sé,“ segir Hrannar.
Ekki rauður dregill
í Stuttgart er starfandi ís-
lendingafélag og þannig halda
Islendingarnir hópinn.
Hrannar er einnig í bridshóp
ásamt Ásgeiri Sigurvins og
fleirum, sem hittist minnst
einu sinni í viku og tekur í
kortin. „Það er mjög skemmti-
legt. Við höldum einnig þorra-
blót og fáum íslenska hljóm-
sveit eða flytjendur til að leika
fyrir dansi.“
Þrír árekstrar
og tvö innbrot
„Það er mikill kostur að
vera svona miðsvæðis hérna í
Þýskalandi, þannig að það er
stutt að fara til annarra landa á
bíl. Við höfum notfært okkur
þetta og farið víða, m.a. til
Italíu og frönsku Rivíerunnar.
Tökum með okkur tjald og
jaannig kostar þetta ekki mik-
ið. Við höfum tvisvar farið til
Parísar og í annað skiptið var
ekið þrisvar á okkur og það
sama daginn! Það endaði auð-
vitað með því að bíllinn stór-
skemmdist og við stórtöpuð-
um á því. Sökudólgarnir voru
ekkert að hafa fyrir því að
stoppa, héldu bara beint
áfram. Þetta gerðist á hring-
torginu í París, í þeirri mestu
hringavitleysu sem við höfum
lent í. Þar eru ökumenn ekki
að hafa áhyggjur af smá pústr-
um, en þetta var nú örlítið
meira“, segir Hrannar og hlær
við. Hann bætir því við að
tvisvar hafi verið brotist inn í
þá tvo bíla sem þau hafa átt og
útvarpstækinu verið stolið. „I
annað skiptið gleymdist að
læsa bílnum, þegar við fórum
heim til Islands í frí, þannigað
þjófarnir þurftu ekki einu
sinni að hafa fyrir því að brjót-
ast inn í bílinn. Hitt skiptið var
faglegt innbrot og ,,vel“ að
verki staðið“, segir Hrannar.
Þegar þau eru spurð hvað
þau ætli að vera lengi í námi
horfa þau hvort á annað og
brosa. „Þetta er spurning um
hversu langt við förum. Alla-
vega 7 vetur. Við erum bara
rétt aðbyrja.“ Égspyrþausíð-
an hvort það verði ekki mikil
hátíð þegar náminu lýkur og
góð störf bíði þeirra heima?
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að það bíður okkar
ekki rauður dregill við heim-
komuna en óneitanlega eru
möguleikarnir meiri með
svona nám að baki. Til þess er
leikurinn gerður. íþróttir
skipa háan sess heima, þannig
að ég kvíði engu. Þó þetta sé
ekki leikur einn á meðan á
þessu stendur ráðlegg ég öllum
að hika ekki við að fara í lengra
nám, ef fólk langar til þess og
hefur áhuga. Þetta er ekki að-
eins venjulegur háskóli sem
maður stundar, heldur og
skóli lífsins, þegar maður er
fjarri öllu nátengdu, bæði
landi og ættingjum,“ segir
Hrannar. Verðandi sálfræð-
ingur horfir aðdáunaraugum á
manninn sinn, íþróttafræðing-
inn verðandi, og kinkar kolli
til samþykkis.
Við félagarnir héldum út á
flugvöll. Dagsferðin var að
enda komin. Við kvöddum
unga parið úr Keflavík og lof-
uðum að skila kveðju heim.
I W PALm
"%KFUjÉ
„Frá Þýskalandi er sturr til annarra Evrópulanda og höfum við
óspart notað okkur það“.
FI 941 KEFLAVIK
DF 2048 IjUENCHEN
LH 2ÖTÍBSKFljRT
_ 22-30
'4^6.20
1p;20
30
JÓLABLAÐ1988
Ver^Iunarfólk
Kaupmenn - Stofnanir
Vinnuhópar
Við sjáum um jólaglöggið fyrir ykkur.
Snittur - Roastbeefplattar - Fiskiplattar
Grænmetisplattar og allskonar góðar
huginyndir til að seðja hungrið í
önnum jólaundirbúningsins.
Öll veisluþjónusta
Hagstæð verð en pantið tneð
fyrirvara. Sendum á staðinn.
MEISLUÞJONUSTAN
Iðavöllum - Keflavík
,sími 14797j
Verslum heima!
futtfo
Sími 11777
JOLAHLAÐBORÐ
í hádeginu
alla virka daga til jóla.
Michael Kiely
leikur í efri sal
laugardag
kl. 23-03.
Frítt inn.
MEÐAL RÉTTA:
Svínarif barbeque
Súrsæt flesksteik
Danskt buff m/lauk
Pönnusteikt síld
Hangikjöt og ýmsir
fiskréttir o.fl.
á aðeins 750 kr.
Súpa og salatbar
fylgja....
P.S. Jólaglögg og piparkökur fyrir fyrir-
tæki og starfsmannahópa....
Sendum við skiptavinum
okkar og öðrum Suður-
nesjamönnum bestu
óskir um gleðileg jól.
mWTlBH