Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 29

Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 29
\>iKun (uiUt Flest eþíópísk heimili hafa a.m.k. eina þjónustustúlku og erum við þar engin undan- tekning. Því þar sem ekki eru þvottavélar, ryksugur, sjálf- virkar kaffikönnur og fljóteld- aður matur er erfitt að komast af án aðstoðar. Einnig fer raf- magn og vatn af í tíma og ótíma, svo sýna þarf mikla út- sjónarsemi við heimilishaldið. Mataræði okkar saman- stendur aðallega af injera, spaghettí og súpum. Injera er réttur sem á flestum heimilum er borðaður þrisvar sinnum á dag. Hann samanstendur af þunnu, sýrðu brauði og kássu sem ýmist inniheldur kjúkl- ingakjöt (til hátíðarbrigða), kinda- eða beljukjöt, baunir eða grænmeti. Fjölbreytni í mataræði er því ekki mikil en ekki er hægt að segja annað en að mataræði hér sé heilsusam- legt, því nær ekkert framboð er af sælgæti. Verslunarferðir í Eþíópíu eru heilmikið ævintýri. A laug- ardögum eru haldnir útimark- aðir í allri Eþíópíu. Á markað- inum er hægt að kaupa allt milli himins og jarðar, allt frá baunum og korni upp í asna og kindur. Ég mun aldrei gleyma innkaupaleiðangri sem við fórum í ásamt nokkrum vinnufélögum okkar. Ekið var til Adet, lítils bæjar í ca. 45 km fjarlægð frá Bahír Dar. En þegar halda átti heimleiðis kom í ljós að einn hafði keypt rollu, annar 5 hænsni, sá þriðji 100 kg af korni og sá fjórði sama magn af korni. Einnig bættist í hópinn einn farþegi, svo heimferðin varð bæði há- vaðasöm og óþægileg vegna þrengsla. En ekki er hægt að segja annað en að verslunar- ferðir hér séu öllu líflegri en t.d. hálftíma heimsókn í Hag- kaup eða Samkaup. Yfir 100 mál eru töluð í Eþíópíu en opinbert mál er Amharíska (ca. 40% lands- manna tala það mál). Amhar- ískan er heilmikið torf því staf- rófið samanstendur af illskilj- anlegum táknum. I málinu eru 33 samhljóðar með 7 mismun- andi hljóðafbrigðum, svo sam- tals eru táknin sem læra þarf 231. Tímatalið hér er einnig ólíkt því sem við eigum að venjast. 13 mánuðireru íárinuog byrj- ar nýtt ár 11. sept. að okkar tímatali („13 months of sun- shine“ er vinsælasta auglýs- ingabrellan). Við sólarupprás er klukkan eitt hér (kl. 7 að okkar tíma). Sömuleiðis gildir að við sólarlag er klukkan eitt ' hér. Lesendur athugið: Næsta blað er miðvikudaginn 21. desember. í heimsókn hjá vinum á nýársdag. Injera er borðuð með guðsgöfflunum og til siðs er að fólk troði injera hvert upp í annað (gursha). Það er talið bera vott um gestrisni og er erfitt að komast undan því, engar afsakanir eru teknar gildar nema ef til vill magaóþægindi. Frístundir mínar fara að mestu í heimsóknir til vina og kunningja, blak, boltaleiki eða tilraunir til að læra amharísku af þjónustustúlkunni. Einnig stendur mér til boða vinna á sjúkrahúsinu ef lítið er að gera á skrifstofunni. Tími minn hér fer því síður en svo til spillis og lífsreynslan sem fylgir því að kynnast svo ólíkum menning- arheimi er ómetanleg. Sigríður Kristín Sverrisdóttir. Eldbakaðar pizzur - bestar í bænum 9” 12” 325 425 1. Oregano 2. Skinka, sveppir, ananas 3. Nautahakk, sveppir, pepperoni 580 680 4. Nautahakk, sveppir, paprika 530 630 5. Skinka, sveppir, laukur, rsekjur 595 695 6. „Langbest” pizza með öllu 695 795 7 Hot pizza", nautahakk, sveppir, paprika, sterkur rauður pipar, laukur, pepperoni, hvítlauksolia Ný og hrP^andi pizza, ofsa goð 595 695 Þegar lítill tími er til matseldar jólaösinni er LANGBEST að koma við hjá okkur.... FISKRÉTTIRNIR OKKAR HAFA SLEGIÐ f GEGN - frá kr. 295.- Chick King kjúklingabitar Alltaf í hádeginu: Heit og góð rjómalöguð súpa m/brauði kr. 185,- ÓDÝRIB QG GÓÐIR RÉTTIR ÍS'Str"** Gratineruð ýsuflök m/rækjum, bearnaise- sosuogosti kr. 530,- kraS585na m/hví,lauksbrauði °9 salati Gratineruð skinkubrauðsneið m/sveppum ananas, aspas, bearnaise og osti kr 325 - T~ Gleðileg jól! LANC *** ---W' Hatnargötu 62 Simi 14777 SékalfúÍ Meýlaúíkut Allar nýju jólabækurnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.