Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 22
JÓLABLAÐ 1988
\)imn
4iOU*
TILKYNNING
Keflavík - Grindavík
Njarðvík - Gullbringusýsla
Samkvæmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð
nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt
að selja skotelda eða annað þeim skylt,
nema hafa til þess leyfi lögreglustjóra.
Þeir sem hyggja á sölu framangreinds varn-
ings, sendi umsóknir sínar til yfirlögreglu-
þjóns í Keflavík, eigi síðaren 16. desember
1988. Að öðrum kosti verða umsóknirnar
ekki teknar til greina.
Umsóknareyðublöð fást hjáyfirlögreglu-
þjóni á lögreglustöðinni í Keílavík og hjá
aðalvarðstjóra á lögreglustöðinni í Grinda-
vík.
Lögreglustjórinn í Keflavík, Grindavík,
Njarðvík og Gullbringusýslu.
t
Þökkum innilega samúðarkveðjur og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, systur og ömmu,
SIGRÍÐAR SÆMUNDSDÓTTUR,
Hringbraut 128, Keflavík.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Guðmannsdóttir, Ingvar Pálsson,
Nína Guðmannsdóttir, Arnar Jóhannsson,
Jana Guðmannsdóttir, Magnús Magnússon,
Einar Sæmundsson
og barnabörn.
Geir í undirdjúpunum. Þessa Ijósmynd tók Hilmar Uragi af Geir Sverrissyni þegar hann var á æfingu í
sundlauginni í Njarðvík nýverið. Geir æfir yfirleitt á Keflavíkurflugvelli, þar sem laugin í Njarðvík er
ekki nógu löng.
„Dellurnar að
heltaka mig“
- segir Olympíufarinn og sundkappinn Geir Sverrisson,
sem á mörg áhugamál
Póstur & Sími Keflavík
Afgreiðslutími
fyrir jól
OPNUNARTÍMI FYRIR HÁTÍÐAR:
Föstudaginn 16. des. frá kl. 8.30 til 20.00.
Laugardaginn 17. des. frá kl. 9.00 til 16.00.
Laugardaginn 24. des, aðfangadag
frá kl. 9.00 til 12.00.
Aðra virka daga frá kl. 8.30 til 16.30.
/ ,
STÖÐVARSTJÓRI
Það er óhætt að segja að hann hafi orðið frægur á einni nóttu,
Geir Sverrisson. Um leið og hann sté á verðlaunapall í Seoul til þess
að taka á móti verðlaunum fyrir 100 metra bringusund á Olympíu-
leikum fatlaðra íþróttamanna, beindust augu Suðurnesjamanna að
þessum afreksmanni okkar, sem var lítið þekktur á meðal okkar
fyrir leikana.
Víkurfréttir heimsóttu Geir og forvitnuðust örlítið um það sem
stráksi er að fást við þessa dagana. Við vissum það að hann á fleiri
áhugamál en sundíþróttina.
Geir Sverrisson er 17 ára
gamall Keflvíkingur, fæddur
30. mars 1971. Geir er fatlaður
frá fæðingu en á hann vantar
hægri hendina rétt fyrir neðan
olnboga. Hann setur það ekki
fyrir sig og hefur ljósmyndun
sem áhugamál, þar sem tvær
hendur eru æskilegar. Geir
hefur einnig mikinn áhuga á
tölvum og er að nema tölvu-
og viðskiptafræði við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja. En
byrjum á sundíþróttinni.
Fyrsta spurning blaðamanns
var, hvenær áhugi fyrir sundi
hafi fyrst vaknað?
„Ég hef alltaf verið mikið í
sundi, bæði skólasundi og leik-
sundi. Ég byrjaði síðan óvart
að æfa sund reglulega fyrir
tveimur árum síðan. Þannig
var að það var haldið landsmót
fyrir fatlaða hér í Keflavík í
byrjun síðasta árs og það hafði
enginn frá Sjálfsbjörgá Suður-
nesjum skráð sig til þátttöku.
Stjórninni fannst þetta alveg
ófært að það gæti enginn
keppt, þannig að það var kom-
ið til mín og ég spurður hvort
ég gæti ekki keppt í einhverri
íþróttagrein.
Mér hefur alltaf gengið vel í
sundi og sló því til og synti
fyrir hönd félagsins á þessu
móti.“
-Hvenær fékkst þú að vita
að þú ættir möguleika á því að
komast á Olympiuleika fatl-
aðra?
„Ég byrjaði að æfa sund
reglulega í apríl 1987 en þaðer
ekki fyrr en í janúar á þessu ári
sem ég fæ að vita að ég eigi
möguleika á Olympíusæti."
-Settir þú alltaf stefnuna á
þessa leika frá upphafi?
„Fyrst þegar ég byrjaði að
synda, þá hafði ég ekki hug-
mynd um að þessir leikar væru
til, þannig að markmiðið var
ekki sett á þá.“
-Var mikill æfingatími fyrir
leikana og urðu önnur áhuga-
mál að leggjast á hilluna á
meðan?
„Ég stundaði mikið skíði en
hef lítið getað gert af því á
þessu ári vegna undirbúnings
fyrir leikana. Þetta voru tvær
æfingar á dag og gat orðið allt
að 20 tímar á viku, sem fóru í
æfingar, en þá eru einnigþrek-
æfingar inni í þessum tíma.“
-Hvernig var að keppa á Ol-
ympíuleikum? Varst þú tauga-
trekktur?