Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 26
viKun
JÓLABLAÐ1988
A Strikinu í Kaupmannahöfn.
Danmerkurferð 8. bekkjar Gerðaskóla:
„Sýndum lopa-
peysur og
gömlu dansana“
Við vorum önnum kafin í
bókunum cr Eiríkur skólastjóri
kom inn og spurði frekar hvers-
dagslega, hvort við hefðum
nokkurn áhuga á að sækja um
dvöl í skólaíþróttabúðum í Dan-
mörku. Við höfðum verið í frek-
ar fúlu skapi þennan dag en nú
lifnaði yfir okkur og við svöruð-
um játandi með miklum áhuga.
Eiríkur sagðist þá ætla að sækja
um en hann gæti þó engu lofað,
það væri ekkert víst að við
fengjum jákvætt svar. íslend-
ingar fengju að senda einn bekk
og síðan ætti að koma einn
bekkur frá hverju hinna Norð-
urlandanna.
Nokkrum vikum seinna
kom í ljós að aðeins tveir ís-
lenskir skólar hefðu sótt um og
að hinn skólinn, sem var í
Kópavogi, hefði farið árið áð-
ur. Við vorum því næst og
fögnuðurinn var mikill.
Undirbúningurinn varð að
hefjast strax vegna þess að það
var ekki mikill tími eftir af
skólaárinu og við áttum að
mæta til Nyborg 11. septemb-
er, eða rétt eftir að skólinn
byrjaði að nýju eftir sumarfrí-
ið.,
Ymis félög og félagasamtök
styrktu nýstofnaðan ferðasjóð
og auk þess var haldin vorhá-
tíð, sem gaf drjúgan pening.
Margrét Jóhannsdóttir hjálp-
aði okkur við að koma af stað
kaffi- og vöfflusölu á meðan
aðrir skoðuðu sýningu, köst-
uðu kúlu eða pílum eða flugu
flugdrekum. Eins var bóka-
sala og prjónaáheit, þar sem
lengsti trefill landsins var
prjónaður. Og auðvitað söfn-
uðum við fyrir ferðinni og
| juttu
vasapeningum í fiskvinnslu,
hver fyrir sig, allt sumarið.
Að morgni 10. september
lögðum við af stað og flugum
til Kaupmannahafnar og lent-
um þar í sól og blíðu. Við tók-
um leigubí! að Amager far-
fuglaheimilinu, sem kom al-
gerlega á óvart. Við bjuggumst
við eldgömlum húskofa og
lélegu umhverfi, en við okkur
blasti stór og falleg bygging
með miklum og stórum garði
og fallegum trjágróðri.
Þegar við höfðum komið
okkur fyrir drifum við okkur
niður á göngugötuna frægu,
Strikið, þar sem fararstjórarn-
ir, María íþróttakennari og Ei-
ríkur skólastjóri, kynntu það
sem fyrir augu bar. Þar voru
tónlistarmenn að spila út um
allt og sirkuslistamaður með
sýningu. Um kvöldið fórum
við að sjálfsögðu í Tívolí, það
stærsta sem ég hef nokkurn
tíma séð. Þetta var síðasta Tí-
volíhelgi sumarsins og því
margt um manninn. Þarna
fengum við tíma frá kl. 18-24
og hefðum við þurft alla helg-
ina til að geta farið í öll tækin.
Ogleymanlegt kvöld í Tívolí.
Daginn eftir fórum við í
járnbrautarlest til Korsör og
þaðan tókum við ferju til Ny-
borgar á Fjóni. Skammt frá
brautarstöðinni var svo
íþróttamiðstöðin sem við átt-
um að dveljast á. Húsakynnin
voru mjög góð. Fjórir saman í
herbergi, hver með læstan
skáp og sturta í hverju her-
bergi. Stór samkomusalur og
matsalur. Sundlaug og flott
íþróttahús hinum megin við
götuna og rosalegt fótbolta-
svæði til ýmissa leikja. Margir
grasvellir saman.
Sendum Suðurnesjamönnum öllum
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT
KOMANDIÁR
með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
UTVEGSBANKI
ÍSLANDS HF.
Hafnargötu 60 - Keflavík - Sími 11199