Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 27

Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 27
\>iKun Á/Uttlt' Við járnbrautarsafnið í Óðinsvéum. Við vorum fyrst á staðinn og vorum búin að koma okkur fyrir þegar hópar komu frá Vestbygd í Noregi, Kotka í Finnlandi og Leirvik í Færeyj- um. Einhverra hluta vegna forfallaðist hópurinn frá Dan- mörku og Svíar komu heldur ekki. Dagskráin snerist öll um íþróttir. Sund eða hlaup á morgnana kl. 7.00 og síðan seglbretti, dans akrobatik, rat- leikir og fleira allan daginn. Seinni part dags var smáfrí og þá gátum við rölt niður í bæ að skoða okkur um og versla. A miðvikudeginum var far- ið til Óðinsvéa í útsýnisferð. Þar er H.C. Andersen safnið, mjög flott byggðasafn ogforn- járnbrautasafn. Þetta var mjög gaman þrátt fyrir rign- inguna sem var þennan dag. A fimmtudagskvöldið var komið að okkur að sjá um kvöldvöku. Það var æðislegt. Við sýndum fyrst myndband frá Garðinum og sungum „Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn" (sem var vinsælasta lagið meðal hinna krakkanna). Síðan sýndum við lopapeysu og gömlu dansana, sem við vorum búin að æfa. Kokkinn, Fingrapolka og Óla skans og fengum svo alla út á gólfið með okkur. Og svo var það rúsínan í pylsuendanum eða ætti ég kannski frekar að segja há- karlinn, hangikjötið, harðfisk- urinn, skyrið og lýsið sem við buðum öllum að smakka á. Harðfisk þekktu Færeying- arnir og Norðmennirnir, en aðeins Færeyingar höfðu séð lýsi áður. Hákarlinn vakti at- hygli en lítinn fögnuð en við þóttumst alvön þessu. A end- anum urðum við að syngja Ríðum, ríðum, inn á spólu fyr- ir Finnana. Senn var vikan á enda áður en maður vissi af. Hún var mjög fljót að líða enda höfðu allir skemmt sér konunglega. A föstudagskvöld var diskó- tek og kveðjustund og að sjálf- sögðu runnu ófá tárin er kom að kveðjustundinni. Við vor- um mjög ánægð með þessa ferð en auðvitað var gott að komast heim á Frón, því að heima er best. Að lokum vil ég þakka kærlega þann stuðning sem við fengum til þess að þessi ferð yrði að veruleika. Fyrir hönd 8. bekkjar Gerðaskóla, Arni Arnason. María, Guðrún, Ingibjörg og leiðbeinandinn sýna akrohatik í Ný- borg. Við farfuglaheimilið á Amager í Köben. JÓLABLAÐ1988 RAFLAGNÁVINNUSTOFA Sigurðar Ingvarssonar GARÐI - SÍMI 27103 Lítil raftæki frá Siemens Hárþurrka sem þurrkar fljótt og vel. 2000 W. Þrjár hitastillingar. 1.650 kr. Handryksuga sem er hlaðanleg og geymd í vegghöldu. Alltaf til reiðu 1.99Q kr. Hitaplata sem sér um að maturinn kólni ekki of fljótt á meðan snætt er 2.900 kr. N___________________S Mínútugrill fyrir steik- ina, samlokuna og annað góðgæti. Vöfflu- plötur fylgja með. 8.800 kr. Gufustrokjárn sem sér til þess að allt verði slétt og fellt. A.A88 Irr Brauðrist fyrir tvær venjulegar sneiðar eða eina langa. Smábrauða- grind fylgir með. 2.100 kr. UTILJOS I URVALI L JÓSKASTARAR Verð frá kr. 760.- Fóstrur athugið Staða forstöðumanns við dagvistun- arheimilið Holt í Innri-Njarðvík er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 22. des. Upp- lýsingar veitir undirritaður á bæjar- skrifstofunni, Fitjum. Félagsmálastjórinn í Njarðvík

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.