Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 28

Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 28
VÍKUR JÓLABLAÐ 1988 iuUii Líf og starf keflvísks Rauða kross sjálfboðaliða í Eþíópíu: Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Keílavíkurilugvelli Sandgerði - Grindavik Eþiópíubúar cru yfir liöiuð mjöy fallegt og brosmill fólk. Meðal fjölskyldu- stærð eru 5 börn og algengt er að ömniur og afar og jafnvel aðrir ættingjar búi einnig á heimilinu. Kjörbók Landsbankans - góð jólabók Oskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla, farsæls nýs árs, með þökk fyrir viðskiptin á árinu. Það er vægast sagt einkenni- legt að lifa í samfélagi þar sem sjónvarp, bíóferðir og síminn spila ekki jafn mikilvægan þátt í líft fólksins og heima. Fólkið hér eyðir þess í stað meiri tíma með vinum og kunningjum eða safnast saman á börunum, sem eru margir í Bahír Dar. Reyndar ríkir dæmigert karla- veldi hér í Eþíópíu, svo kon- urnar eru heima meðan karl- arnir sötra bjórinn. Ég og fél- agi minn, Steindór Erlingsson úr Hafnarfirði, höfum nú dvalist hér í 4 mánuði, svo nýja brumið er farið af hlutun- um. En við erum mjög ánægð með dvölina, lífið hér er mjög afslappandi og stressaðir ein- staklingar eru sjaldséðir. Fólk- ið er með eindæmum gestrisið og hjálpsamt og var okkur tek- ið með opnum örmum. Fjölbreytt og krefjandi starf Verkefnið sem vinnum að nefnist á ensku Twinning og er ekkert einsdæmi í Eþíópíu, því nú eru í gangi samskonar verk- efni í 5 héruðum víðsvegar í Eþíópíu. Það eru sænski, finnski og þýski Rauði kross- inn sem standa að þessum verkefnum og er sænski Rauði krossinn lang fyrirferðarmest- ur með 7 sjálfboðaliða á sínum vegum. Það er sameiginlegt þessum verkefnum að reynt er að styrkja starfsemi viðkom- andi R.k. deilda í Eþíópíu, þannig að þær geti í framtíð- inni starfað sem mest án utan- aðkomandi hjálpar. Reynt er að finna nýjar fjáröflunarleið- ir og áhersla er lögð á að efla ungmennastarfið, því ung- mennin eru mikilvægur vinnu- kraftur innan Rauða krossins í Eþíópíu. Meðal annars vinna þau sem sjálfboðaliðar á sjúkrabílum, sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum og að- stoða við fjáraflanir. Annar þáttur í Twinning verkefninu er þróunarhjálp, þ.e. reynt er að bæta aðstöðu og lífsskilyrði fólksins, m.a. með lindavernd- un og heilbrigðisfræðslu. R.k.I. hefur ákveðið að gefa andvirði 10 linda á þessu ári og Workazeb þjónustustúlka okkar ineð 2ja ára son sinn. Ilér er al- gengt að börn séu höi'ð á brjósti langt l'ram eftir aldri, jafnvel til 6 ára aldurs. - segir Sigríður Kristín Sverrisdóttir í líflegum pistli frá Eþíópíu, þar sem hún hefur starfað undanfarna fjóra mánuði. munu framkvæmdir hefjast innan skamms. Það sem er ein- stakt við R.k. verkefnið í Bahír Dar er fiskveiðiverkefnið í Tanavatni. Tanavatn er stærsta stöðuvatn landsins og liggur rétt norðan við bæinn. Framboð á ftski í Bahír Dar virðist ekki fullnægja eftir- spurn og hægt er að veiða mun meira en nú er gert. Þegar leyfi hefur fengist frá landbúnaðar- ráðuneytinu fyrir veiðunum er meiningin að tvöfalda fram- boð á fiski í Bahír Dar (þ.e. úr 200 í 400 tonn árlega) með hjálp innfæddra veiðimanna og netagerðamanna. En RKÍ mun gefa 3 báta til verkefnis- ins. Miklar vonir eru bundnar við verkefni þetta og er undir- búningur nú í fullum gangi. Þessa dagana erum við önn- um kafin við að heimsækja R.k. klúbba í skólum til að kynna okkur starfsemi þeirra og reyna að hjálpa til við lausn vandamála sem yfirleitt eru mörg. Stofnaðir verða tveir nýir klúbbar bráðlega þ.e. í munaðarleysingjahæli Bahír Dar og spunaverksmiðju stað- arins. Einnig er í undirbúningi skyndihjálparnámskeið þar sem atvinnulausum ungling- um, sem lokið hafa skyldu- námi en fallið á landsprófmu, verður boðin þátttaka. Hluti af þeim hópi mun væntanlega vinna sem sjálfboðaliðar eftir námskeiðið, á sjúkrahúsinu og heilsugæslustöðinni. Starfið er mjög háð okkar frumkvæði og má segja að við séum í hlutverki R.k. sjálf- boðaliða 24 stundir sólar- hringsins. Enginn vinnudagur er öðrum líkur, við erum á stöðugum þeytingi og hittum mikið af áhugaverðu fólki á öllum aldri, svo vinnan er bæði fjölbreytt og skemmtileg. Búum ekki við sult og seyru Ekki getum við kvartað yfir aðbúnaði okkar hér, því á eþíópískan mælikvarða búum við í höll (lítið einbýlishús, 3 herbergi og stofa). Salernið er innandyra og við höfum ís- kalda sturtu, sem hér um slóðir telst mikill munaður. Verslunarferðir í Eþíópíu eru heilmikið ævintýri

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.