Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 32

Víkurfréttir - 15.12.1988, Side 32
- Spjallað við Rúnar Júlíusson og sagan rakin í grófum dráttum Á því merkisári 1963, þegar Kennedy Bandaríkjaforseti var myrtur vestur í Dallas, var fyrsta íslenska bítlahljóm- sveitin stofnuð í Keflavík. Það var hljómsveitin Hljómar. Þetta hófst eiginlega allt sumarið 1963, en þávarhljóm- sveit Guðmundar Ingólfsson- ar ein vinsælasta danshljóm- sveitin áSuðurnesjum. Hljóm- sveitin var stór og meðlimir hennar á aldrinum 15 ára til fimmtugs. Margir spáðu því að þessi hljómsveit ætti eftir að verða vinsæl, jafnvel lands- fræg. Þegar líða tók á sumarið og halla að hausti vildi Einar Júl- íusson hætta að syngja með hljómsveit Guðmundar Ing- ólfssonar og stofna aðra yngri hljómsveit. Úr hljómsveit Guðmunar Ingólfssonar komu einnig þeir Gunnar Þórðarson og Erlingur Björns- son. Ekki gátu þeir þrír verið í hljómsveitinni og það vantaði tvo meðlimi til viðbótar. Það varð úr að trymbillinn Eggert Kristinsson var ráðinn, en þá voru enn vandræði með þaðað fá bassaleikara í hljómsveit- ina. Gunnari Þórðarsyni datt í hug að reyna vin sinn Guð- mund Rúnar Júlíusson. Guð- mundur Rúnar, eða bara Rún- ar, hafði ekkert komið nálægt tónlist. Við tókum hann tali í tilefni af afmæli Hljóma. „Eg hafði aðeins einu sinni sungið lög á skólaballi þegar ég byrjaði í hljómsveitinni,“ sagði Rúnar Júl. í samtali við blaðamann Víkurfrétta. „Við Gunnar vorum saman í skóla og þetta var eiginlega af mú- sikáhuga sem ég lét hafa mig út í þetta,“ sagði Rúnar. Eftir fyrstu æfmguna með hljómsveitinni var Rúnar ráð- inn. Rúnar var fljótur að ná árangri á bassanum, sem hann hafði fengið 3-4 vikum áður en hann byrjaði að spila með Hljómum. Gunnar skólaði hann vel til. Síðan var æft og æft í kjallaranum heima hjá Rúnari. Fyrsti dansleikurinn Á þessum árum voru alltaf haldnir dansleikir í Krossin- um, gömlum herbragga, sem stóð rétt bakvið það hús sem Samkaup heitir í dag. Fyrsti dansleikurinn sem Hljómar komu fram á og raunar fyrsta skiptið sem hljómsveitin kom fram var í Krossinum 5. októ- ber 1963. Auglýstur hafði verið dans- leikur með hljómsveit úr Reykjavík, en hún forfallaðist á síðustu stundu og því leit út fyrir að aflýsa þyrfti dans- leiknum. Haft var upp á Hljómum og þeir fengnir til þess að leika á dansleiknum. Það var ofsafjör þetta kvöld í Krossinum og Hljómarnir slógu í gegn þetta fyrsta kvöld sitt og þá var ekki aftur snúið. „Það voru engar pásur tekn- ar og leikið samfleytt frá því klukkan níu um kvöldið og fram til klukkan tvö um nótt- ina,“ sagði Rúnar um fyrsta dansleikinn. „Hann heppnað- ist vel og við höfðum fullt að gera. Við Gunnar Þórðar vorum leigubílstjórar á þessum tíma og hættum því fljótlega, því vinnan var mikil í kringum hljómsveitina.“ Breytingar á Hljómum f febrúar 1964 voru gerðar fyrstu breytingarnar á Hljóm- um. Einar Júlíusson.sem verið hafði söngvari til þessa, var mjög slæmur í hálsi og ákvað að fara til Reykjavíkur að láta taka úr sér kirtla og því var Karl Hermannsson fenginn til þess að syngja á meðan. Meðan Einar var á sjúkra- húsi gerðist það stærsta sem nokkurn tímann hefur gerst í tónlistarheiminum, The Beatles sendu frá sér fyrstu plötuna og þegar Einar slapp af spítalanum voru Hljómar algjörlega búnir að breyta um svip. Hljómar voru orðnir fyrsta íslenska bítlahljóm- sveitin, og það var ákveðið að Karl Hermanns myndi halda áfram við hljóðnemann. Strax vorið eftir fyrsta dans- leik Hljóma í Krossinum var farið í hringferð um landið og spilað á allflestum stöðum á landinu, bæði stórum og smá- um. „Eftir fyrsta árið vorum við orðnir nokkuð þekktir á ís- landi.“ -Var ekki mikil vinna við það að spila út um allt land og fór ekki mikill tími í þetta? „Það voru oft heilu mánuð- irnirsem viðspiluðum áhverju kvöldi. Það var til dæmis ekk- ert gert í skólum, nema að hafa hljómsveit. Það var gott kaup í þessu á þeim tíma.“ Landsfrægir á einni nóttu -Það má segja að Hljómar hafi orðið landsfrægir á einni nóttu, þegar þið lékuð í Há- skólabíói árið 1964? „Tónleikarnir í Háskóla- bíói 4. mars 1964 voru fyrsta innreið okkar á Reykjavíkur- markaðinn." Tónleikarnir voru viðamikl- ir og þar komu Hljómar fram ásamt Savanna-tríóinu, Sóló, Tónum og J.J. & Einari. Aldrei hafa verið haldnir aðrir eins tónleikar á íslandi og aldrei hefur nokkur hljóm- sveit „komið, séð og sigrað“ svo algjörlega sem Hljómar gerðu þetta kvöld.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.