Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 37

Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 37
\)iKurt júiíU JÓLABLAÐ1988 \>imn {uUit Þú átt þess kost að veita okkur mikilvægan stuðning og eignast von um vinning 24. desember. Þá drögum við I happdrættinu og vinningarnir eru þessir: 1 Audi 80 3 Mitsubishi Lancer 1500 GLX 100 Vöruvinningar Krabbameinsfélagið SUDURNESJAMENN! Gleymum Glasgow og Kringlunni. Verslum á heimaslóðum. BBunnBðmrtinGlgjiiMK Umboðsskrifstofa - Hafnargötu 58 - Keflavík JÓLATÓNLIST Jólaundirbúningnum í mínu lífi hefur að mestu verið þannig háttað, að ég ásamt fleirum hef verið að æfa og flytja öðrum jóla- og aðventu- lög. I fyrsta skipti núna baka ég smákökur fyrir jólin, af því ég er í barnseignarfríi. Það er mjög skemmtileg tilbreyting að hafa tíma til að baka og búa 'til jólanammi fyrir fjölskyld- una, sem allt í einu er orðin svo stór. En auðvitað raular mað- ur jólalögin við vinnuna og sonur okkar á öðru ári er að læra þau af okkur um leið og við klippum út jólasveina, óróa og þess háttar fyrir hann. Tónlistin sem fylgir þessum árstíma, aðventunni ogjólahá- tíðinni komandi, er bæði falleg í tónum og auðvitað í texta einnig, því það ríkir svo mikil gleði í hjörtum manna um þetta leyti árs. Og þó úti sé svartasta skammdegið, þá er skært ljós innra með okkur þegar við heyrum jólalögin sungin og leikin. Það lifnar alltaf yfir nemendum okkar við Tónlistarskólann, þegar þau fá fyrstu jólalögin til að æfa á hljóðfærin sín. Og börn- in í forskóladeildunum syngja fullum hálsi fyrir jólin, þó lítið hafi heyrst í þeim sumum allt haustið. Lúðrasveitin æfir af kappi og spilar jólalög hingað og þangað um bæinn til þess að gleðja önnum kafna íbúana við jólaannríkið. Mikið æfa kórar, sérstaklega kirkjukór- ar, af jólalögum og sálmunum fallegu, því hvað væri jóla- messa ef ekkert væri sungið? Ætli okkur þætti ekki vanta mikið upp á helgina og hátið- leikann ef engin tónlist yrði flutt? Ein stórkostlegasta stund í kirkjunni er þegar allir kirkjugestir sameinast í söng í sálminum fræga „Heims um ból“, jafnvel eingöngu með kerti í höndum en engin önnur ljós. Þá er jólahátíðin lcomin innst að hjartarótum allra. Verst þykir mér að fólk skuli ekki spara einn eða tvo sálma til aðfangadags, en syngja heldur jólalög á mannamótum sem mörg eru einmitt haldin á aðventunni. Það þykir alveg sjálfsagt að opna ekki jóla- pakka fyrr en eftir kl. 6 á að- fangadag og það ætti að vera jafn sjálfsagt að syngja ekki „Heims um ból“ fyrr en eftir að jólin eru gengin í garð. Þessi tími hefur stundum verið notaður einmitt til að gera stóra hluti í tónlistinni. Aðventutónleikar hafa verið haldnir víða og eru mér efstir í huga þeir stórbrotnu tónleik- ar í fyrra þegar allir kórar á Suðurnesjum sameinuðust í einum kór og sungu á fjórum stöðum eina helgi. Það voru yfir 100 manns í þessum vold- uga kór, sem söng við undir- leik hljómsveitar að mestu skipaðri heimamönnum. Slík 'upplifun var þetta, að ekki bara ég hejdur margir kórfél- aganna sem sungu, eiga sér þá ósk að þetta megi endurtakast. Þá minnist ég einnig aðventu- tónleika sem haldnir voru í Keflavíkurkirkju alltaf á hverju ári og komu þar fjöl- margir fram og sungu og léku á hljóðfæri. Jólaundirbúning- Gróa Hreinsdóttir situr nú heima í barnseignarfríi, bakar smákökur og raular jólalög fyrir son sinn. urinn 1985 var þó alveg sér- stakur að mörgu leyti, því þá var æft til þess að syngja jólin á sjálfum staðnum þarsemjólin urðu til, Betlehem. Að vísu var enginn snjór og engin guðs- þjónusta eins og hér heima, en að vera svo nálægt hinum frægu söguslóðum hafði djúp áhrif á okkur öll. Þarna hittum við líka kóra frá fjarlægum löndum og þó tónlist okkar ætti sér ólíkan uppruna, vor- um við öll á þessum stað til þess að syngja Guði þakkar- gjörð. Það er mjög skemmtilegt að vinna með kórfólki og hljóð- færaleikurum að jólalögum. Öllum þykir gaman, lögin eru skemmtileg og þessi sérstaki hátíðarblær innra með okkur kemur út með tónunum, þeg- ar lögin eru flutt.- Börnin syngja jólalögin og sálmana af hjartans list og hljóma oft líkar englaröddum en níanns- röddum. Mikið hefur Guð gef- ið okkur, sem höfum getað og gerum áfram að gleðja ykkur með flutningi á fagurri tónlist, ekki bara um jól, heldur allt árið uip kring. Gleðilega jólahátið. Gróa Hreinsdóttir Við óskum landsmönnum gleðilegra jóla, árs og friðar og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.